Litli Bergþór - 01.12.2012, Side 7

Litli Bergþór - 01.12.2012, Side 7
Litli-Bergþór 7 Kjörstaðir í Bláskógabyggð voru í Reykholtsskóla og á Laugarvatni. Kosningaþátttaka var dræm en betri en víðast hvar annars staðar eða rúmlega 50 prósent. Í byrjun nóvember kom út matreiðslubókin „Orð, krydd og krásir“ eftir þær Kristínu Þóru Harðardóttur frá Lyngási í Laugarási og sr. Sigrúnu Óskarsdóttur frá Laugarvatni. Í bókinni er brugðið ljósi á mataræði Jesú Krists og annarra sem við sögu koma í Biblí- unni. Árleg sultukeppni var haldin í Bjarkarhól Safna- helgina 2. til 4. nóvember. Sigurvegarar voru Sigur- laug Jónsdóttir fyrir bestu sultuna, Sigurjón Sæland fyrir hollustu sultuna og Bergþór G. Úlfarsson fyrir þá nýstárslegustu. Dómarar voru Hallgrímur Magnús- son læknir, Ragnhildur Þórarinsdóttir garðyrkjubóndi og Sölvi Hilmarsson matreiðslumeistari. Einnig voru veitt verðlaun um safnahelgina fyrir þátttöku í prjónagraffinu sem hófst í mars. Sigurlaug Jónsdóttir fékk verðlaun fyrir frumlegasta graffið en Inga Ósk Jóhannsdóttir var sú afkastamesta enda prjónaði hún og heklaði á 72 staura. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti tillögu til fjárauka sveitarsjóðs Bláskógabyggðar 2012 á fundi sínum 8. nóvember. Þar kemur fram að tekjur vegna fasteignaskatts aukast um fjórar milljónir og framlag jöfnunarsjóðs eykst um rúmar 8,8 milljónir. Mestur hluti þessara tekna verður varið í félagsþjón- ustu eða tæpar 7,8 milljónir. Sláturtíð lauk í byrjun nóvember og kom þyngsti dilkurinn frá Eiríki Jónssyni í Gýgjarhólskoti. Vóg hann 33,3 kg og flokkaðist í DU4. Hann átti einnig næstþyngsta dilkinn og alls sjö af tíu þyngstu dilkun- um í Sláturfélagi Suðurlands. Upplit, menningarklasi uppsveitanna, hélt for- keppni í hæfileikakeppninni Uppsveitastjarnan á Borg 24. nóvember. Á meðal þeirra sem komust áfram í úrslit var Eva María Larsen en einnig keppti danshópurinn ISS sem skipaður Iðunni Helgadóttur, Sölku Kristínu Jónsdóttur og Sólrúnu Sigurjónsdótt- ur. Magnús í Austurhlíð sá um grenjaleitir í ár eins og áður. Legið var á níu grenjum, þar af átta í byggð og eitt á framafrétti. Einnig fannst greni skammt frá Gíslaskála sem greinilega var merkt en hafði fallið í gleymsku. Heildarfjöldi dýra sem vannst í vor var 47. 12 fullorðin dýr á grenjum, eitt hlaupadýr og 34 yrðlingar. Raflagnir - Viðgerðir Jens Pétur Jóhannsson LÖGGILTUR RAFVERKTAKI Tökum að okkur nýlagnir, hönnun raflagna og alla almenna rafvirkjavinnu ásamt tækjaviðgerðum. Efnissala og varahlutaþjónusta. Fljót og góð vinna. Sumarbústaðaeigendur athugið að við sækjum um öll leyfi fyrir heim- taug að sumarhúsum og lagningu raflagna Heimasími: 486 8845 Verkstæði: 486 8984 GSM: 893 7101 Gleðileg jól Ég er alveg ruglaður í þessum hringtorgum. ljós. Minnihlutinn lét bóka and- mæli og telur hann mikilvægt að vinnuhóprinn skili af sér tillögum um fram- tíðarfyrirkomulag húsnæðis Álfaborgar eigi síðar en í maí 2013. Sett var upp hraðahindrun á Bergholtsveg fyrir neðan félagsheimilið Aratungu 14. október. Ráðgefandi þjóðaratkvæða- greiðsla um tillögur stjórnlaga- ráðs að frumvarpi til stjónarskip- unarlaga og tiltekin álitaefni þeim tengd fór fram 20. október.

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.