Litli Bergþór - 01.12.2012, Blaðsíða 26

Litli Bergþór - 01.12.2012, Blaðsíða 26
26 Litli-Bergþór Fjallferð 2012 - Óveður á Kili Þegar nær dró fjallferð Tungnamanna í september 2012 var ljóst að veðurspá var ekki góð. Spáð aftaka norðanstormi og snjókomu á Kili á mánudeginum. Heldur hafði dregið úr spánni á föstudeginum 7. september þegar fyrstu fjallmenn riðu inn í Árbúðir í björtu og góðu veðri og menn því vongóðir um að veður yrði meinlaust þrátt fyrir allt. En aukabirgðir af ullarfatnaði voru þó vísast í trússi flestra fjall- manna og menn við öllu búnir. Á laugardeginum skiluðu 26 fjallmenn og rúmlega helmingi fleiri hestar sér inn í Gíslaskála í Svartár- botnum eins og fjallskilanefnd og bændur höfðu komið sér saman um, en ákveðið var að lagt yrði af stað í leitir úr Gíslaskála í ár í stað Árbúða, eins og gert hefur verið í mörg ár. Ýmist komu menn ríðandi úr byggð eða létu keyra sig og hestana í Gíslaskála, eða eitthvað áleiðis. Sumir riðu úr Fremstaveri, aðrir frá Hvítárbrú og enn aðrir frá Árbúðum. Tók nú við söngur og gleði að hætti fjallmanna fram eftir kvöldi og allir kátir, enda komnir úr sambandi við vondar veðurspár og vonin búin að taka völdin. Í fylgd fjallmanna, en á bíl, voru tvær kvikmynda- tökukonur, Ólöf Hermannsdóttir, sem smalaði með okkur síðastliðið haust og Guðborg Hildur Kolbeins, ættuð frá Fellskoti, sem samið höfðu um að fá að taka heimildamynd um fjallferðina. Á sunnudeginum var ræs kl. 6 að venju þrátt fyrir stuttan svefn hjá sumum. Enn var ljómandi gott veður og uppúr kl. 7 um morguninn riðu 17 Hveravalla- menn af stað í björtu og góðu veðri, og litlu síðar níu Austurkróksmenn í sínar leitir. Vegna slæmrar spár ákvað Loftur Jónasson fjallkóngur að smala Kjal- hraunið á leiðinni inn á Hveravelli frá Rjúpnafelli („kakóleitina“) í stað þess að smala Þjófadali, eins og alltaf hefur verið gert þegar riðið er úr Árbúðum. Þjófadalirnir yrðu þá smalaðir á leiðinni til baka. Þegar leið á daginn tók að hvessa og slydda, en allt smalafólk var komið tímanlega í skála óhrakið um kl. 17. Austurkróksmenn smöluðu rúmlega 100 fjár frá Fjórðungsöldu austur að Blágnýpuveri við Hofsjökul og fram úr Fossrófum (Kerlingarfjallavegi) og smöluðu síðan Svartárbotnana og ráku suður í Gránunes. Þeir gistu í Gíslaskála. Hveravallamenn komu með um 70 kindur úr sinni leit og settu í gerði á Hveravöllum og gistu í gamla sæluhúsinu þar við hliðina á heitu lauginni. En þess má geta að ekkert klósett er í húsinu og þó nokkuð langt í kamrana, og hesthús og gerði eru einnig mun lengra í burtu en í Gíslaskála. Þær Ólöf og Guðborg keyrðu norður á Hveravelli til að mynda þar, en sluppu til baka í Gíslaskála um kvöldið áður en Kjalvegur lokaðist vegna snjóa. Þar dvöldu þær með okkur næsta sólarhringinn og höfðu nægan tíma til að kvikmynda íbúana. Um kvöldið hvessti meira og meira og fór að snjóa og skafa. Og alla nóttina og næsta dag skók fárviðr- ið skálana og ekki sá út úr augum úti fyrir skafbyl, gluggar voru þaktir snjó hlémegin eins og um há- vetur, en annars festi snjó ekki mikið á jörðu vegna hvassviðrisins. Þegar birti á mánudagsmorgun 10. september var ljóst að ekki yrði smalað þann morguninn. Úti var frost, varla stætt fyrir skafbyl og skyggnið ekkert á móti veðrinu. Undan veðri grillti rétt í hesthúsið í Gíslaskála. Hraustustu karlmenn fóru út til að gefa hestunum, kveikja á rafstöð eða sækja vistir í trúss- bílinn, aðrir héldu sig innandyra og reyndu að láta fara vel um sig í svefnpokum við svefn eða lestur Mokað frá rafstöðvarhúsinu við Gíslaskála með frumstæðum áhöldum.

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.