Litli Bergþór - 01.12.2012, Side 27

Litli Bergþór - 01.12.2012, Side 27
Litli-Bergþór 27 eða við eldamennsku úr afgöngum, spil, spjall og kveðskap. Aðstaða í Gíslaskála er til fyrirmyndar fyrir menn og skepnur, gistipláss fyrir um 50 manns í skálanum, klósett inni og sjálfrennandi vatn, mögu- leiki á að kveikja á rafstöð fyrir ljós og hita og gas- hitari á sturtu. Í hesthúsi er nóg pláss og hey fyrir hestana. Reynt var að hleypa þeim út annað slagið til að brynna þeim, en þeir voru fljótir inn aftur. Við sem vorum svo heppin að vera sett í Austurleitina öfunduðum lítið Hveravallamenn af aðstöðunni þar, en þar var þó sami háttur hafður á, maður er manns gaman, - nema hvað kamarmál voru leyst öðruvísi! Ekkert farsímasamband er á Hveravöllum, svo lengi vel fréttist ekkert úr þeirri leit, en á leið sinni í hesthúsið náðu norðurleitarmenn þó loks sambandi, svo fjallkóngur gat látið Austurkróksmenn vita að allt væri í lagi norður á Völlum og ráðið ráðum. Hey var af skornum skammti á Hveravöllum, ein- ungis rúmlega ein gjöf fyrir hestana og ekkert fyrir sauðféð, og hestar því svangir og fúlir á þriðjudagsmorguninn. Fennt hafði yfir eitt hornið á fjárgerðinu, svo hluti kindanna 70 hafði sloppið út og hýmdu þær undir skálaveggjum eða annarsstaðar, sem þær fundu skjól. Þriðjudagur rann upp og enn var bálhvasst og snjókóf og ekkert skyggni, en bjart yfir á köflum. Síðan tók að dúra og grilla í Kjalfell og Hrútfell annað slagið og um hádegi var komið þokkalegasta smalaveður hjá okkur í Gíslaskála, en kalt. Hvera- vallamenn riðu af stað um kl. 8 um morguninn í slæmu veðri, sem lagaðist ekki fyrr en komið var Óskar á leið inn frá gegningum, rétt grillir í hesthúsið við Gíslaskála. Kvikmyndatökukonurnar knáu, Guðborg og Ólöf.

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.