Litli Bergþór - 01.12.2012, Qupperneq 32

Litli Bergþór - 01.12.2012, Qupperneq 32
32 Litli-Bergþór Frá Vinum Tungnarétta Fyrsta skóflustungan. Veggir brotnir niður. Félagið, Vinir Tungnarétta, var stofnað þann 3. febrúar 2012. Tilgangur þess er að afla fjár og sjá um enduruppbyggingu, viðhald og verndun Tungna- rétta. Félagar eru 126 og þar af stofnfélagar 101. Fjáröflunarsamkoma var haldin í Aratungu þann 9. mars 2012 og fór innkoma fram úr björtustu vonum. Bæði einstaklingar og fyrirtæki styrktu félagið með rausnarlegum gjöfum og þökkum við fyrir það. Nú var hægt að hefjast handa við fyrsta áfanga fram- kvæmdanna og var fyrsta skóflustungan tekin þann 31. mars 2012. Byrjað var á því að brjóta niður alla steypu og skipta um jarðveg í og við mannvirkið. Eftir það hófst mótauppsláttur og steypuvinna sem lauk fyrir réttir í haust (15. september 2012). Öll vinna við enduruppbygginguna er unnin í sjálf- boðavinnu og hafa um 50 manns komið að því verki bæði með vinnuframlagi og láni á vélum og tækjum. Vinnustundir eru orðnar u.þ.b. 1500 klst. Í ágúst tók félagið að sér að sjá um dansleik í Aratungu í tengslum við viðburðinn „Tvær úr Tung- unum“ og rann ágóðinn af því í sjóði félagsins. Ennfremur er verið að vinna mynddisk fyrir Vini Tungnarétta, sem geymir minningabrot af fjallferð Tungnamanna 2012. Stefnt er að því að diskurinn verði kominn í sölu fyrir jól 2012. Næsta skref verður að hreinsa burt allar gömlu grindurnar, smíða nýjar, steypa undirstöður undir grindurnar og koma þeim fyrir. Stefnt er að því að þessu verði lokið fyrir næstu réttir í september 2013. Búið er að kaupa allt járn í nýju grindurnar og er vinna við smíði þeirra hafin. Kostnaður við fram- kvæmdina er orðinn 5.550.000 kr. og eru til í sjóði þegar þetta er ritað 2.500.000 kr. Það væri langur listi að telja upp alla þá sem styrkt hafa enduruppbygginguna með peningagjöfum, láni á vélum og tækjum og sjálfboðavinnu. Því vill stjórn Vina Tungnarétta koma á framfæri kæru þakklæti til allra þeirra sem hafa gert þessa framkvæmd mögu- lega, án þeirra hefði þetta ekki verið hægt. Við óskum ykkur öllum farsældar á komandi vetri. F.h. stjórnar Vina Tungnarétta Kolbrún Ósk Sæmundsdóttir, ritari.

x

Litli Bergþór

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.