Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.08.2012, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 16.08.2012, Blaðsíða 18
FIMMTUDAGURINN 16. ÁGÚST 2012 • VÍKURFRÉTTIR18 Hákon Þorvaldsson, Birgir Vilhjálmsson, Ólafía Sigríður Friðriksdóttir, Hildur Guðrún Hákonardóttir, Hákon Matthíasson, Hilmar Hákonarson, Þórunn Guðmundsdóttir, barnabörn og langömmubörn Ólafía Jónína Gísladóttir, Vallarbraut 10, Reykjanesbæ, Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, lést á Garðvangi sunnudaginn 5. ágúst. Útför hennar fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 17. ágúst kl. 13:00. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og samúð vegna andláts og jarðarfarar eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Sigfúsar Kristjánssonar, fv. yfirtollvarðar á Keflavíkurflugvelli, Garðavegi 12, Keflavík, sem andaðist á Hlévangi mánudaginn 9. júlí. Sérstakar þakkir og kveðjur til starfsfólks á Hlévangi og Garðvangi. Jónína Kristjánsdóttir, Hilmar Brimar Jónsson, Elín Káradóttir, Magnús Brimar Jóhannsson, Sigurlína Magnúsdóttir, Hanna Rannveig Sigfúsdóttir, Ágúst Pétursson, Drífa Jóna Sigfúsdóttir, Óskar Karlsson, Sjöfn Eydís Sigfúsdóttir, Jóhann Ólafur Hauksson, Snorri Már Sigfússon, barnabörn og barnabarnabörn Verkefni lögreglunnar á Suðurnesjum á árinu 2011 voru umtalsverð og á það við um allar deildir og starfseiningar. Mikil aukning varð á flugumferð til og frá landinu sem hafði í för með sér auknar kröfur til landa- mæraeftirlits segir lögreglustjór- inn Sigríður Björk Guðjónsdóttir m.a. í nýrri ársskýslu lögreglunn- ar á Suðurnesjunum sem birt var á dögunum. Hér að neðan má sjá nokkur atriði úr skýrslunni sem Víkurfréttir tóku saman. Þar segir hún ennfremur að það hafi staðið upp úr í starfinu að ekk- ert dauðsfall varð í umferðinni í umdæminu á árinu 2011 og er það að sönnu gleðilegt. Ríflega tíu millj- óna króna afgangur varð á rekstri innan ársins og fóru þær til greiðslu upp í uppsafnaðan halla embætt- isins frá fyrri árum. Starfsmenn embættisins voru 96 talsins á árinu 2011. Fjöldi lög- reglumanna var svipaður á milli ára eða um 83 talsins. Sex starfsmenn létu af störfum á árinu og tveir þeirra vegna aldurs. Kynjahlutfall í starfsliði lögreglu var svipað og árið á undan eða 10 konur og um 73 karlmenn. Það gerir hlutfall kvenna um 12% og hlutfall karla um 88%. Hjá öðrum starfsmönnum en lög- reglumönnum var hlutfall kvenna mun hærra eða um 69%, það er níu af þrettán starfsmönnum. Almennt má segja að árið 2011 hafi verið gott hjá rannsóknardeild lög- reglunnar og er þá litið til þess að engin verulega umfangsmikil mál komu til rannsóknar. Árið var engu að síður mjög annasamt því enginn hörgull var á málum til rannsókn- ar og voru mörg þeirra vissulega alvarleg. Rannsóknir líkamsárása og kynferðisbrota eru helstu verk- efni rannsóknardeildar auk ann- arra hegningarlagabrota. *** Fleiri líkamsárásir en alvar- legum brotum fækkar Líkamsárásarmálum í umdæmi Lögreglunar á Suðurnesjum fjölg- aði aðeins milli ára en 82 mál komu til rannsóknar árið 2011 í stað 69 mála árið 2010. Það jákvæða við þróun líkamsárásarmála undan- farin tvö ár er að alvarlegri málum fækkar hlutfallslega. Áhersla hefur verið lögð á að hraða rannsóknum líkamsárásarmála enda málaflokk- urinn í hópi forgangsmála sam- kvæmt fyrirmælum ríkissaksókn- ara. Verulegur árangur hefur náðst í því efni segir í skýrslunni. Annasamt ár hjá lögreglunni Mun meira handlagt af LSD og E-pillum Starfsemi Fíkniefnateymis embætt- isins lögreglunnar á Suðurnesjum árið 2011 var með svipuðum hætti og fyrri ár. Engar mannabreytingar voru frá fyrra ári innan deildarinn- ar og hófst árið tiltölulega rólega en febrúar og mars voru þó mjög annasamir hjá deildinni. Handlagt amfetamín fór úr rúmum þremur kílóum árið 2010 í tæplega 400 grömm árið 2011. Aukning er í fljótandi amfetamíni og efnum til ætlaðrar framleiðslu amfetamíns, sem þykir benda til að framleiðsla efnisins hér á landi hafi færst veru- lega í aukana, enda virðist framboð efnisins ekki hafa minnkað. Rúm tvö kíló af kókaíni voru hald- lögð en árið 2010 voru rúm fjögur kíló haldlögð. Aukning var í hald- lögðum kannabisefnum, LSD, Ec- stacy pillum (E-pillur) og MDMA dufti. Ein stærsta kannabisræktun sem stöðvuð hefur verið hér á landi fannst í umdæminu en hald var lagt á 800 kannabisplöntur í því máli. Haldlagðar Ecstacy pillur voru 66.834 talsins árið 2011 á móti 15.084 árið 2010 og LSD skammtar voru 4.472 en einn skammtur var haldlagður árið 2010. *** Engin banaslys í umferðinni Ekkert banaslys varð í umferðinni í umdæmi lögreglunar á Suður- nesjum á árinu 2011 og má eflaust þakka það stöðugum umbótum á umferðarmannvirkjum fyrst og fremst, en greinileg þróun í átt að fækkun umferðslysa hefur orðið frá tvöföldun Reykjanesbrautar. Allnokkur fjöldi umferðarslysa, vinnuslysa og frítímaslysa varð að venju en aðeins eitt banaslys. Grænlenskur sjómaður drukknaði þegar hann tók út af grænlensku fiskiskipi þann 27. febrúar. Skip- ið var að veiðum í Faxaflóa þeg- ar slysið varð og kom til hafnar í Helguvík. *** 22 kynferðisafbrot á árinu Alls komu 22 kynferðisbrotamál til rannsóknar lögregluembætt- isins á Suðurnesjum árið 2011 sem er svipaður málafjöldi og árið á undan. Brotin voru af margvísleg- um toga og varða fjölmargar grein- ar kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga. Samkvæmt skýrslunni hefur áhersla verið lögð á að hraða rannsóknum kynferðisbrotamála enda mála- flokkurinn í hópi forgangsmála skv. fyrirmælum ríkissaksóknara með ágætum árangri. Einnig hefur mikil áhersla verið lögð á að vanda til rannsókna kynferðisbrota hjá emb- ættinu og þess má geta að af sex starfsmönnum rannsóknardeildar eru tvær rannsóknarlögreglukonur sem mun vera hæsta hlutfall kvenna í deild sem rannsakar kynferðisbrot hér á landi svo best er vitað. Árið 2009 komu 23 kynferðismál til meðferðar alls. Fjögur þeirra voru nauðgunarmál sem féllu að fyrirmælum ríkissaksóknara og var meðalmeðferðartími þeirra 66 dagar. Þrjú þessara mála voru undir tímamörkunum en eitt þeirra fór yfir. Árið 2010 komu 26 mál til meðferðar alls. Níu þeirra voru nauðgunarmál sem féllu að fyr- irmælum ríkissaksóknara og var meðalmeðferðartími þeirra 43,5 dagar. Sjö þessara mála voru undir tímamörkum en tvö þeirra fóru yfir. Á fyrstu níu mánuðum ársins 2011 komu 18 mál til meðferðar alls. Sex þeirra voru nauðgunar- mál sem féllu að fyrirmælum rík- issaksóknara og var meðalmeðferð- artími þeirra 87,3 dagar. Eitt þess- ara mála var undir tímamörkum en fimm fóru yfir. Með vísan til fyrirmæla ríkissak- sóknara um málsmeðferðartíma verður að hafa í huga að fleira kann að skýra langan málsmeðferðartíma en langur rannsóknartími hjá lög- reglu eða langur afgreiðslutími í lögfræðideild. *** Veruleg fækkun í innbrotum og þjófnuðum Skráðir þjófnaðir voru 360 en inn- brot og þjófnaðir voru 130 og er fækkun slíkra mála veruleg frá árinu áður. Nokkuð var um að erlendir brotamenn kæmu við sögu í þess- um innbrotamálum en innlendir aðilar létu einnig að sér kveða og nú er verið að ganga frá rannsóknum fjölda mála á nokkra mjög afkast- mikla brotamenn á þessu sviði. *** 34 með fölsuð skilríki Framvísun falsaðra ferðaskilríkja eða önnur misnotkun slíkra skjala er nokkuð fyrirferðamikill mála- flokkur hjá embættinu og nokk- uð árstíðabundinn, þ.e. frá vori og fram á haust. Á þessu ári voru 34 einstaklingar stöðvaðir með fölsuð skilríki í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þessi málaflokkur nýtur forgangs hjá embættinu enda annað vart í boði þar sem viðkomandi aðilar eru stöðvaðir á ferð sinni. Skilríkjasérfræðingar lögreglu í flug- stöðinni rannsaka skilríkin og þegar leitt hefur verið í ljós til dæmis að um fölsun er að ræða eða viðkom- andi notar skilríki annarrar persónu þá fer fram frekari rannsókn og upp- lýsingaöflun hjá rannsóknardeild og síðan eru viðkomandi aðilar ákærð- ir og færðir fyrir dóm. Víkurfréttir hafa flutt ritstjórnarskrifstofur blaðsins að Krossmóa 4 í Reykjanesbæ Sölumann vantar í Epal Design Epal Design á Keflavíkurflugvelli leitar að starfsmanni í 100% starf. Unnið er á 3-2-2 vöktum. Verslunin selur íslenska og erlenda gjafavöru auk íslenskra skartgripa. Allar nánari upplýsingar veitir Guðný Hermannsdóttir í síma 843 9093. Umsóknum skal skila á netfangið gudny@epal.is fyrir 22 ágúst. Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Hreins Guðmundssonar, Túngötu 2, Sandgerði. Sérstakar þakkir til starfsfólks D-deildar sjúkrahúss Suðurnesja fyrir mjög góða umönnun. Einnig færum við Álftagerðisbræðrum sérstakar þakkir. Bryndís Eðvarðsdóttir, Sigurður Smári Hreinsson, Unnur G.G. Gretarsdóttir, Berta Súsanna Hreinsdóttir, Þórhallur Ingason, Guðrún Sonja Hreinsdóttir, Markús Karl Valsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.