Víkurfréttir - 16.08.2012, Blaðsíða 8
FIMMTUDAGURINN 16. ÁGÚST 2012 • VÍKURFRÉTTIR8
Viðburði á Ljósanótt þarf að
skrá á vef Ljósanætur,
ljosanott.is. Þannig fara þeir
inn í dagskrá og kynningar-
efni Ljósanætur. Síðasti dagur
til að koma dagskrár-
viðburðum í prentaða dagskrá er 20. ágúst. Þetta er gert
með því að smella á flipann „Skrá viðburð“ á forsíðu og
setja inn upplýsingar og mynd tengda viðburðinum.
VIÐBURÐIR Á
LJÓSANÓTT
AKURSKÓLI
LAUS STÖRF
Akurskóli auglýsir eftirfarandi störf laus til umsóknar:
Starfsmaður skóla/stuðningsfulltrúi
Starfar með nemendum í leik og starfi utan og innan
kennslustofu.
Menntun og hæfni
• Reynsla eða menntun sem nýtist í starfi æskileg.
• Hæfni í mannlegum samskiptum
Frístundaskóli/Akurskjól
Starfsmenn frístundaskóla vinna með börnum í skipu-
lögðu starfi eftir að hefðbundnu skólastarfi er lokið
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef Reykjanesbæjar
http://www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um þessi
störf.
Nánari upplýsingar um störfin veita Sigurbjörg
Róbertsdóttir skólastjóri og Bryndís Guðmundsdóttir
aðstoðarskólastjóri í síma 420-4550
ROKKSTOKK 2012
Ungir tónlistarmenn og hljómsveitir takið eftir !
Samsuð í samstarfi við Ljósanæturnefnd kynnir
tónlistarkeppnina Rokkstokk 2012 sem haldin verður í
Frumleikhúsinu fimmtudaginn 30. ágúst nk.
Glæsileg verðlaun í boði.
Skráning og nánari upplýsingar á netfangið
hafthor.birgisson@reykjanesbaer.is eða í síma
898-1394
Innileikjagarðurinn er farinn að taka við bókunum fyrir
afmælisveislur. Innileikjagarðurinn opnar svo í byrjun
september.
Bókanir eru í síma 898-1394
INNILEIKJAGARÐUR
HELGARVINNA
Í VÍKINGAHEIMUM OG DUUSHÚSUM
Óskum eftir áhugasömu fólki í helgarvinnu og afleys-
ingar í Víkingaheimum og Duushúsum.
Lágmarksaldur 20 ár, áhugi á sögu og listum skilyrði.
Sjálfstæð vinnubrögð, þjónustulund, snyrtimennska og
nokkur kunnátta í erlendum tungumálum nauðsynleg.
Sækja skal um starfið á vef Reykjanesbæjar,
http://www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf.
Umsóknarfrestur er til 27. ágúst.
Skemmtileg hefð hefur skapast fyrir því að veita viðurkenningu þeim sem af stakri prýði sinna
umhverfi sínu og þannig fegra bæinn. Mikill tími
og kostnaður getur farið í að sinna stórum heima-
garði og margir sem sinna görðunum sínum vel og
eru til fyrirmyndar. Íbúar eiga þakkir skilið fyrir
fjölda tilnefninga og fyrir löngu búið að sýna það
og sanna að gróður vex vel og dafnar hér suður
með sjó.
Umhverfis- og skipulagssvið hefur nú tekið að sér
það verkefni að yfirfara tilnefningar og veita við-
urkenningar. Þetta var ekki auðvelt verkefni og marg-
ir verðugir garðar á listanum.
Í dag verða viðurkenningar fyrir 2012 afhentar með
athöfn í Víkingaheimum klukkan 17:00.
Viðurkenningar hljóta:
• Svavar Garðarsson
Hafnargata 42, fyrir vel uppgert eldra hús.
• Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, fyrir fallegan innri
garð.
• Jónas Jóhannesson og Erla Hildur Jónsdóttir
Borgarvegur 1, fyrir góða samþættingu á nýjum
palli og eldri gróðri.
• Jón Gunnarsson og Guðrún Gunnarsdóttir
Hraundalur 1, fyrir snyrtilegan og vel hirtan garð.
• Hannes Friðriksson og Þórunn Benediktsdóttir
Freyjuvellir 6, fyrir vel hannaðan og fallegan garð.
• Ásgeir Eiríksson og Ólöf Jónsdóttir
Heimavellir 13, fyrir góða samþættingu á villtri
náttúru og fallegum heimagarði.
• Örn Bergsteinsson og Þorgerður Aradóttir
Langholt 4, fyrir fallegan yndisgarð.
Fagurt umhverFi
›› Reykjanesbær – veitir viðurkenningar fyrir:
Freyjuvellir 6
Borgarvegur 1
Hafnargata 42
Heimavellir 13
Langholt 4
Hraundalur 1
HSS