Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.08.2012, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 16.08.2012, Blaðsíða 13
VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 16. ÁGÚST 2012 13 Ferðamenn komu fyrr í ár Svala Sveinsdóttir hjá B&B Guesthouse við Hringbraut í Reykjanesbæ segir að hún finni fyrir mikilli aukningu á straumi ferðamanna hingað. Hún segir að heimsóknir ferðamanna hafi hafist fyrr þetta árið en vana- lega og hún segir að það sé alls staðar fullt eftir því sem hún best veit. Hún segir ennfremur að töluvert af Íslendingum heimsæki gistiheimili hennar, bæði þeir sem séu áð leið í flug, sem og aðrir ferðalangar. Hún finnur fyrir því að þrátt fyrir að töluvert hafi aukist af heimagistingum og öðru slíku hér þá sé alltaf fólk að koma til hennar sem vantar her- bergi. Hún telur ekkert óvanalegt við ferðasumarið í ár fyrir utan aukinn fjölda ferðamanna en hún er ekki alls kostar sátt við aðstöðu til þess að taka á móti ferðamönnum við Leifsstöð. Þar er engin aðstaða að hennar sögn fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu. „Við megum hvergi leggja og það er ekkert pláss fyrir okkur til þess að þjónusta okkar gesti. Við megum hvergi vera og ég tel að þarna þurfi að breyta til, þessu er mjög ábótavant,“ sagði Svala í samtali við Víkurfréttir. Úr fiskvinnslu í ferðabransann Bræðurnir Þorsteinn, Gísli og Ein- ar Heiðarsynir hófu rekstur gisti- húss í Garðinum síðastliðið haust en fóru á fullt strax eftir áramót og líkar vel að sögn Þorsteins sem var að undirbúa komu hóps á gisti- heimilið þegar blaðamann Vík- urfrétta bar að Garði, en það er einmitt nafn gistihússins. „Þetta er búið að vera nokkuð gott í júní, júlí og ágúst, september lofar svo góðu. Við erum öðruvsí að því leyti að við erum bara með íbúðir í boði en við erum með gistiaðstöðu fyrir 30 manns,“ segir Þorsteinn. En fyrirtækið stílar aðallega inn á hópa. „Við byrjuðum með herbergi en breyttum því strax en við erum að reyna að koma til móts við fjölskyldur og hópa sem ferðast saman.“ Þeir bræður voru lengi vel með fiskvinnsku en ákváðu svo að breyta húsnæði sínu í gistiheimili. Það var það fyrsta sem kom til greina að sögn Þorsteins. Bókanir fara að langmestu leyti fram á netinu og þá með góðum fyrivara, en þó segir Þorsteinn að það hafi komið á óvart hve margir hreinlega detti inn af götunni og spyrjist fyrir um gistingu. Þorsteinn segir þetta vera skemmtilegt starf og hann hefur sérstaklega orð á því hve fólk gangi vel um og er ánægt hér á svæðinu. Hann telur svo vera að fólk gisti hér fyrstu nætur sínar á ferðalagi um landið og svo undir lok ferðar, það er því ekki mikið um langtímagist- ingu. Langflestir eru útlendingarnir en þó gistir þarna fólk sem er að sækja ættarmót og ferðir á vegum fyrirtækja Aukning í Sandgerði Valborg Jónsdóttir hjá Listatorgi í Sandgerði segist hafa orðið vör við mikla aukningu erlendra ferða- manna til Sandgerðis í sumar. Hún ásamt um tug annarra selja handverk og hönnun í Listatorg Gallerý í Sandgerði. Hún sagði að það komi fleiri rútur að heimsækja Fræðasetrið í Sandgerði en meira af því fólki mætti hugsanlega kíkja við í Gallerýið að hennar sögn, enda mikið af fallegum munum þar til sölu og sýnis. Töluverð umferð um Suðurstrandarveginn Sverrir Karl Björnsson starfsmaður á tjaldsvæðinu í Grindavík segir að umferðin sé töluverð um Suðurstrandarveginn. Hann segir hlutfalls- lega fleiri útlendinga koma á tjaldstæðið og þá eru það aðallega þýsku- mælandi ferðamenn frá Þýskalandi, Austurríki og Sviss. Hann telur að það sé töluverð aukning af ferðafólki sem heimsæki Grindavík þetta sumarið en hann starfaði einnig á tjaldstæðinu síðasta sumar. Auðvitað séu flestir sem heimsæki Bláa lónið en þó séu margir að skoða svæðið og keyra m.a. veginn sem liggur frá Grindavík að Reykjanesvita. Útlendingar sækja í fuglalífið í Sandgerði Reynir Sveinsson hjá Fræðasetrinu í Sandgerði segist finna fyrir gríð- arlega mikilli aukningu ferðamanna og margir greinilega að nýta sér Suðurstrandarveginn, en Reynir segist gefa sér góðan tíma til þess að spjalla við ferðamenn og forvitnast um ferðir þeirra og áhugasvið. Hann segir að margir hafi á orði að hér á svæðinu séu tvö af flottari tjaldstæðum landsins, þá á hann við tjaldstæðin í Grindavík og Sand- gerði. Reynir segir mikið af Þjóðverjum komi hingað og nýti sér þjónustu í Sand- gerði. Útlendingarnir sækja mikið í fuglalífið hérna á svæðinu. „Með tilkomu Ósabotnavegar opnast hér skemmtilegur hringur sem allur skaginn getur notið góðs af.“ Ekki annað eftirspurn „Það er líklega um 50% aukning í útleigu hjá okkur á þessu ári,“ segir Magnús Þorsteinsson hjá bílaleigunni Blue car rental. Fólk er mikið að sækjast í minni bíla að sögn Magnúsar og þá sérstaklega minni fjór- hjóladrifna. Magnús segist skynja það dálítið að fólk fari nánast sam- stundis af svæðinu og á höfðuborgarsvæðið eða út á land. Það er þróun sem Magnús vill sjá breytast til betri vegar. Við rekstur bílaleigu er mikið verið að sækja farþega upp í Leifsstöð en þar er aðstaðan sífellt að verða minni. „Aðstaðan á Keflavíkurflugvelli er nán- ast engin og með fjölgun farþega er aðstaðan sprungin,“ segir Magnús en hann kvartar þó ekki enda hefur verið mikið að gera í allt sumar og hefur bílaleiga ekki haft undan að anna eftirspurn eftir bílum. Strandblak og sjósund vinsælt „Aukningin er gífurleg,“ segir Kristinn Ólafsson sem sér um rekstur Byggðasafnsins og tjald- stæðisins á Garðskaga þegar hann er spurður um það hvort hann hafi orðið var við aukningu í heimsóknum ferðamanna í sum- ar. „Það var gott í fyrra en aukn- ingin er orðin miklu meiri, því get ég alveg lofað.“ Kristinn segir vera aukningu á heimsóknum Íslendinga á tjald- stæðið en auðvitað eru útlendingar í miklum meirihluta. Sérstaklega eru húsbílahópar duglegir í því að heim- sækja svæðið að hans sögn. Kristinn segir það vera verulega vinsælt að stinga sér til sunds við Garðskagann og hafi aldrei fleiri stundað sjósund þar en einmitt núna í sumar. „Það var talað um það í fyrra að bæta aðstöðuna fyrir sjósundið en það hefur lítið gerst í þeim málum enn sem komið er,“ segir Kristinn. Einn- ig hefur hann orðið var við það að strandblakvöllurinn sé mikið not- aður, ekki síst vegna veðurblíðunnar sem hefur verið í sumar.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.