Ægir - 01.10.2003, Blaðsíða 36
36
B R E Y T T F I S K I S K I P
Að undanförnu hefur verið
unnið að gagnberum breyting-
um á Gullhólma SH-201, sem
áður hét Þórður Jónasson EA-
350 og var síðast gerður út af
Síldarvinnslunni hf. Skipið er
nú í eigu Sigurðar Ágústssonar
hf. í Stykkishólmi.
Þórður Jónasson EA var upp-
sjávarveiðiskip, smíðað í Noregi
árið 1964, hækkað árið 1973 og
lengt árið 1986. Sigurður Ágústs-
son hf. mun gera skipið út til
línuveiða, en það er einnig hægt
að gera út til togveiða.
Breytingar á skipinu hófust
þann 1. september í Slippstöðinni
á Akureyri. Samkvæmt upplýs-
ingum Antons Benjamínssonar,
verkefnisstjóra hjá Slippstöðinni,
voru þar gerðar eftirfarandi breyt-
ingar á skipinu:
Afturskip
Afturskipinu var slegið út að og
byggt yfir þar sem nótagryfjan
var áður. Við það myndaðist nýtt
rými fyrir áhöfn sem tengist nú-
verandi vistarverum með hurð í
gegnum afturþil borðsalar. Í
þessu nýja rými er sauna, tvær
sturtur og tvær snyrtingar, ásamt
þvottavél og þurrkara. Þessi að-
gerð er einfaldlega til að bæta að-
stöðu áhafnar og uppfylla þær
kröfur sem nútíminn krefst.
Nýr toggálgi var byggður á
þessa nýju yfirbyggingu, einnig
einföld skutrenna þannig að skip-
ið geti áfram stundað togveiðar.
Lest
Allt sem tengdist því að lestin
var fyrst og fremst loðnulest áður
var fjarlægt, steypa brotin upp úr
lestargólfi og fjarlægð. Lestargólf
var síðan einangrað og steypt yfir
á nýjan leik.
Síður, fram- og afturgafl ásamt
lofti var einangrað og klætt,
tveimur kælibúntum komið fyrir
í lestinni til kælingar. Þá var út-
búin frystilest í forlestinni sem
verður fyrir beitu.
Vinnsluþilfar
Eins og í lest var allt sem tengd-
ist uppsjávarveiðum fjarlægt. Ný
stakkageymsla var smíðuð aftast
stjórnborðsmegin sem tengist
vistarverum skipsins. Þá voru
fjórir nýir lensibrunnar smíðaðir
og lensidælur settar í hvern
brunn.
Mustad línubeitningarvél var
komið fyrir í bakborðssíðu ásamt
lagningarlúgu og vökvadrifin
dráttarlúga sett fremst í stjórn-
borðssíðu.
Ryðfríum vinnslubúnaði, þvotta-
körum, móttöku og færiböndum
var komið fyrir í vinnslurýminu.
Nýr veltitankur
Báðar togvindur skipsins voru
bakborðsmegin á aðalþilfari, en
önnur vindan var færð yfir í
stjórnborðssíðu. Nýr veltitankur
var smíðaður og komið fyrir á efra
þilfari.
Slippstöðin hf. var eins og áður
segir aðalverktaki við breyting-
arnar á Gullhólma. Um raflagnir
sá Rafeyri á Akureyri. Mustad
línubeitningarvélin, sem sett var
niður í skipið, kemur frá Sjóvél-
um ehf.
Á línuveiðar til að byrja með
Ragnar Olsen, útgerðarstjóri hjá
Sigurði Ágústssyni hf. segir að
útgerð Gullhólma komi að hluta í
staðinn fyrir hörpudiskveiðar sem
fyrirtækið hefur byggt sína
vinnslu að stórum hluta á, en eins
og kunnugt er hafa þær veiðar
verið skornar niður vegna bágs
ástands hörpudiskstofnsins. Til að
byrja með fer skipið á línuveiðar.
Ragnar segir að þrettán manns
verði í áhöfn skipsins. Skipstjóri
er Valetínus Guðnason og Haf-
steinn Kristinsson yfirvélstjóri.
Þórður Jónasson breyttist
í Gullhólma
Valentínus Guðnason, skipstjóri Gull-
hólma SH.