Ægir - 01.11.2005, Side 13
13
F L U G U V E I Ð I
Rennex, dótturfyrirtæki 3X-Stáls
á Ísafirði, hefur sett á markað
fluguveiðihjól, sem er afrakstur
langrar þróunarvinnu. Steingrím-
ur Einarsson, framkvæmdastjóri
Rennex og einn af stærstu eig-
endum fyrirtækisins, segir að
fyrstu viðbrögð markaðarins séu
afar jákvæð og hann er bjartsýnn
á framhaldið.
„Rennex er dótturfyrirtæki 3X-
Stáls og hefur einbeitt sér að þró-
un og framleiðslu á eigin vörum.
Þar á meðal er þetta veiðihjól,
sem við köllum „Wish“ eða
„Ósk“. Fleiri vörur frá okkur eru í
framleiðslu og sölu, en fyrst og
fremst er Rennex að framleiða
vörur fyrir Marel og 3X-Stál,“
segir Steingrímur Einarsson.
Góð viðbrögð
Veiðihjólið frá Rennex, sem eins
og áður segir hefur verið nefnt
„Wish“, hefur lengi verið í þróun.
2005-útgáfan hefur verið prófuð
með góðum árangri og fastlega er
reiknað með að einhverjar breyt-
ingar og betrumbætur verði síðan
á 2006-útgáfunni. „Við höfum
fyrst og fremst verið að selja
veiðihjólin sjálfir. Stór hópur
manna hefur fylgst með þróunar-
vinnunni og ég hygg að við höf-
um fyrirfram selt um áttatíu hjól,
án þess að hafa auglýst þau sér-
staklega, enda viljum við fara ró-
lega í þetta og fullvinna vöruna
áður en við setjum kraft í mark-
aðssetninguna,“ segir Steingrím-
ur.
Áhersla á vandaða smíði
Steingrímur segir að við hönnun
hjólsins hafi verið lögð áhersla á
vandaða smíði og að það væri
sterkt og endingargott. Það telur
hann að hafi tekist og veiðimenn
sem þegar hafi prófað hjólið ljúki
á það lofsorði. „Ég tel að hönnun-
in á hjólinu hafi tekið mið af ís-
lenskum aðstæðum. Það má
kannski segja að hjólið sé ekki
það allra léttasta, en það má segja
að við höfum farið millileið í
þyngdinni. Reynslan er yfirleitt
sú að ef hjólin eru mjög létt eru
þau að sama skapi ekki eins
sterk,“ segir Steingrímur.
Eiga erindi á erlendan markað
Steingrímur segir að eftir áramót-
in fái Rennex nýjan vélbúnað sem
geri fyrirtækinu kleift að auka af-
köstin um helming. „Við erum
þrír fastráðnir starfsmenn og
einnig er hér lausráðið fólk,“ segir
Steingrímur.
Oft er talað um að illa sé búið
að nýsköpun í atvinnulífinu, að
hún fái ekki þann stuðning sem
nauðsynlegur er. Steingrímur seg-
ir að alltaf megi gera betur, en
hins vegar er hann afar sáttur við
þann stuðning sem Impra ný-
sköpunarmiðstöð á Akureyri hef-
ur veitt fyrirtækinu, bæði í formi
ráðgjafar og fjármuna.
„Við höfum enn sem komið er
eingöngu horft til innanlands-
markaðarins með Wish-veiðihjól-
ið og ég á von á því að við mun-
um gefa okkur eitt ár til viðbótar
hér innanlands áður en við förum
að horfa til útflutnings. Miðað
við viðtökurnar hér heima er ég
ekki í nokkrum vafa um að þessi
veiðihjól eiga erindi á erlendan
markað. Við erum klárlega með
samkeppnishæfa vöru og teljum
okkur geta keppt við sambæri-
lega erlenda vöru,“ segir Stein-
grímur, en það er engin tilviljun
að hann hefur verið að fást við
þróun á Wish-veiðihjólinu. Þar
kemur til að Steingrímur er sjálf-
ur fluguveiðimaður og sömuleiðis
er hann rennismiður. „Þetta er
fyrsta íslenska veiðihjólið, það er
að öllu leyti smíðað af okkur -
það eina sem er aðkeypt eru kúlu-
legur í hjólið,“ segir Steingrímur.
Wish - fyrsta íslenska
fluguveiðihjólið
- hannað og framleitt hjá Rennex á Ísafirði - dótturfyrirtæki 3X-Stál
Wish-fluguveiðihjólið hefur verið í þróun á undanförnum misserum og hefur reynslan
af því verið afar góð. Hér má sjá þetta fluguveiðihjól á bökkum Laxár í Kjós á liðnu
sumri.
aegir11_des2005.qxd 16.12.2005 15:46 Page 13