Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2007, Síða 10

Ægir - 01.01.2007, Síða 10
10 Þann 24. janúar sl. voru hundrað ár liðin frá því að fyrsti togarinn, sem var smíð- aður fyrir íslenska útgerð, kom til landsins. Þetta var Jón forseti, eign Alliance hf., sem var stofnað árið 1905 og var því elsta togarafélag á Íslandi. Jón forseti var smíðaður í Glasgow í Skotlandi og stór á þess tíma mælikvarða – 233 brúttórúmlestir. Koma Jóns forseta olli straumhvörfum í íslenskri útgerðar- og atvinnusögu og var upphafið að stórútgerð hér á landi. Alliance – bandalag sjómanna og verslunar Í Ægi var að sjálfsögðu greint frá þessum merkisviðburði í íslenskri útgerð með þessum hætti: „Jón forseti, hið nýja botn- vörpuskip Thors kaupmanns Jensens og þeirra 4 skipstjóra, Magnúsar Magnússonar, Jóns Ólafssonar, Halldórs Þor- steinssonar, Kolbeins Sigurðs- sonar og Jóns Sigurðssonar, kom hingað þ. 24. jan. beina leið frá skipasmíðastöðinni Glasgow á Skotlandi. Skipið er mjög fallegt útlits og vand- að að öllum frágangi. 86 netto smálestir að stærð, en 250 smálestir brúttó. Það er bygt úr 1/20 þuml. þykku járni, með 61/10 þuml. sverari keðju og 200 pd. Þyngri atkerum en Lloyds krefst. Skipið kostar hér um bil l145,000 kr., sjótrygging hér um bil 12,000 um árið.” Thor Jensen var hér sem sagt í eldlínunni. Jón Þ. Þór, sagnfræðingur, segir í bók sinni „Uppgangsár og barn- ingsskeið – Saga sjávarútvegs á Íslandi” að Thor hafi verið kominn á þá skoðun að all- nokkru áður að skútuútgerð ætti litla framtíð fyrir sér, Íslendingar yrðu að hefja útgerð botnvörpuskipa. Af þeim sökum hafi hann tekið erindi skútuskipstjóranna fagnandi, en áhuga þeirra hafi einmitt mátt hafa til marks um að hinir framsýnni í hópi útgerðarmanna og skipstjóra hafi áttað sig á því að Íslendingar yrðu að til- einka sér hina nýju veiði- aðferð og eignast skip, sem henni hentuðu. Nafn útgerð- arfélagsins, Alliance, mun hafa vísað til þess að banda- lag hafi komist á milli sjó- manna og verslunar. Áhersla á vandað skip Í minningum Thors Jensens, sem út komu á bók árið 1983, lýsti hann vinnunni við gerð smíðalýsingar Jóns forseta, sem hann sá um: „Lagði ég áherzlu á, að skipið væri sérlega vandað og traust. Ég kynnti mér smíða- reglur Lloyds og skipalýsing- ar, lét ekkert tækifæri ónotað til þess að fara út í enska tog- ara, er hingað komu, skoða þá í krók og kring, tala við skipsmenn um kosti þeirra og galla. Ég ákvað, að máttarjárn og plötur í skrokk hins nýja skips skyldu að styrkleika vera 20% umfram það, sem tilskilið var í smíðareglum Lloyds. Ýmsar aðrar end- urbætur ákvað ég að gera skyldi við smíði þessa togara, umfram það sem tíðkaðist á enskum togurum, t.d. að hásetaklefi yrði rýmri en venja var til, meiri þægindi fyrir skipverja, stærri vatnsílát í skipinu og margt fleira. Kjöl- lengd skipsins var ákveðin 130 ensk fet. Voru mjög fáir enskir togarar svo stórir þá, og engir stærri.” Teningnum kastað Þann 20. janúar 1906 voru undirritaðir samningar um smíði skipsins, en þá hafði umboðsmaður gengið frá samningum við Bowling skipasmíðastöðina í Glasgow um verkið. Vel gekk að smíða og var skipið tilbúið til reynslusiglingar á annan jóla- dag árið 1906 og afhent eig- endum sínum 18. janúar árið 1907. Þann sama dag var lagt af stað til Íslands og var Hall- dór Þorsteinsson við stýrið í brúnni. Hér var teningnum sem sagt kastað í íslenskri togara- útgerð. Næsti togari var Marz, sem kom til landsins í mars 1907. Síðan fylgdu í kjölfarið Snorri Sturluson og Freyr. S A G A N Öld liðin frá því að fyrsti togarinn kom til landsins Jón forseti kom til Íslands 24. janúar 1907. aegirJAN2007.indd 10 2/2/07 9:11:42 AM

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.