Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2007, Síða 11

Ægir - 01.01.2007, Síða 11
11 N Ý R B Á T U R Bátasmiðjan Trefjar í Hafn- arfirði hafa smíðað 15 brúttó- tonna yfirbyggðan bát, Kristin SH-712, sem er af gerðinni Cleopatra 38, fyrir Útgerð- arfélagið Breiðavík ehf. í Ólafsvík, en að því standa feðgarnir Bárður Guðmunds- son og Þorsteinn Bárðarson. Reyndar er Kristinn SH eilítið frábrugðinn hinum hefðbundnu Clopatra 38 bátum að því leyti að lest bátsins hefur verið stækkuð og þar rúmast 24 460 lítra kör. Á flestan veg er þessi nýi bátur þó mjög líkur hönnun aflabátanna frá Bolungarvík, Guðmundar og Hrólfs Einars- sona ÍS. Aðalvél Kristins SH er Caterpillar C18, 1015 hestöfl að stærð. Ljósavél er af gerð- inni Kohler. Í bátnum er ísk- rapavél. Siglingatækin eru af gerðinni Simrad og annaðist Mareind í Grundarfirði nið- ursetningu þeirra. Tvær vökvadrifnar hliðarskrúfur að framan og aftan eru tengdar við sjálfstýringu bátsins. Öryggisbúnaður er frá Viking. Borðsalur er í brú. Í lúkar er svefnpláss fyrir fjóra. Þar er eldunaraðstaða, örbylgjuofn og ísskápur. Búnaður til línuveiða kemur frá Beiti. Útgerð- arfélagið Breiðavík hefur gert út annan bát, Kristin SH-112, á línuveiðar og hefur verið stuðst við handbeitingu. Sami háttur verður hafður á á nýja bátnum og er ætlunin að gera báða bátana út, að minnsta kosti til að byrja með. Útgerð Kristins SH er afar öflug. Á síðasta ári nam aflinn um 1100 tonnum og var bróðurpartur aflans fluttur beint á markaði erlendis í flugi. 15-20 bátar á þessu ári Högni Bergþórsson hjá Trefj- um segir að flestallir yfir- byggðir Cleopatra 38 bátar séu með línubeitningarvél, en Kristinn SH sé undantekning frá reglunni. Högni segir að mikið sé framundan hjá Trefj- um í smíði slíkra báta fyrir innanlandsmarkað, fram í maí sér hann fyrir sér að allt að fimm bátar verði afhentir. „Mér sýnist að í það heila komum við til með að afhenda 15-20 báta á þessu ári og þar af verði röskur helmingur fyrir innanlands- markað. Allir þeir bátar verða af gerðinni Cleopatra 38, bæði óyfirbyggðir og yfir- byggðir. Fyrir erlendan mark- að erum við fyrst og fremst að smíða Cleopatra 33, sem eru ellefu brúttótonn, tíu metra langir. Flestir fara þess- ir bátar til nágrannalandanna; Noregs, Svíþjóðar, Bretlands- eyja og Grænlands, en við höfum einnig smíðað báta fyrir fjarlægari lönd,” segir Högni. Kristinn SH-712 til Ólafsvíkur aegirJAN2007.indd 11 2/2/07 9:11:43 AM

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.