Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2007, Blaðsíða 12

Ægir - 01.01.2007, Blaðsíða 12
12 Bláskeljarækt þykir vænleg atvinnugrein og telur formað- ur Skelræktar, hagsmunasam- taka skelræktenda, að nokkrir framleiðendur muni á þessu ári fjölga töluvert línum í sjó. Á ráðstefnu um skelrækt á Akureyri í janúar sl. kom fram að bláskel skortir inn á Evr- ópumarkað og þar hafi verið umtalsverð verðhækkun á skel undanfarin þrjú ár. „Það má segja að Norður- skel sé eina fyrirtækið enn sem komið er sem stefnir ein- dregið á útflutning. Síðan eru önnur fyrirtæki sem hafa verið í skelrækt í minna mæli og sett út allt frá 1 og upp í 10-15 línur fyrir innanlands- markað. Með þessum hætti hafa þessir framleiðendur fengið undanfarin ár svör við ýmsum mikilvægum spurn- ingum um skelræktina, en til þessa hafa menn ekki viljað fara út í þá fjárfestingu sem þarf til að fara út í umfangs- meiri skelrækt. Það má kannski segja sem svo að menn hafa viljað bíða og sjá hvernig skelræktinni hjá Norðurskel myndi reiða af. Þó má ekki gleyma því að menn hafa í gegnum árin verið að þreifa sig áfram í skelrækt hér á landi. Þannig var tilraunarækt í Arnarfirði komin nokkuð vel á veg fyrir nokkrum árum, en hún var stöðvuð vegna vísbendinga um að þungmálmurinn kadmium mældist yfir mörk- um í skeldýraholdi á svæð- inu. Þetta er ekki vandamál hjá öðrum ræktendum en Matís vinnur að rannsókn á kadmiummengun og er beðið niðurstaðna úr henni,” segir Jón Páll Baldvinsson, formað- ur Skelræktar, hagsmunasam- taka skelræktenda, sem voru stofnuð árið 2002. „Skelrækt” hafi ákveðið hlut- verk Á síðasta ári lauk hinu svo- kallaða „Kræklingaverkefni”, sem Veiðimálastofnun hafði yfirumsjón með og hafði það að markmiði að afla víðtækra upplýsinga um allt er lýtur að skelrækt á Íslandi. Jón Páll segir ekki vafa á því að verk- efnið hafi leitt í ljós afar mik- ilsverðar upplýsingar sem nýtist vel í framhaldinu. „Það er afar mikilvægt fyrir okkur sem eru að prófa okkur áfram í bláskeljaræktinni að eiga aðgang að slíkum upplýsinga- banka og við horfum til þess að í framhaldinu verði okkar samtök, Skelrækt, sá vett- vangur sem skelræktendur geti sótt upplýsingar og ráð- gjöf til. Í því skyni þurfum við að afla fjármagns til þess að geta stutt frumkvöðla og upp- byggingu í þessari nýju sjáv- arútvegsgrein. Þetta er núna til skoðunar. Við teljum líka mikilvægt að hafa afar náið samstarf við rannsóknastofn- S K E L R Æ K T Skelrækt á Íslandi er á ákveðnum tímamótum: Áhugaverð atvinnugrein og ræktendur í startholum „Ég tel að við Íslendingar eigum að stefna að útflutningi á ferskri, lifandi hágæðaskel. Hæsta verðið fyrir ferska, lifandi skel er komið í þrjár evrur á kílóið,” segir Jón Páll Baldvinsson, formaður Skelræktar. aegirJAN2007.indd 12 2/2/07 9:11:47 AM

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.