Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.01.2007, Qupperneq 15

Ægir - 01.01.2007, Qupperneq 15
15 íslenskir skelframleiðendur hefðu gæðamálin að leið- arljósi og stefndu hátt í þeim efnum. Peter Michelsen frá Vil- sund Trading í Danmörku sagði á ráðstefnunni að skort- ur væri á bláskel á markaðn- um. Ekki hjálpaði til að auk- inn hiti sjávar við strendur meginlands Evrópu hafi gert það að verkum að eiturþör- ungatímabil hafi lengst og framboðstímabil ræktenda því dregist saman. Þetta gerðist á sama tíma og aukin spurn væri eftir bláskel á Evrópu- markaði. Að mati þeirra sem til þekkja er ekki talin ógn frá stórum bláskeljaframleiðend- um í Kína og Chile. Kínverjar anni vart vaxandi eftirspurn í eigin landi og ólíklegt sé að Chilemenn fá leyfi til útflutn- ings á ferskri skel á Evrópu- markað. Mikilsverðra upplýsinga hefur verið aflað með Kræk- lingaverkefninu, sem Veiði- málastofnun hafði yfirumsjón með, lauk á síðasta ári. Björg Theodórsson, fiskeldisfræð- ingur, sagði að verkefnið hafi skilað mikilli þekkingu í skel- rækt og menn viti betur en áður hvar skóinn kreppi í bláskeljarækt við Ísland. Björn dró saman helstu niðurstöður af kræklingaverkefninu: - Mikil reynsla hefur skapast í kræklingarækt. - Mikilla upplýsinga hefur verið aflað um umhverf- isaðstæður til kræklinga- ræktar. - Í upphafi árs 2007 eru nokkur fyrirtæki með kræklingarækt á tilrauna- stigi víða um land – Norð- urskel í Hrísey er komin öllu lengra en önnur fyr- irtæki. - Aðlögun og þróun á rækt- unarbúnaði við íslenskar aðstæður hefur verið tíma- frek, en er vel á veg komin. - Mikill munur er á rækt- unarsvæðum og þarf að aðlaga ræktunarbúnað og tækni fyrir hvert svæði. - Fjölmörg álitleg ræktunar- svæði eru umhverfis landið og hafa mikla framleiðslu- möguleika. - Framleiðslukostnaður og arðsemi er ekki fyllilega þekkt, en mun koma betur í ljós á næstu 2-3 árum. SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS Gufudælur Afkastamiklir vinnuþjarkar HDS 13/24 PE Cage ■ Þrýstingur: 60-240 bör ■ Vatnsmagn: 680-1250 ltr/klstHDS 79 8 C Eco ■ Þrýstingur: 30-180 bör ■ Vatnsmagn: 350-750 ltr/klst HDS 895 S ■ Þrýstingur: 30-180 bör ■ Vatnsmagn: 470-1000 ltr/klst S K E L R Æ K T Hér er ársgömul skel á línunum hjá Norðurskel í Hrísey. Spurn eftir bláskel hefur verið að aukast og verð fyrir bláskel á Evrópumarkaði hefur hækkað um 70% á síðustu þremur árum. aegirJAN2007.indd 15 2/2/07 9:12:01 AM

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.