Ægir - 01.01.2007, Side 24
24
Tryggingamiðstöðin hefur gert
athyglisverðan samning við
Heilsuverndarstöðina ehf.
sem felur það í sér að þær
útgerðir sem tryggja hjá TM
geta sent starfsmenn sína í
heilsufarsskoðun, en á móti
fá útgerðirnar afslátt af trygg-
ingum sínum. Slíkur samning-
ur hefur aldrei áður verið
gerður hér á landi og er Sig-
urður Jónsson, tryggingaráð-
gjafi í skipatryggingum hjá
TM, spenntur að sjá hvernig
til tekst.
„Á síðustu árum hafa
áhafnatryggingar orðið æ
veigameiri þáttur í heildarið-
gjöldum útgerða vegna
skipatrygginga og tengdra
trygginga,” segir Sigurður
Jónsson í samtali við Ægi.
„Þetta má rekja til þess að
árið 2001 var skipaður gerð-
ardómur um kjör sjómanna í
kjölfar þess að ekki náðust
samningar milli LÍÚ og sam-
taka sjómanna. Niðurstaða
gerðardómsins fól það meðal
annars í sér að áhafnartrygg-
ingum var breytt og þær
færðar til sama horfs og
höfðu áður verið hjá far-
mönnum. Þetta þýðir að
bætur taka mið af ákvæðum
almennra skaðabótalaga, þó
að lágmarki í samræmi við
ákvæði siglingalaga. Bætur
sjómanns sem lendir í slysi,
sem leiðir til örorku, reiknast
út frá hans stöðu þ.e. aldri,
hversu lengi hann hafi stund-
að sjómennsku, hversu mikl-
um framtíðartekjum hann
muni tapa, hvort hann sé
með börn á framfærslu
o.s.frv. Það sama gildir um
sjómenn hvað þetta varðar
og fólk sem lendir t.d. í bíl-
slysi. Áður en þessi breyting
á áhafnartryggingunni tók
gildi árið 2001 var um að
ræða staðlaðar fjárhæðir
óháðar stöðu og högum.
Breytingin fól með öðrum
orðum það í sér að bætur
vegna alvarlegs líkamstjóns
eru einstaklingsmiðaðar. Og
þessir einstaklingar eru að fá
töluvert mikið hærri bætur
en áður og af þeim sökum
hafa iðgjöldin sem útgerðirn-
ar greiða hækkað töluvert frá
því sem áður var,” segir Sig-
urður.
Almennt nokkuð góð staða í
tryggingamálum sjómanna
Framangreint ákvæði um
greiðslu slysabóta til sjó-
manna nær aðeins til sjó-
manna sem starfa eftir kjara-
samnigi LÍÚ og sjómanna-
samtakanna vegna báta niður
í tólf rúmlestir, en til dæmis
smábátasjómenn eru ekki
innan þessa ramma. Hins
vegar er algengast að
smábáta sjómenn tryggi sig
samkvæmt eldri kjarasamn-
ingi LÍÚ, sem er frá 27. mars
1998. Þetta er út af fyrir sig
ágæt trygging, en bótafjár-
hæðir eru lægri og iðgjaldið
er þar af leiðandi lægra. En
smábátasjómenn geta þó líka
valið hina trygginguna, ef
þeir kjósa svo.
Sigurður telur að trygg-
ingamál smábátasjómanna
séu almennt í góðu lagi.
„Landssamband smábátaeig-
enda hefur rekið mikinn
áróður fyrir því að smábáta-
sjómenn slysatryggi sig. Og
bátar sem ekki er lögskrán-
ingarskylt á, þ.e. bátar undir
20 brúttótonnum, þurfa að
framvísa staðfestingu á
áhafnartryggingu til þess að
geta fengið haffærisskírteini,”
segir Sigurður.
Fleiri örorkutilfelli
Berlega hefur komið í ljós
hjá þeim lífeyrissjóðum, sem
sjómenn greiða til, að tíðni
örorku hjá sjómönnum hefur
hækkað verulega á und-
anförnum árum. Trygginga-
félögin finna líka fyrir þessu.
Tryggingabætur hafa hækkað
umtalsvert og segir Sigurður
að tryggingafélögin hafi m.a.
af þessum sökum neyðst til
þess að hækka iðgjöldin af
áhafnartryggingum ár frá ári.
„Raunar er það svo að
afkoman af þessum trygging-
um hjá okkur hefur verið
afskaplega slæm og ég hygg
að það sama sé uppi á ten-
ingnum hjá öðrum trygginga-
félögum. Iðgjöld hafa hrein-
T R Y G G I N G A M Á L
Athyglisverður samningur
um heilsufarsskoðun sjómanna
- spjallað við Sigurð Jónsson, tryggingarráðgjafa hjá Tryggingamiðstöðinni
Sigurður Jónsson, tryggingarráðgjafi hjá TM. Mynd: Sigurður Bogi Sævarsson.
aegirJAN2007.indd 24 2/2/07 9:12:27 AM