Ægir

Volume

Ægir - 01.01.2007, Page 26

Ægir - 01.01.2007, Page 26
26 „Slippunum og smiðjunum sem þarna voru tengist mikil og rík saga. Þegar mest var hygg ég að um hundrað manns hafi unnið þarna. Meðal ann- ars var smíðað stærsta skip sem til þess tíma hafði verið smíðað á Íslandi, Helgi Helga- son VE 343, og hefur enn ekki verið smíðað stærra tréskip á Íslandi. Slipparnir eiga því merka sögu og þeirri sögu þyrfti að gera skil á einhvern hátt. Mönnum sem unnu þarna og eru til frásagnar um starfsemina fer ört fækkandi,” segir Kristján Egilsson, for- stöðumaður Náttúrugripa- safnsins í Vestmannaeyjum. Óhætt er að taka undir orð Kristjáns um að slipparnir í Eyjum eigi sér merka sögu, sem er samofin atvinnusög- unni í Eyjum. Í bæði „Vest- urslipp” (Sælaslippur) og „Austurslipp” (Dráttarbraut Vestmannaeyja) voru smíð- aðir bátar og þeim haldið við og þegar starfsemin stóð í sem mestum blóma, vænt- anlega um miðja síðustu öld, voru örugglega á annað hundrað manns sem störfuðu í slippunum. Öflug starfsemi Ársæls Sveinssonar Segja má að punkturinn yfir i- ið í merkum kafla skipasmíða í Vestmannaeyjum hafi verið settur með niðurrifi Sælahúss- ins svokallaða í desember sl. Hús þetta var kennt við Ársæl Sveinsson, útgerðarmann og bæjarfulltrúa í Vestmanneyj- um, en hann keypti þessa lóð upp úr 1940 og byggði Sæla- húsið. Starfsemin þar var margvísleg og mikil. Í kjallara hússins var aðstaða fyrir slippinn og einn- ig var þar m.a. mötuneyti og verbúðir fyrir þá menn sem voru á bátum sem Ársæll Sveinsson gerði út, en það voru Ísleifur, Ísleifur II, Ísleif- ur III, Gísli Johnsen og Guð- rún VE. Ársæll var einnig með öfluga landvinnslu sem og verslun. Iðandi athafnasemi á slipp- svæðinu Árið 1958 var fyrirtækið Skipaviðgerðir stofnað og hóf það starfsemi í Sælaslipp. Einn af stofnendum þess fyr- irtækis var Eggert Ólafsson. Sonur hans, Kristján Eggerts- son, rafvirki og hafnarvörður í Eyjum, kom að rekstrinum í kringum gos og stýrði honum þar til hann lagðist af fyrir nokkrum árum. Kristján sagði S A G A N Merk saga slippanna í Eyjum - punktur settur aftan við sögu slippanna með niðurrifi Sælahússins Ætla má að á annað hundrað manns hafi unnið á athafnasvæði slippanna í Eyjum þegar mest var, en þeir voru kallaðir Austurslippur og Vesturslippur. Mynd: Kristján Egilsson. Sælahúsið í Eyjum á sér merka sögu, en það var kennt við Ársæl Sveinsson, athafnamann og bæjarfulltrúa. Mynd: Óskar P. Friðriksson. aegirJAN2007.indd 26 2/2/07 9:12:32 AM

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.