Ægir

Volume

Ægir - 01.01.2007, Page 30

Ægir - 01.01.2007, Page 30
30 unni af Íslendingum og í des- ember sl., þegar síðasti Íslendingurinn og þar með síðasti útlendingurinn við skólann lét af störfum, voru Namibíumenn teknir við starf- seminni að öllu leyti,” segir Víðir sem ytra kenndi aðal- lega siglingarfræði, líkt og hér heima. Nemendur við skólann Walvis Bay voru á hverri önn gjarnan 70 til 80 talsins, en skólaárinu sem hefst í janúar og lýkur í desember er skipt upp í tvær annir. Margir koma til námsins á vegum útgerð- anna sem þeir starfa hjá, enda eru þær að tryggja sér starfs- fólk til framtíðar. Greiða fyr- irtækin þá skólagjöld nem- endanna, sem eru jafnvel á launum á námstímanum. Minna lagt undir í fjárfestingum Vinnubrögð, tækni og hugs- unarháttur í sjávarútvegi í Namibíu er ólíkur því sem gerist hér á landi. Minna er lagt undir í fjárfestingum og alsiða er að sækja sjóinn á gömlum skipum sem keypt eru erlendis frá. „Á þeim tíma sem ég var þarna suður frá voru meðal annars keypt til landsins allnokkur skip sem höfðu áður verið gerð út hér heima, þá aðallega togarar í millistærð, 45 til 50 metra langir. Þarna get ég til dæmis nefnt Kambaröstina, Baldur Árna, Hólmatind, Júlíus Geir- mundsson og Krossvíkina og raunar mörg fleiri skip. Þann- ig eru togveiðar frá Namibíu talsvert miklar og eins línuút- gerð á 70 til 100 tonna bátum,” segir Víðir. Pilsiard veiða Namibíu- menn í nót og nota gjarnan til þess gamla nótabáta, til dæmis frá Noregi. Veiði á pilsiard hefur verið heldur brokkgeng á undanförnum árum. Einn helsti nytjastofn Namibíumanna er hake, sem og kingklip. Fyrrnefnda teg- undin líkist helst ýsu, en er þó talsvert lausari í sér og þar af leiðandi ekki eins góður til matar, að mati kunnugra. Þá veiðist skötuselur við strend- ur landsins en veiðar á honum eru stundaðar með togskipum. Erlendir aðilar umsvifamiklir „Við Íslendingarnir skynj- uðum að margir útgerð- armenn í Namibíu vildu halda sig við að sjómannamenntun í landinu yrði sótt til Suður- Afríku. Sumir börðust meira að segja gegn tilvist skólans í Walvis Bay,” segir Víðir sem bendir á að Spáverjar séu talsvert umsvifamiklir í sjáv- arútvegi í Namibíu og flytji fiskafurðir í talsvert miklum mæli til Spánar. „Stóra spurn- ingin er auðvitað sú hve mikið Spánverjar vilja leggja upp úr því að hafa Namibíu- menn við störf á sínum skip- um. Í dag er raunin ekki sú nema í mjög litlum mæli. Auðvitað er þó eðlilegast að Namibíumenn stundi veiðar innan eigin lögsögu sjálfir, rétt eins og við Íslendingar gerum, hversu lengi sem það tekst.” En það eru fleiri erlendar þjóðir en Spánverjar sem hafa látið að sér kveða í sjávarút- vegi í Afríkulandinu fjarlæga, sem hér er gert að umfjöll- unarefni. Í krafti þróunarað- stoðar Íslendinga hafa hér- lend fyrirtæki látið að sér kveða í landinu, meðal ann- ars voru stóru fisksölufyr- irtækin meðal hluthafa í Seaflowers, sem nú er nokk- uð stórt og umsvifamikið útgerðarfyrirtæki. Íslendingar komu þar að málum þegar fyrirtækið var stofnað í kring- um 1990, en losuðu um eign- arhlut sinn fyrir um fimm árum, enda var Seaflowers þá komið vel fyrir vind. „Namibíumenn eru orðnir vel sjálfbjarga með sinn sjáv- arútveg en þeir þyrftu að fá aukin tækfæri til að afla sér þekkingar á ákveðnum svið- um. Til þessa hafa áherslur S J Á V A R Ú T V E G U R Í N A M I B Í U „Namibíumenn eru orðnir vel sjálfbjarga með sinn sjávarútveg en þeir þyrftu að fá aukin tækfæri til að afla sér þekkingar á ákveðnum sviðum.” Einar Kr. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra kom til Namibíu á liðnu ári og kynnti sér hvernig sjávarútvegur í landinu hefur þróast á undanförnum árum. aegirJAN2007.indd 30 2/2/07 9:12:55 AM

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.