Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2007, Síða 33

Ægir - 01.01.2007, Síða 33
33 Samtak hefur smíðað 30 tonna bát af gerðinni Viking 1500 fyrir G.Ben ehf. á Litla- Árskógssandi, sem hefur feng- ið nafnið Sæþór EA-101. Fyrir á fyrirtækið tíu tonna bát, Arnþór EA-102, sem ætlunin er að selja. Útgerðarfélagið G. Ben ehf. er rótgróið, en Guð- mundur Benediktsson, sem nafn fyrirtækisins vísar til, lét smíða sinn fyrsta bát, Fagra- nesið EA, fyrir 42 árum. Afkomendur Guðmundar hafa haldið uppi merkinu æ síðan. Sonur hans, Hermann Guð- mundsson, stýrir G.Ben í dag og með honum í útgerðinni eru synir hans, Arnþór Elvar, Guðmundur og Heimir. Þeir bræður verða allir á nýja Sæþóri svo og sonur Arnþórs Elvars skipstjóra, Elvar Arn- þórsson. Öflugur bátur „Þetta er mjög öflugur og góður sjóbátur,” sagði Arnþór Elvar, skipstjóri, í samtali við Ægi. „Við verðum á netum í vetur – hérna fyrir norðan til að byrja með og síðan reikna ég með að við verðum eitt- hvað í Breiðafirðinum. Síðan er ætlunin að fara á línu,” bætti skipstjórinn við og tók fram að undanfarið ár hafi þeir G.Ben.-menn róið á línu á Arnþóri EA, sem er eins og fyrr segir aðeins tíu tonn. Arnþór Elvar segir að óneit- anlega sé sá bátur of lítill til að sækja langt og því hafi verið valinn sá kostur að láta smíða öflugan bát. Unnt er að koma fyrir 36 460 lítra körum í lest. Aðspurður segir Arnþór Elvar að útgerðin eigi ekki nægi- lega mikinn kvóta fyrir bát- inn. Unnið sé þó að því að kaupa kvóta, en ekki sé mikið framboð af honum nú um stundir. Vacumaðferðin virkar vel Sæþór EA er 15 metra langur og 4,22 metra breiður. Vélin er 850 hestafla Caterpillar með hefðbundnum skrúfu- búnaði frá Heklu. Hámarks- ganghraði er stilltur niður í 20 mílur en algengur sigling- arhraði er 15 til 18 mílur. Samkvæmt upplýsingum Snorra Haukssonar hjá Sam- taki er Sæþór smíðaður sam- kvæmt svokallaðri vacumað- ferð, sem gerir það að verk- um að báturinn er afar sterkur en jafnframt léttari en hefð- bundir plastbátar, sem skilar sér í minni olíueyðslu. Í lúkar, þar sem er rými fyrir 4 til 6 manns, eru kojur, bekkir og matarborð. Í eld- húskróknum er rafmagnselda- vél. Fyrir miðjum lúkarnum er skápur með DVD-spilara og flatsjónvarpi, örbylgjuofn og ísskápur. Undir stýrishúsi er aukaherbergi sem hægt er að nota sem svefnaðstöðu fyrir einn mann. Í stýrishúsi er stórt mæla- borð með siglingartækjum Brúnni ehf. á Akureyri og er aðstaða þar fyrir allt að þrjá menn. Aftan við stýrishúsið, bakborðsmegin er stór stakka- geymsla með sætisbekk og borði með vaski. Á þilfari er netaspil og borð frá Marax ehf., krani frá Barka ehf. og yfirbyggt skýli er á bakborðs- síðunni. Mikið framundan hjá Samtaki Snorri Hauksson hjá Samtaki segir að Sæþór sé stærsti plastbátur sem fyrirtækið hafi smíðað til þessa og segist hann vera mjög ánægður með útkomuna. Mikilsvert sé að sú tækni sem beitt hafi verið við byggingu bátsins skili ótví- ræðum árangri í mun minni olíueyðslu en ella. Snorri nefnir að gerð hafi verið sam- anburðarrannsókn á 15 tonna báti, annars vegar báti sem smíðaður er með vacumað- ferðinni og hins vegar hefð- bundnum plastbáti. Þessi samanburður hafi leitt í ljós tæplega 40% minni olíueyðslu bátanna sem smíðaðir eru með vacumaðferðinni – þ.e. aðferð sem var beitt við smíði Sæþórs. Snorri segir að mið verði tekið af hönnun Sæþórs við smíði þeirra 15 tonna báta sem Samtak kemur til með að smíða á þessu ári, en mikil verkefni eru framundan í smíði slíkra báta og reiknar Snorri með að afhenda sex báta á árinu. Allir verða þessir bátar yfirbyggðir og með línubeitningarútbúnaði. 30 tonna bátur af gerðinni Viking 1500 til G.Ben á Litla-Árskógssandi: Stærsti bátur Samtaks til þessa N Ý R B Á T U R Sæþór EA-101 við bryggju á Litla-Árskógssandi. Mynd: Bæjarpósturinn/Dalvík. aegirJAN2007.indd 33 2/2/07 9:13:13 AM

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.