Ægir - 01.01.2007, Síða 34
34
1500
Óskum útgerðinni til hamingju með SÆÞÓR EA-101
Samtak ehf
Skútahrauni 11 - 220 - Hafnarfjörður. Sími: 565-1850
samtak@samtak.is - www.samtak.is
- 30 Br.Tonn - 15 m - 36 kör - Nýr glæsilegur bátur -
Norsku samtökin Norges Fisk-
erlag, Fiskebåtredernes For-
bund og FHL sendu frá sér
sameiginlega fréttatilkynningu
í kjölfar undirritunar á samn-
ingi um norsk-íslensku síldina
18. janúar sl. þar sem þau
skömmuðust út í norsk stjórn-
völd fyrir heimild til handa
Íslendingum til veiða á
tæpum 35 þúsund tonnum af
síld í norskri lögsögu.
Í samningnum frá 1996 var
hlutur Íslendinga í norsk-
íslensku síldinni 15,54% en
lækkar samkvæmt nýja samn-
ingnum í 14,51%. Hins vegar
eykst hlutur Íslendinga í
norskri lögsögu úr 8.960
tonnum í 34.560 tonn.
Í áðurnefndri fréttatilkynn-
ingu er því haldið fram að
aukinn hlutur Íslendinga geri
það að verkum að verulega
þrengi að Norðmönnum á
síldarmörkuðum í Póllandi.
Fullyrt er að síðast þegar
Íslendingar hafi haft aðgang
að norskri löggsögu hafi
afleiðingin verið mikill sam-
dráttur á pólska síldarmark-
aðnum. „Þessi samningur
getur haft alvarlegar afleiðing-
ar fyrir norskan sjávarútveg.
Við reiknum með allt að 300
milljóna króna tapi í útflutn-
ingi vegna samningsins,”
sagði Audun Maråk, formaður
Fiskebåtredernes Forbund, í
fréttatilkynningunni.
Friðrik J. Arngrímsson,
framkvæmdastjóri LÍU, hefur
sent áðurnefndum hagsmuna-
samtökum í norskum sjáv-
arútvegi bréf þar sem hann
mótmælir harðlega fullyrðing-
um þeirra um að veiðar
íslenskra skipa á síld í norskri
löggsögu árið 2003 hafi
orsakað hrun á útflutningi
Norðmanna á síld til Póllands.
Friðrik segir í bréfinu að stað-
reyndirnar séu þær að árið
2002 hafi íslensk skip veitt
5.800 tonn af síld í norskri
lögsögu og 4.800 tonn árið
2003 (2.400 tonn af síldarflök-
um). Í lok bréfsins segir Frið-
rik að það sé í meira lagi
vafasamt að halda því fram
að útflutningur Íslendinga á
2.400 tonnum á pólskan
markað hafi valdið 42 þúsund
tonna samdrætti í útflutningi
Norðmanna á síld til Póllands
milli áranna 2002 og 2003.
Friðrik sendir Norðmönnum tóninn
Friðrik J. Arngrímsson.
S Í L D A R S A M N I N G A R
aegirJAN2007.indd 34 2/2/07 9:13:17 AM