Ægir

Årgang

Ægir - 01.06.2010, Side 19

Ægir - 01.06.2010, Side 19
19 Nægir markaðir Hausaði makríllinn fer í áframvinnslu í Austur-Evrópu en Björn Brimar segir að mun stærri markaður sé fyrir heil- frysta fiskinn. „Menn vilja makrílinn frekar heilfrystann og heilt yfir virðist okkur að nægur markaður sé fyrir þessa afurð. En allt er þetta mjög nýtt fyrir okkur þannig að við getum ekki talað af mikilli reynslu enn sem kom- ið er. Þetta sumar verður von- andi góður skóli fyrir okkur fyrir framtíðina í veiðum og vinnslu á makríl. Við erum að læra á hverjum degi. Síðan verður tíminn líka að leiða í ljós hvernig makríllinn hegðar sér hér í lögsögunni - það skiptir auðvitað mestu um framtíð veiðanna,” segir hann. Unnið er allan sólarhring- inn í vinnslunni hjá Ísfélag- inu, þegar nægur afli berst að landi. „Við erum með um 50 manns allt í allt á tveimur vöktum. Margt af þessu er skólafólk sem ekki hefði að svona mikilli vinnu að ganga að ef makríllinn væri ekki. Þannig að makríllinn kemur öllum vel og er kærkomin viðbót því sumrin hafa að undanförnu verið mjög róleg hjá okkur í frystingunni,” seg- ir Björn Brimar Hákonarson, framleiðslustjóri hjá Ísfélaginu í Vestmannaeyjum. M A K R Í L V I N N S L A Björn Brimar Hákonarson, framleiðslustjóri Ísfélagsins í Vestmannaeyjum. Myndir: Óskar Friðriksson Mjög mikilvægt er að hreinsa átuna úr makrílnum en þegar líður á sumarið eða haustið verður skipt yfir í heilfrystingu. SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS Háþrýstidælur Vinnuþjarkar ætlaðir til daglegra nota HD 10/25-4 S ■ Vinnuþrýstingur 30-250 bör ■ 500-1000 ltr/klst ■ Stillanlegur úði ■ Sápuskammtari ■ Túrbóstútur + 50% HD 6/16-4 M HD 6/16-4 MX ■ Vinnuþrýstingur 30-160 bör ■ 230-600 ltr/klst ■ 15 m slönguhjól ■ Stillanlegur úði ■ Sápuskammtari ■ Túrbóstútur + 50%

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.