Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.2010, Blaðsíða 22

Ægir - 01.06.2010, Blaðsíða 22
22 E N D U R V I N N S L A Efnamóttakan hf. í Gufunesi leggur aukna áherslu á að veita útgerðum þá þjónustu að taka á móti gömlum og úr sér gengnum veiðarfærum úr næloni. Þau eru síðan flutt er- lendis, jafnvel alla leið til Kína og í vaxandi mæli fara þau í gegnum endurvinnsluferli og verða að hráefni í nýjar fram- leiðsluvörur. Þannig hefur hringrás endurvinnslunnar hafið innreið sína í sjávarút- veginn eins og aðrar greinar og Efnamóttakan hf. sérhæfir sig í þjónustu við greinina á þessu sviði, bæði hvað varðar veiðarfærin og móttöku spilli- efna sem til falla um borð í skipum. Útgerðirnar skila veiðarfærunum inn „Í sjávarútveginum, eins og annars staðar í samfélaginu, er meðhöndlun úrgangs og spilliefna að beinast í auknum mæli í rétta farvegi til endur- vinnslu og förgunar,” segir Jón Hólmgeir Steingrímsson, framkvæmdastjóri Efnamót- tökunnar hf. Jón segir regluverkið þann drifkraft sem knýi þróunina áfram og beini spilliefnum frá skipum og bátum rétta boð- leiðir, sem og notuðu veiðar- færunum. „Hvað varðar veiðarfæra- móttökuna þá sjá útgerðirnar sjálfar um að safna þeim sam- an og koma til okkar. Útgerð- irnar þurfa líka að hreinsa úr nælonnetunum króka og kaðla áður en netunum er skilað inn til okkar en í sum- um sumum tilfellum er veið- arfærunum safnað saman í gáma á svæðum og þeir síðan sendir beint frá viðkomandi svæði utan til kaupenda,” segir Jón en eins og gefur að skilja eru veiðarfærin einna umfangsmesti úrgangurinn sem til fellur á skipum. Áætl- að er að yfir 1000 tonn af veiðarfæraúrgangi myndist árlega og sú tala gefur nokkra mynd af því sem fellur til í endurvinnslu en stefnt hefur verið að því að 60% af þess- um úrgangi fari til endur- vinnslu. Jón segir að kaupendur notuðu netanna séu víða um heim en Kínverjar eru mjög sterkir á þessu sviði. „Kaupendurnir bræða net- in upp og búa til úr þeim litl- ar perlur sem aftur eru hrá- efni í nýja framleiðslu. Endur- vinnsluiðnaðurinn í heiminum er orðinn mjög stór og sífellt hærra hlutfall sem í raun fer alveg hringinn, fer sem úr- gangur og skilar sér í nýrri vöru til baka.” Ýmis spilliefni falla til Þau spilliefni sem til falla í sjávarútveginum eru af ýms- um toga. Nefna má olíuvörur hverskonar, olíusíur og olíu- mengaðan tvist, rafgeyma, kæliefni á borð við freon, slökkviefni, leysiefni, máln- ingu og raftæki. Þessum efn- um tekur Efnamóttakan við og kemur í réttan farveg, end- urvinnslu eða förgun. „Ég held að almennt geti ég sagt að þessi úrgangs- og spilliefnamál séu í ágætum farvegi hjá útgerðunum enda hefur þegar verið greitt fyrir förgunina með úrvinnslugjaldi sem lagt er á við innflutning eða framleiðslu. Kostnaður við að koma efnunum í end- urvinnslu er því í langflestum tilfellum ekki annar en sá að hafa fyrir því að koma þeim á söfnunarstöð eða beint til okkar. Krafa samfélagsins er öll í þessa veru og sjávarút- vegurinn fylgir þessari þró- un,” segir Jón H. Steingríms- son. Efnamóttakan hf. í Gufunesi: Veiðarfæri í vaxandi mæli send í endurvinnslu - segir Jón Hólmgeir Steingrímsson, framkvæmdastjóri Jón H. Steingrímsson, framkvæmdastjóri Efnamóttökunnar hf. Notuð net komin í bagga og bíða þess að fara frá Efnamóttökunni til kaupenda úti í heimi, verða brædd upp og hráefnið síðan nýtt á nýjan leik í plastframleiðslu.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.