Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.2010, Síða 28

Ægir - 01.06.2010, Síða 28
28 H A F N I R „Tekjur okkar eru farnar að dreifast betur yfir árið en áður var. Fyrrihluta ársins er það loðnan, kolmunninn og síldin á sumrin og á haustin er það norsk-íslenska síldin fyrri hluta þess en sú íslenska þeg- ar lengra kemur fram á haust- ið. Og nú bætist makríllinn við á sumartímann. Þessu til við- bótar dreifast bolfisklandanir nokkuð jafnt yfir árið,” segir Steinþór Pétursson, hafnar- stjóri Fjarðabyggðarhafna. Í Fjarðabyggð eru sjö hafn- ir; þ.e. á Stöðvarfirði, Fá- skrúðsfirði, Reyðarfirði, Eski- firði, Norðfirði og í Mjóafirði, sem er ein minnsta höfn landsins. Síðan eitt stærsta hafnarmannvirkið í sveitarfé- laginu, höfnin á Mjóeyri við álver Alcoa í Reyðarfirði. Hafnarkanturinn við Mjóeyr- arhöfn er 380 metra langur og dýpi við hann 14,3 metrar sem er með því mesta sem gerist í höfnum á Íslandi. Er stærstu flutningaskipum því gerlegt að leggja þar að. Í gegnum höfnina fara aðföng og afurðir álversins auk þess sem margvíslegir aðrir flutn- ingar fara vaxandi. Þá hefur á hafnasvæðinu verið að byggj- ast upp margvísleg þjónustu- starfsemi í tengslum við álver- ið sem einnig nýtist sjávarút- vegi. Mikill afli um hafnirnar Vægi hafna Fjarðabyggðar í lönduðum afla á Íslandi er mikið. Erlend fiskiskip landa þúsundum, og stundum tug- þúsundum tonna árlega í Fjarðabyggð en árið 2009 var landað tæplega 300 þúsund tonnum í heild, eða sem nemur 25% af aflaheimildum í íslenskri lögsögu. Steinþór segir þessar tölur undirstrika hveru snar þáttur sjávarútveg- urinn er í Fjarðabyggð og hafnirnar lífæð samfélagsins. Uppistaðan í þessum afla er uppsjávarafli, eins og áður segir. „Umferð um hafnirnar í Fjarðabyggð hefur aukist tals- vert á síðustu misserum, því útgerðir og skipstjórnarmenn kunna vel að meta þá fjöl- þættu þjónustu sem hér býðst. Hafnaraðstaðan er eins og best verður á kosið og hér eru einnig öflug netaverk- stæði, smiðjur, löndunarþjón- usta, frystigeymslur og raunar allt sem sjávarútvegurinn kall- ar eftir,“ segir Steinþór. Kynningarstarf hafið á skemmtiferðaskipamarkaði Hafnir Fjarðabyggðar hafa tekið þátt í sameiginlegri markaðssetningu íslenskra hafna gagnvart erlendum skemmtiferðaskipum og tóku í fyrsta skipti þátt í slíkum kynningum erlendis síðastlið- ið haust. Markmiðið er að byggja upp þjónustu við skemmtiferðaskipin á Eskifirði og segir Steinþór að unnið hafi verið að verkefninu í samvinnu við aðrar stofnanir sveitarfélagsins og hagsmuna- aðila í ferðaþjónustu á svæð- inu. „Enn sem komið er höfum við ekki fengið svörun á þessa vinnu en okkur er sagt að búast megi við að það taki nokkur ár að komast í kast- ljósið með nýjan áfangastað. Við höldum því áfram þessu kynningarstarfi nú í ár og vonumst eftir að fara að sjá fyrstu viðbrögð á næsta ári. Eskifjörður er vel staðsettur gagnvart þjónustu við skemmtiferðaskipin og miklir möguleikar í ferðum bæði innan sveitarfélagsins og víð- ar,” segir Steinþór. Miklu magni af fiski landað í höfnum Fjarðabyggðar: Fjórðungur af úthlutuðum afla- heimildum um hafnirnar árlega Steinþór Pétursson með Mjóeyrarhöfn í baksýn. Nótabryggjan á Neskaupstað.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.