Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.2010, Síða 29

Ægir - 01.06.2010, Síða 29
29 H A F N I R Aðstaða bætt og aukin fyrir smábátana Uppbygging hafnarinnar á Mjóeyri var mikið átak og þar er komin mjög öflug vöruflut- ingahöfn til framtíðar. Stein- þór segir að nú sé röðin komin að við smærri nýfram- kvæmda- og viðhaldsverkefn- um. „Nú erum við að horfa á viðhald, bæta umhverfi og leggjum sérstaka áherslu á að bæta aðstöðu í smábátahöfn- unum. Við erum bæði að endurnýja gamlar flotbryggjur og bæta við, enda hefur smá- bátum farið fjölgandi vegna aukinnar skemmtibátaeignar og svo hefur strandveiðikerfið líka ýtt undir fjölgun báta. Á þessu ári munum við setja bryggjur á Norðfjörð, Eski- fjörð og Stöðvarfjörð auk þess sem nú er að fara í gang stækkun á smábátahöfninni á Reyðarfirði,” segir Steinþór en þessu til viðbótar hefur verið unnið að viðleguköntum á bæði Eskifirði og Norðfirði. Vöruflutningahöfnin á Mjó- eyri reynist hið besta og gegnir sínu hlutverki hvað varðar bæði aðföng og út- skipun frá álveri Alcoa. „Al- mennir vöruflutningar eru hins vegar eins og annars staðar nokkru minni en áður sökum samdráttar í þjóðfélag- inu en við búum vel að því að hafa yfir þessu mannvirki að ráða í framtíðinni,” segir Steinþór Pétursson, hafnar- stjóri í Fjarðabyggð. Eskifjörður og Eskifjarðarhöfn.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.