Ægir - 01.06.2010, Síða 30
30
H A F N I R
„Við fáum 30 skemmtiferða-
skip í sumar en þau voru 27 í
fyrra. Skemmtiferðaskipunum
hefur jafnt og þétt verið að
fjölga frá árinu 2005 og þau
skipta okkur umtalsverðu máli.
Okkur hentar best að fá með-
alstór skip, þessi með um
1500 farþega. Það er þægileg-
ur fjöldi við að eiga og viðráð-
anleg skip,” segir Guðmundur
M. Kristjánsson, hafnarstjóri
Hafna Ísafjarðarbæjar. Undir
hatti fyrirtækisins eru hafnirn-
ar á Ísafirði, Suðureyri, Flateyri
og Þingeyri.
„Skemmtiferðaskipin skil-
uðu okkur um 24 milljónum
króna í fyrra, nærfellt um
fjórðungi af tekjum hafnarinn-
ar. En fyrst og fremst erum við
að reka fiskihafnir á stöðunum
fjórum og tökum aðal tekjur
okkar af lönduðum afla. Helst
vildum við auðvitað hafa
meira af fiskinum til að landa
en okkar stærsti viðskiptavinur
er Hraðfrystihúsið Gunnvör
með sína togara. Síðan hefur
verið mikill stöðugleiki í lönd-
unum á Suðureyri undanfarin
ár og heldur verið bætt í báta-
flotann þar, frekar en hitt. Á
hinum stöðunum, Flareyri og
Þingeyri, hafa hins vegar verið
mun meiri sveiflur,” segir
Guðmundur.
Hvert tonn skiptir máli
Með brotthvarfi Kambs á Flat-
eyri á sínum tíma hurfu 10
þúsund tonn úr lönduðum
afla og þar með tekjugrunni
hafnarinnar og munar um
minna. Guðmundur segir
hvert tonn í lönduðum fiskafla
skipa miklu máli. Því sé þakk-
látt að fá viðbætur á borð við
þorskeldi og sjóstangveiði,
hvort tveggja nýsköpun í at-
vinnulífinu á norðanverðum
Vestfjörðum. Og loks er að
nefna strandveiðina sem bætt-
ist við í fyrra.
„Auðvitað er ekki um mjög
stóra tekjupósta að ræða fyrir
okkur í þessum greinum en
samt nýjar greinar sem vaxa
hægt og bítandi. Og strand-
veiðarnar hleypa lífi í hafnirn-
ar. Síðan gerum við okkur
vonir um að strandsiglingar
hefjist á nýjan leik eins og
áform samgönguráðherra
ganga út á en á sínum tíma
hurfu um 20% okkar tekna
með strandsiglingunum. Komi
þær aftur þá geta þær ekki
annað en haft jákvæð áhrif.”
Framkvæmt í sumar
Stórframkvæmdir hafa verið
hjá Höfnum Ísafjarðar síðustu
ár. Búið er að byggja upp Ás-
geirsbakka á Ísafirði, rúmlega
200 metra viðlegukant.
„Okkar orka hefur farið á
síðustu árum í að byggja upp
gömul hafnarmannvirki. Á
næsta ári stendur til að byggja
upp höfnina á Suðureyri og
nú í sumar er ráðgert að gera
nýja olíuhöfn við Mávagarð á
Ísafirði. Þá framkvæmd munu
heimaaðilar í KNH verktökum
á Ísafirði annast að undan-
gengnu útboði og sömu aðilar
annast líka vinnu við land
undir olíubirgðastöð þannig
að það falla nokkur verkefni
til í kringum okkar starfsemi í
sumar,” segir Guðmundur M.
Krirstjánsson, hafnarstjóri
Hafna Ísafjarðarbæjar.
Hafnir Ísafjarðarbæjar:
Skemmtiferðaskipin skila
hátt í fjórðungi ársteknanna
Guðmundur M. Kristjánsson við eitt 30 skemmtiferðaskipa sem hafa viðdvöl á Ísa-
firði í sumar.
Löndun á Ísafirði.