Ægir - 01.06.2010, Blaðsíða 31
31
Þ J Ó N U S T A
„Við sérhæfum okkur í að af-
greiða kost um borð í fiski-
skipin; mat og matartengdar
vörur. Sá liður í þjónustunni
hjá okkur sem hefur verið í
mikilli sókn er sala á tollvör-
um fyrir erlend skip og báta.
Það á við um skemmtiferða-
skip, ýmiskonar erlend skip
önnur sem hér hafa viðdvöl,
sem og fraktskip. Þetta á í
raun við um öll skip sem fara
frá Íslandi og koma við í er-
lendri höfn. Um fimmtungur af
starfsemi Ekrunnar árið um
kring snýst um kostþjónustu
við íslenska fiskiskipaflotann
en vegna skemmtiferðaskip-
anna er þessi skipakostþjón-
usta langstærst hjá okkur yfir
sumartímann,“ segir Jón Ingi
Einarsson, sölustjóri hjá fyrir-
tækinu Ekrunni. Fyrirtækið er
með starfsstöðvar á tveimur
stöðum á landinu, þ.e. í
Klettagörðum í Reykjavík og á
Akureyri. Kostur frá fyrirtæk-
inu er afgreiddur við skipshlið,
hvar sem er á landinu.
„Við bjóðum upp á heild-
arlausn fyrir skipin, þ.e. að
þau geta keypt í gengum okk-
ur alla þurrvöru, ferskvöru og
frystivöru í stað þess að leita
til margra aðila. Þetta er mikil
hagræðing fyrir brytann um
borð sem annast innkaupin,
fyrir svo utan að það er ólíkt
meira hagræði af því þegar
kemur að afgreiðslu á vörunni
um borð að sendingin komi
öll í einu og hægt sé að taka
á móti öllu í einu lagi. Og síð-
an er hitt að með þessum
hætti verða innkaupin fyrir
áhöfnina hagkvæmari,“ segir
Jón Ingi en fyrirvari á af-
greiðslu pöntunar hjá Ekrunni
er aðeins einn sólarhringur.
„Með öðrum orðum; ef ég
fæ pöntun frá skipi fyrir há-
degi í dag þá afgreiðum við
hana héðan fyrir hádegi á
morgun, annað hvort að
skipshlið ef skipið er í ná-
grenni við okkar starfsstöðvar
eða á flutning hjá Flytjanda. Á
þennan hátt erum við að
veita þjónustu okkar í öllum
höfnum landsins.”
Klæðskerasaumum að óskum
viðskiptavinarins
Jón Ingi segir engin skilyrði
um lágmarksmagn í innkaup-
um af tilteknum vörum og
þannig henti þjónusta Ekr-
unnar jafnt smærri bátum sem
stærri skipum.
„Við klæðskerasaumum
þjónustu okkar að því sem
viðskiptavinurinn vill hverju
sinni. Við erum með um 3000
vörunúmer í nýja vörulistan-
um okkar og birgjar að baki
okkur eru yfir 80 talsins,“ seg-
ir Jón Ingi en stærstur hluti
kostkaupa fiskiskipa hjá Ekr-
unni kemur frá frystitogurun-
um.
Eftir efnahagshrunið svo-
nefnda og hinn mikla við-
snúning sem varð í gengi
krónunnar segir Jón Ingi að
Ekran hafi fært töluvert af sín-
um innkaupum til innlendra
birgja. „Við vorum að flytja
inn mikið af tollfrjálsri vöru
líkt og kjöti, tóbaki, áfengi og
fleiri vörum áður, en frá árs-
byrjun 2008 höfum við skipt
alfarið við innlenda birgja.
Þannig njóta mörg innlend
fyrirtæki aukinna innkaupa
frá okkur. Við lítum á þetta
sem lóð á vogarskálina að
hjálpa í leiðinni innlendum
framleiðendum,“ segir Jón
Ingi Einarsson, sölustjóri Ekr-
unnar.
Ekran selur kostinn um borð:
Heildarþjónusta í boði
í öllum höfnum landsins
- segir Jón Ingi Einarsson, sölustjóri
Jón Ingi Einarsson, sölustjóri hjá Ekrunni. Vöruhús Ekrunnar. „Við bjóðum upp á heildarlausn fyrir skipin, þ.e. að þau geta
keypt í gengum okkur alla þurrvöru, ferskvöru og frystivöru í stað þess að leita til
margra aðila. Þetta er mikil hagræðing fyrir brytann um borð sem annast inn-
kaupin,” segir Jón Ingi.