Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.2011, Síða 8

Ægir - 01.07.2011, Síða 8
8 B Y G G Ð A K V Ó T I Á hverju ári hefur sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra til ráðstöfunar ákveðinn „pott“ af aflaheimildum sem nemur allt að 12.000 lestum af óslægðum botnfiski, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fisk- veiða, með síðari breytingum. Þessi „pottur“ er ekki ein- göngu hugsaður sem „byggða- kvótapottur“ heldur er einnig unnt að ráðstafa aflaheimild- unum í „pottinum“ til að mæta áföllum sem eru fyr- irsjáanleg vegna verulegra breytinga á aflamarki ein- stakra tegunda, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 10. gr. Undir þennan tölulið getur t.d. fallið sam- dráttur í skel- og rækjuveið- um. Í framkvæmd hafa á síð- ustu árum, þ.e. á árunum 2006-2010, farið árlega úr „pottinum“ um það bil 3000- 4400 lestir af aflaheimildum til byggðarlaga á grundvelli byggðasjónarmiða, sbr. 2. tö- lul. 1. mgr. 10. gr., og þá í fiskveiðitegundunum þorski, ýsu, ufsa og steinbít.1) Ráðherra ráðstafar byggða- kvótanum á „hverju fiskveiði- ári“. Í áliti umboðsmanns Al- þingis frá 14. desember 2009 í máli nr. 5379/2008 lýsir hann þeirri afstöðu sinni að ráðstöfun slíkra aflaheimilda skuli fara fram á hverju fisk- veiðiári. Frá þeirri „megin- reglu“ hafi sjávarútvegsráð- herra ekki heimild til að víkja með stjórnvaldsfyrirmælum nema til þess standi skýr heimild í lögum nr. 116/2006. Undantekning frá þessari meginreglu kemur fram í 2. málsl. b-liðar 2. tölul. 1. mgr. 10. gr. laganna en þar er mælt fyrir um að heimilt sé að ráðstafa aflaheimildum samkvæmt liðnum til allt að þriggja ára í senn. Eins og málsliðurinn er úr garði gerð- ur tekur heimildin ekki til ráðstöfunar byggðakvóta til minni byggðarlaga sem lent hafa í vanda vegna samdrátt- ar í sjávarútvegi og háð eru veiðum eða vinnslu á botn- fiski, sbr. a-lið 2. tölul. 1. mgr. 10. gr., heldur er heim- ildin aðeins bundin við ráð- stöfun byggðakvóta til byggð- arlaga sem hafa orðið fyrir óvæntri skerðingu á heildar- aflaheimildum fiskiskipa sem gerð hafa verið út og landað hafa afla í viðkomandi byggðarlögum og sem hefur haft veruleg áhrif á atvinnu- ástand í byggðarlögunum. Í umræddu áliti sínu túlkar um- boðsmaður framangreindan b-lið með þeim hætti að hann veiti ráðherra ekki heimild til að „úthluta byggðakvóta til einstakra fiskiskipa“ þannig að skip geti fengið úthlutað slíkum aflaheimildum, sem ráðherra hefur ráðstafað á einu fisk- veiðiári, á því næsta og þá jafnvel til allt að næstu þriggja fiskveiðiára. Ráðherra ráðstafar byggða- kvótanum til „byggðarlaga“ en ekki sveitarfélaga, eins og mælt er fyrir um í 1. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006. Við 1. umræðu á Alþingi um frum- varp til laga nr. 21/2007 um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, er lögfesti gildandi lagareglur um byggðakvóta, áréttaði þáverandi sjávarút- vegsráðherra, sem einnig var flutningsmaður frumvarpsins, þann mun sem gera yrði á hugtökunum byggðarlag og sveitarfélag, sbr. eftirfarandi ummæli: [...] En þarna er ekki átt við sveitarfélög, þannig að það sé alveg skýrt. Við erum að tala um einstök byggðar- lög. Þau geta verið mörg inn- an sama sveitarfélagsins. Þetta er gert til að koma til móts við minni byggðarlög- in.2) Samkvæmt framangreindu geta innan hvers sveitarfélags verið byggðarlög. Sem dæmi má nefna Fjallabyggð sem hefur innan sinna marka tvö byggðarlög, Ólafsfjörð og Siglufjörð. Í framkvæmd hef- ur sjávarútvegs- og landbún- aðarráðuneytið skilgreint byggðarlög sem byggðakjarn- ar sem liggja að sjó og eru háðir veiðum og/eða vinnslu á sjávarafla. Í þessu sambandi má benda á 2. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 83/2010, um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2009/2010. Almennar reglur um úthlutun byggðakvóta Í 1. málsl. 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 er kveðið á um að sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra setji í reglugerð almenn skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda samkvæmt 2. tölul. 1. mgr. til fiskiskipa innan einstakra byggðarlaga. Skuli þau skilyrði meðal ann- ars varða skráningarstað, skráningartíma, eignarhald, skiptingu milli fiskiskipa, lág- marksverð, tryggingar fyrir greiðslum og framkvæmd út- hlutunar. Í framkvæmd hefur ráð- herra sett slík skilyrði í reglu- gerðum fyrir hvert fiskveiðiár. Skilyrðin hafa meðal annars verið útfærð með þeim hætti að skip hafi leyfi til veiða í atvinnuskyni, séu skráð í við- komandi byggðarlagi á ákveðnum tíma og séu í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila sem hafa heimilis- fang í byggðarlagi á tiltekn- um tíma. Skilyrði af þessu tagi hafa gilt fyrir úthlutun byggðakvóta á öllu landinu. Með þeim hætti hefur verið tryggt ákveðið samræmi og jafnræði á milli þeirra sem áhuga hafa á því að nýta byggðakvóta til hagsbóta fyrir þau byggðarlög sem eiga í þeim vanda sem úthlutun byggðakvótans er ætlað að mæta. Í áliti umboðsmanns Alþingis frá 30. júní 2006 í máli nr. 4477/2005, þar sem reyndi á þágildandi 9. gr. laga nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, var gerð athuga- semd við það að tillögur ein- stakra sveitarstjórna, sem sjávarútvegsráðuneytið stað- festi, væru um margt ólíkar innbyrðis. Umboðsmaður tók fram að takmörk væru á því hve langt ráðherra mætti ganga við setningu reglna sem byggðust á mismunandi forsendum og útfærslum ein- stakra sveitarstjórna um hvernig ráðstöfun byggða- kvóta skyldi háttað. Það var afstaða umboðsmanns að ekki yrði önnur ályktun dreg- in af úthlutunarreglunum en að sjávarútvegsráðuneytið hefði ekki gætt þess að leggja efnislegt mat á tillögur ein- stakra sveitarstjórna þannig Stjórnsýslufyrirkomulag við úthlutun byggðakvóta

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.