Ægir - 01.07.2011, Síða 13
13
V O P N A F J Ö R Ð U R
eru víða um heim, að sögn
Magnúsar. „Þessi afurð fer í
mismunandi vinnslu, allt frá
niðursuðu, í reyking eða í
flökun fyrir neytendamarkað.
Makríll er mjög þekkt vara út
um allan heim og til að
mynda í Japan. Nú á dögun-
um eldaði japanski fulltrúi
kaupendanna fyrir okkur
makríl, bæði marineraðan og
pönnusteiktan og ég get vott-
að að þetta er herramanns-
matur. Makríllinn er nýr fyrir
okkur í vinnslunni og við er-
um að læra á hann en flest
bendir til að við getum reikn-
að með honum í vinnslunni
á komandi árum. Við sjáum
greinilega yfir vertíðina
hvernig makríllinn er að
breytast og fitna þannig að
hann er augljóslega að éta
mikið í sjónum,“ segir Magn-
ús og neitar því ekki að á
Vopnafirði hafi verið sann-
kölluð vertíðarstemning í
sumar.
„Hér hefur verið mikið líf
og fjör í sumar og allir lagst á
eitt að gera góða vertíð og fá
sem mest úr úr þessum afla.“
Mikil sjálfvirkni og tæknivæðing er í húsinu. Framleiðslan er um 250 tonn af fryst-
um afurðum á sólarhring.
Útskipun. Það er til marks um hversu hratt hluturinir ganga fyrir sig að við bryggj-
una eru á sama tíma fiskiskipið að landa makrílfarmi beint í hús og flutningaskip
að taka frystar afurðir og flytja á markað.
www.matis.is
Matís ohf. er í mörgum skilningi mikilvæg auðlind fyrir Íslendinga.
Fyrirtækið er lykilaðili í matvælarannsóknum og matvælaöryggi og hefur
að baki sér þekkingu 100 starfsmanna sem eru sérfræðingar og
vísindamenn á ólíkum sviðum.
Rannsóknir eru íslenskum sjávarútvegi mikilvægar því þæ styðja
framþróun, nýsköpun og markaðsstarf greinarinnar. Hjá Matís er stöðugt
unnið að fjölda rannsóknarverkefna sem tengjast sjávarútvegi með ýmsum
hætti. Þannig leitum við sífellt svara og vitum alltaf meira í dag en í gær.
Rannsóknir
í þágu sjávarútvegs
Stefna Matís er að
... vera framsækið þekkingarfyrirtæki sem eflir samkeppnishæfni
Íslands og skilar þannig tekjum til íslenska ríkisins
... vera eftirsóttur, krefjandi og spennandi vinnustaður með fyrsta
flokks aðstöðu þar sem starfsmenn njóta sín í starfi
... hafa hæft og ánægt starfsfólk
Gildi Matís
Frumkvæði
Sköpunarkraftur
Metnaður
Heilindi
Hlutverk Matís er að
... efla samkeppnishæfni íslenskra afurða og atvinnulífs
... tryggja matvælaöryggi og sjálfbæra nýtingu um-
hverfisins með rannsóknum, nýsköpun og þjónustu
... bæta lýðheilsu