Ægir - 01.07.2011, Page 17
17
B Ú S V Æ Ð A R A N N S Ó K N I R
þeim upplýsingum sem feng-
ust í rannsókninni í sumar.
„Við sáum þó strax mismun-
andi búsvæði eftir því hvern-
ig botngerðin og botnlagið
voru. Fjölbreytileiki lífríkis er
mismunandi eftir botngerð-
um. Á mjúkum botni er mikið
um lífverur sem grafa sig of-
an í botninn, meðan á hörð-
um botni eru gjarnan stærri
og áberandi lífverur. Til eru
lífverur sem eru búsvæða-
myndandi eins og kórall og
svampar. Í leiðangrinum í
júní sáum við til dæmis stór
svampasvæði með mikinn
fjölbreytileika. Einnig sáum
við breiður af Filograna imp-
lexa sem er kalkmyndandi
burstaormur sem getur mynd-
að stórar, þrívíðar kalkmynd-
anir á botninum sem minna á
kóral, sem er líka kalkmynd-
andi lífvera, en er í rauninni
ótal ormarör fléttuð saman. Á
sumum svæðum sáust fáar líf-
verur og lítill fjölbreytileiki og
var þá einkum um sandbotn
að ræða.“
Kostir myndatökubúnaðar
Kostir þess að nota mynda-
vélabúnað eru ótvíræðir.
Steinunn segir að hann gefi
starfsmönnum Hafrannsókna-
stofnunarinnar tækifæri til að
skanna sjávarbotninn á
ákveðnum svæðum án þess
að af því hljótist skemmdir.
Þá er hægt að skoða ákveðin
fyrirbæri á sjávarbotni ef því
er að skipta, mynda þau og
sjá nákvæmlega hvað um
ræðir. „Þetta flýtir náttúrlega
mikið fyrir okkur til að sjá
hvort eitthvað sérstakt sé við
svæðið; einhverjar mikilvægar
eða jafnvel viðkvæmar teg-
undir sem gefi tilefni til að
skoða það nánar. Þetta er
einnig góð aðferð ef við vilj-
um skoða samspil tegunda á
botninum. Hefðbundnar
rannsóknaaðferðir felast í að
safna dýrum af sjávarbotnin-
um með ýmsum tækjum, eins
og greip, sköfu eða sleða. Þá
eru dýrin tekin úr sýninu og
yfirleitt strax sett í geymslu-
vöka og skoðuð síðar. Þannig
er ekki hægt að skoða sam-
spil dýranna þegar þau voru
lifandi á botninum. Þessi að-
ferð veitir okkur því góðar
upplýsingar um slíkt. Einnig
höfum við haft tækifæri til að
skoða atferli til dæmis fiska á
meðan myndavélin er niðri á
sjávarbotninum. Við höfum
séð þá hegða sér á mismun-
andi hátt.
Markmið okkar með þess-
um rannsóknum er að auka
þekkingu okkar á búsvæðum
á hafsbotni og geta þannig
svarað spurningum um hvaða
hlutverki mismunandi bú-
svæði gegna í vistfræðilegu
tilliti og hvert mikilvægi
þeirra sé. Kröfur um meiri
þekkingu á vistfræði og líf-
fræðilegri fjölbreyttni í hafinu
eru sífellt að aukast. Kort-
lagning og aðgengilegt yfirlit
yfir búsvæði er því mikilvæg
viðbót við grundvöll vísinda-
legrar stjórnunar fiskveiðia og
mun gera Hafrannsóknastofn-
uninni betur kleift að veita
ráðgjöf á breiðari grunni en
áður og í samræmi við fjöl-
þjóðlegar samþykktir.“
Þorskurinn kúrir í töfraveröld hafsbotnsins.
Hér má sjá kalkmyndandi burstaorm sem ber latneska heitið
Filograna implexa.
Svampasvæði á hafsbotni.
Myndavélagrindin hífð út í sjó í Kolluál. Snæfellsnes í bak-
sýn.