Ægir - 01.07.2011, Qupperneq 20
20
F R É T T I R
Þann 1. september síðastliðinn hófst nýtt fisk-
veiðiár og hefur Fiskistofa úthlutað aflamarki fyrir
það. Úthlutunin fer fram á grundvelli
aflahlutdeilda að teknu tilliti til frádráttar
fyrir jöfnunaraðgerðir.
Úthlutað er 281.248 tonnum í þorskígildum talið
samanborið við um 261.100 þorskígildistonn á
sama tíma í fyrra, reiknað á þorskígildum fisk-
veiðiársins sem nú gengur í garð.
Aukninguna má að mestu rekja til aukinnar
úthlutunar í þorski og gullkarfa auk þess sem síld
er úthlutað nú, en ekki var búið að gefa út leyfi-
legan heildarafla í síld á sama tíma í fyrra.
Alls fá 612 skip úthlutað aflamarki í ár, fiskveiði-
árið 2011/2012, samanborið við 637 skip fisk-
veiðiárið 2010/2011. Mest fer til Kaldbaks EA 1
sem gerður er út frá Akureyri, um 8.200 þorsk-
ígildistonn eða 2,9% af úthlutuðum þorskígildum.
Úthlutað er til færri smábáta (smábáta með afla-
mark og krókaaflamark) á þessu fiskveiðiári en í
fyrra, 431 samanborið við 454. Fjöldi skipa í
„stærra kerfinu“ stendur nánast í stað,
þeim fjölgar um 2. Samkvæmt útgerðarflokkum
Fiskistofu fá skuttogarar úthlutað 53% af
heildaraflamarki í ár í þorskígildum talið, skip
með aflamark 33%, smábátar með aflamark 2%
og krókaaflamarksbátar 12%. Vakin er athygli á
því að krókaaflamarksbátar fá eingöngu úthlutað
þorski, ýsu, ufsa, gullkarfa, löngu, keilu og stein-
bít. Krókaaflamarksbátar fá úthlutað 29% af
magninu í þorskígildum talið þegar eingöngu litið
til þessara tegunda.
Helmingi minna magni er úthlutað sem skel-
og rækjubótum en í fyrra eða 1.006 þorskígildis-
tonnum og fara þau til 51 skips. Eingöngu
helmingi af skel- og rækjubótum er úthlutað
til skipa að sinni, skv. reglugerð nr. 737/2011
um skel- og rækjubætur.
Á næstu síðum eru töflur og samantektir um
aflamarksúthlutunina, skiptingu milli skipa,
hafna, fyrirtækja og svo framvegis.
Kvót inn 2011-2012