Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1967, Side 93

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1967, Side 93
Dictionary o/ American biography, sem Scribner útgáfan í New York tók að gefa út 1928 og National cyclopaedia of Ameri- ran biography, en útgáfa þess hófst 1892, gefið út af White í New York. Dictionnaire de biographie frangaise byrjaði að koma út í París 1938. Þýzkar æviskrár Allgemeine deutsche Riographie komu út í fimmtíu og sex bindum í Leipzig 1875—1912. Arftaki þeirrar skrár er Neue deutsche Biographie, er tók að koma út 1953, alls em nú komin þrettán bindi. Dansk biografisk Leksikon kom út á árunum 1933—44 í tuttugu og sex bindum auk viðbótarbindis. Norsk bio- grafisk leksikon er gefinn út af Aschehoug frá 1923, komin eru þrettán bindi. Svensk biograjisk lexikon er gefinn út af Bonniers útgáfunni, hingað til hafa komjð út fimm- tán bindi, og tók það alllangan tíma frá 1917—50. Verk þetta er mjög vandað. Flestar æviskrárnar, sem hér hafa verið taldar, em að koma út, í þeim er að finna geysilegan fróðleik, ekki aðeins um þá, sem þar eru upptaldir, heldur einnig um margvíslegustu málefni, sem skráðir höfðu einhver afskipti af. Slík rit sem þessi eru því .mikil náma um fleira en þröngar ævi- sögur. Skrár um starfsgreinar hafa hirzt, svo sem Baker’s Biographical dictionary of musicians, Biographia dramatica, Diction. naire des miniaturistes du moyen áge et de la Renaissance, kennt við Ancona, Bio- graphisches Lexikon der hervorragenden Ártzte aller Zeiten und Völker og fleiri, slík rit fylla oft eyður í öðrum æviskrár- ritum. Ein er sú alfræðihók, sem snertir mjög Alfrœðibœkur íslenzka sögu, og heitir Kulturhistorisk Leksikon for nordisk middelalder. Rit þetta tók að koma út 1956 og eru nú komin ellefu bindi. Því er ætlað að geyma allt það sem snertir norræna menningu frá víkingaöld fram til siðaskipta og því er það íslendingum nauðsynlegra en flest rit önnur, sem hér hafa talin verið. Rit þetta er sett saman af fræðimönnum á Norður- löndum, Dönum, Norðmönnum, íslending- um, Svíum og Finnum, greinarnar eru ým- ist á dönsku, sænsku eða norsku. Allur frágangur er með ágætum og band vandað. I þessu skrifi hafa verið taldar saman alfræðibækur, sem telja má vandaðar og viðurkenndar eru sem slíkar af þeim höf- undum, sem nefndir eru í heimildaskrá hér á eftir. Þótt hér séu taldar margar ágætar bæk- ur, þá er engin þeirra hafin yfir gagnrýni og allar eru þær meira og minna gallaðar, og jafnvel þær vönduðustu veila aðeins takmörkuð svör. Því eru þessi rit aðeins lykill að frekari þekkingu. Það eina, sem getur gegnt hlutverki fullkominnar alfræði- hókar, er stórt og vel skipulagt bókasafn. Heimildir Hart, L. H.: Comparison of encyclopedias ... London 1948. Walsh, J. P.: General encyclopedias in print. Newark 1964. Schneider, G.: Handbuch der Bibliographie. Leipzig 1930. Walford, A. J.: Guide to re- ference material. London 1963. Zischka, Gert A.: Index lexicorum: Bibliographie der lexikalischen Nachschlagswerke. Vín 1959. 299
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.