Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.09.2009, Qupperneq 15

Ægir - 01.09.2009, Qupperneq 15
15 R A N N S Ó K N I R þol þorskflaka úr misfersku hráefni. Þorskhnakkar voru unnir úr tveggja og sjö daga hráefni, þeim gaspakkað (50% CO2, 5% O2 og 45% N2) og fylgst með gæðaþátt- um með geymslu við -1.5°C. Niðurstöðurnar sýndu að þorshnakkar úr fiski sem unninn var 2 dögum frá veiði hélt ferskleikaeinkennum sín- um í a.m.k. 13 daga frá pökk- un og geymsluþolið var a.m.k 19 dagar frá pökkun. Hnakk- ar unnir úr 7 daga gömlum fiski héldu ferskleikaeinkenn- um í einungis 3 daga frá pökkun og lokum geymslu- þols var náð 5-7 dögum frá pökkun. Því má álykta að mjög takmarkaður ávinningur sé af gaspökkun og undir- kælingu ef hráefnið er gam- alt. Hinsvegar, ef nýveiddum flökum er gaspakkað og þau geymd við bestu aðstæður í undirkælingu má ná fram mun lengra ferskleikatímabili og geymsluþoli og þar með mun verðmætari afurð heldur en með hefðbundinni pökk- un. Miðlun og aðgengi upplýs- inga: Kæligátt Gæta þarf að verklagi og um- gengni um hráefni og fisk og gera þarf átak í meðhöndlun, vinnslu og flutningi fiskafurða til að tryggja betri gæði og verðmætari vörur. Þó að auk- in gæði skili ekki alltaf meiri verðmætum strax, munu auk- in gæði skila meiri árangri til framtíðar litið og eru miklir markaðslegir hagsmunir í húfi fyrir þjóðina. Ekki veitir af að byggja upp og styrkja ímynd Íslands og íslenskra afurða á þessum tímum. Unnið er nú að uppsetn- ingu hagnýtra leiðbeininga á veraldarvefnum fyrir kælingu og meðhöndlun á fiski á öll- um stigum virðiskeðjunnar frá miðum á markað. Leið- beiningarnar byggja á þeim rannsóknum sem fram- kvæmdar hafa verið innan kæliverkefnanna Chill-on, Hermun kæliferla og Kælibót, auk annarra rannsókna. Nið- urstöðum tilrauna verður miðlað á þann hátt að fyrir- tæki geti auðveldlega hagnýtt sér upplýsingar og séu fljót að greina ný tækifæri til að bæta innanhúsferla. Upplýs- ingarnar verða því settar fram á einfaldan og myndrænan hátt. Vísað verður í ítarefni sem aðgengilegt verður á raf- rænu formi fyrir þá sem vilja meiri og dýpri upplýsingar. Til að byrja með verður mest áhersla lögð á vinnslu á bolfiski (þorski) í kældar af- urðir en stefnt er að frekari uppbyggingu þar sem teknar verða inn fleiri fisktegundir og önnur matvæli og fleiri af- urðaflokkar. Mynd 2. Hitadreifing í lóðréttu sniði gegn- um stafla af frauð- plastkössum, sem innihalda ferskfisk- flök, reiknað með varma- og straum- fræðihugbúnaðinum ANSYS FLUENT. Loft Fiskur Frauðplast Mynd 1 sýnir að lengra geymsluþol roðkældra þorskhnakka (CBC- Combined Blast and Contact cooling) fæst vegna hægari vaxtar skemmdarbaktería (Photobacterium phosphoreum) og TMA myndunar (VK merkir vökvakæling á flökum; hráefnið upphaflega ísað eða geymt í ísþykkni). Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is Allt til línuveiða Starfstöðvar Ísfells og Ísnets: • Ísnet Akureyri - Fiskitangi • Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður - Óseyrarbraut 28 • Ísnet Hornafjörður - Ófeigstanga • Ísnet Húsavík - Uggahúsi • Ísnet Sauðárkrókur - Háeyri 1 • Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19 • Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28 www.isfell.is

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.