Ægir

Årgang

Ægir - 01.09.2009, Side 17

Ægir - 01.09.2009, Side 17
17 V I Ð T A L I Ð dáendur í hópum erlendra ferðamanna. „Margir Austur- landabúar þekkja siginn fisk og skötu, til dæmis Kóreu- menn, Kínverjar og Japanir, og verða líka yfirleitt alveg óðir í hamsana þótt þeim þyki sú fæða furðuleg á að líta í fyrstu. Selspikið skorar hins vegar ekki hjá Austur- landabúunum en þeir fást frekast til að borða það ef ég læt fylgja með að þessi afurð selsins sé náttúruaukandi. Fólk borðar auðvitað mat sem það trúir að hlaupi í klofið á því og auki æxlunarfýsnina!“ Alinn upp við ál og ætlar að gera út á ál Kjartan er gegnheill Skaftfell- ingur, fæddur og uppalinn á Syðri-Steinsmýri í Meðallandi. Bændur þar um slóðir voru mestu álaveiðimenn Íslands og stunduðu það meðal ann- ars að róa út á vötn, vopnaðir göfflum með löngum sköft- um. Álarnir hnipruðu sig sam- an í holum á botninum, margir saman, og bændur stungu niður í holurnar og náðu jafnvel mörgum í einu. Gildrur voru óþekktar til ála- veiða á þessum tíma. Svo fundu bændur upp á því að veiða ál á línu með góðum árangri. Kjartan nefnir þar til sögu granna sinn, Bjarnfreð bónda Ingimundarson á Efri- Steinsmýri, föður Magnúsar sjónvarpsfréttamanns og Að- alheiðar, formanns verka- kvennafélagsins Sóknar. Bjarnfreður og félagar notuðu litla öngla, suma bjuggu þeir sjálfir til úr títuprjónum, beittu ánamaðk og veiddu ál. Þessi merkilegi fiskur var aðallega borðaður kofareyktur en líka saltaður. Kjartan hefur um árabil selt ál sem hann kaupir af Mýrum í Borgarfirði eða á Járngerðarstöðum við Grinda- Kjartan færir skötu upp á disk. Helgistund að morgni á Sægreifanum: hafragrautur er fastur liður hjá starfsfólkinu i upphafi vinnudags. Frá vinstri: Hörður Guðmannsson allsherjarreddari, Elísabet Skúladóttir, sem annast veitingareksturinn, Kjartan Halldórsson Sægreifi og Kolbrún Benjamínsdóttir, starfsmaður í veitingahúsi og fiskbúð.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.