Ægir

Volume

Ægir - 01.09.2009, Page 23

Ægir - 01.09.2009, Page 23
en ekki hefur orðið vart við fullorðna fiska á Íslandsmiðum svo öruggt megi telja. Í marsralli 2008 veiddi Páll Pálsson ÍS tvær ljóskjöftur, aðra á um 70 m dýpi vestur af Kópanesi (65°51’N - 24°55’V), hina á 160-170 m dýpi vestur úr Breiða- firði (65°01’N - 25°38’V). Þær voru 13 og 17 cm langar. Gráröndungur, Chelon labrosus Ekki bar mikið á gráröndungi þetta ár. Þó fréttist af tveimur sem veiddust í silunganet, annar í Hornafirði en hinn á Bakkafirði. Rauðgreifi, Gyrinomimus sp. Hrafn Sveinbjarnarson GK veiddi 47 cm langan rauðgreifa í maí. Fiskurinn veiddist á 1370 m dýpi á grálúðuslóðinni djúpt vestur af landinu (65°26,50´N, 28°55,60´V). Þessi greifategund hefur einu sinni áður veiðst við Ísland. Það var á sama svæði árið 1995. Greifarnir eru fáséðir djúpfiskar sem finnast í öllum heimshöfum. Óljóst er með fjölda teg- unda því tiltölulega fá eintök eru til varðveitt. Af Íslandsmiðum eru þekkt tíu eintök, öll veidd djúpt vestur af landinu og virðist sem þar sé um fimm tegundir að ræða. Sérhver greifi sem berst til rannsókna er því mjög mikils virði. Pálsfiskur, Zenopsis conchifera Pálsfiskur hefur einu sinni veiðst áður hér við land, en það var árið 2002 er einn 24,5 cm langur fiskur fékkst í dragnót á Sandvík norðan Reykjaness. Árið 2008 veiddust alls fimm pálsfiskar við landið frá því í febrúar og fram í júní. Einn veiddist í dragnót, hinir í botnvörpu og veiðisvæðið var frá Grindavíkurdjúpi (63°29’N-22°35’V), um Eldeyjarboða (63°42’N-23°35’V) og Jökultungu (64°17’N-24°40’V) norður undir Svörtu- loft (64°52’N-24°04’V) á 80-420 m dýpi. Þessir fiskar mældust 26-31 cm á lengd. Stóri bramafiskur, Brama brama Árið 2007 veiddust all nokkrir Stóru bramafiskar djúpt suður af Vestmanna- eyjum, en árið 2008 brá svo við að þessi tegund veiddist undan allri Suðurströnd- inni, frá Öræfagrunni, vestur á Selvogs- banka og út eftir Reykjanesshrygg. Stóri bramafiskur veiddist þarna í allar gerðir veiðarfæra á 100 til 670 m dýpi. Alls fékk Hafrannsóknastofnun 34 fiska til rann- sókna, þeir voru 49-57 cm langir og 1,5- 2,0 kg að þyngd. Við skoðun á þessum fiskum kom í ljós að sumir þeirra voru með bandorms- lirfur í holdinu. Þarna er um að ræða tegund sem ber vísindanafnið Gymnor- hynchus gigas. Ormur þessi lifir í melt- ingarvegi ýmissa hákarla, en lirfustig teg- undarinnar tekur sér bólfestu í holdi fiska, einkum eru þær þekktar í stóra bramafiski. Þessar lirfur eru mjóar, 2-3 mm, en geta verið 45-50 cm langar og hlykkjast þær í bugðum og bogum um holdið. Þó svo þessi ormur geri mannin- um ekkert mein, þá eru sýktir fiskar lítt kræsilegir til átu. Þannig guggnaði höf- undur á því að éta annað flakið af stóra bramafiski sem hann hugðist steikja og éta, því ormarnir höfðu skorist sundur við flökun fisksins og það var ógjörning- ur að tína alla ormaspottana úr fiskinum. Annars er stóri bramafiskur uppsjávar- og miðsævisfiskur sem hefur veiðst niður á 1000 m dýpi. Í Norðaustur-Atlantshafi er hann að finna allt frá Suðvestur-Afríku og norður til Bretlandseyja og stundum vestan þeirra og í Norðursjó og til Nor- egs flækist hann einnig. Þá hefur hann flækst alloft til Íslandsmiða. Svarthveðnir, Centrolophus niger Alls veiddust fjórir svarthveðnar á ár- inu. Sighvatur GK veiddi einn í Grinda- víkurdjúpi, Brimnes annan í Jökuldjúpi og síðan veiddust tveir í í haustralli Haf- rannsóknastofnunar í Skerjadjúpi. Þessir fiskar voru 43-63 cm langir. Svarthveðnir líkist mjög frænda sínum bretahveðni, best er að þekkja þá sundur á því að á svarthveðni byrjar bakugginn aftan við eða á móts við eyruggarætur en á bretahveðni byrjar bakuggi framan við rætur eyrugga. Bretahveðnir, Schedophilus medusop- hagus Slæðingur af bretahveðni veiddist í flotvörpu við veiðar á síld og makríl á svæðinu frá Rósagarði og norður undir Þórsbanka. Bretahveðnir veiddist einnig á þessum slóðum í haustralli Hafrann- sóknastofnunarinnar og á djúpslóð und- an Suður- og Vesturlandi allt norður á grálúðuslóð vestur af Víkurál. Alls voru 33 fiskar mældir og voru þeir 29-47 cm langir. Afbrigðilegir fiskar Fiskar með afbrigðilegt litafar sem bárust voru appelsínugulur ufsi sem Jonni SI veiddi á Siglunesgrunni og bleik ýsa sem Kleifarberg ÓF fékk suðvestur af Eldeyjarboða. Tveir fiskar bárust með sérkennileg- ann útvöxt, annars vegar var það grá- sleppa sem veiddist norðan við Grímsey og svo ufsi sem Baldvin Njálsson GK veiddi á Stokksnesgrunni. Í báðum tilfell- um var um stór æxli að ræða. Hryggleysingjar Nokkrir hryggleysingjar bárust til greiningar. Þar á meðal var risasmokkur (Architeuthis sp.) sem Steinunn SF veiddi á 90 m dýpi á Látragrunni (65°20’ N - 25°08’ V). Lengd smokksins með örmum var 260 cm, sjálf kápan var 75 cm. Einnig barst tindakrabbi (Neolithodes grimaldii) sem Baldvin Njálsson GK fékk á 950- 1040 m dýpi vestur af Snæfellsnesi (65°03´N - 28°11’V). Í haustralli Hafrannsóknastofnunar á rs. Árna Friðrikssyni RE og Bjarna Sæ- mundssyni RE umhverfis land í október veiddust nokkrar athyglisverðar tegundir, til viðbótar þeim sem þegar hafa verið nefndar. Þær helstu voru digurnefur (Hydrolagus mirabilis), djúpskata (Ra- jella bathyphila), bláskata (Rajella bigel- owi), fjölbroddabakur (Polyacanthon- otus rissoanus), uggi (Scopelosaurus lepidus), flathaus (Cataetyx laticeps), trjónuhali (Caelorinchus caelorhinc- us), mjóhali (Coryphaenoides brevi- barbis), sædjöfull (Ceratias holboelli), surtur (Cryptopsaras couesii), bjúgtanni (Anoplogaster cornuta), rósafiskur (Rhodichthys regina), brynstirtla (Tra- churus trachurus), ennisfiskur (Platy- beryx opalescens), grænlandamjóri (Lycodes adolfi), flekkjaglitnir (Callion- ymus maculatus). Ýmsar aðrar fáséðar tegundir veiddust í leiðöngrum Hafrannsóknastofnunarinn- ar, t.d. náskata (Leucoraja fullonica), bletta (Gaidropsarus vulgaris), kamb- hríslungur (Chirolophis ascanii), skrautglitnir (Callionymus lyra) og litli flóki (Phrynorhombus norvegicus). Helstu heimildir Nelson, J.P. 1986. Scophthalmidae. Í: Fishes of the North-eastern Atlantic and the Mediterranean. 3: 1287-1293. Gunnar Jónsson og Jónbjörn Pálsson. 2006. Íslenskir fiskar. Edda, Reykjavík. 336 bls. Paxton, J.R. 1989. Synopsis of the whalefishes (Family Cetomimidae) with description of four new genera. Records of the Australian Mu- seum, 41: 135-206. Quéro, J.-C., M.H. Du Buit, J.J. Vayne. 1997. Les captures de poissons á affinités tropicales le long des cotes atlantiques européennes. Ann. Soc. Sci. Nat. Charene-Marit. 8: 651-673. Seyda, S. 1976. On a case of a mass invasion of cestode Gymnor- hynchus (Gymnorhynchus) gigas (Cuvier 1817) larvae in muscles of Brama raii (Bloch 1791). Acta Ichthyologica Piscatoria 1976; 6: 59-65. S J A L d G Æ F I R F I S K A R Rauðgreifi sem Hrafn Sveinbjarnarson GK veiddi á grálúðuslóðinni árið 2008. Pálsfiskur sem Sturlaugur H. Böðvarsson AK veiddi á Jökultungu árið 2008. Stóri bramafiskur var nokkuð algengur við suður- ströndina árið 2008. 23

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.