Ægir

Årgang

Ægir - 01.09.2009, Side 25

Ægir - 01.09.2009, Side 25
25 Þ J Ó N U S T A ir skipa frá rekstri. „Til að mynda strandaði skemmti- ferðaskip í Færeyjum og í stað þess að fara í slipptöku erlendis kom skipið hingað til lands þar sem við löguðum skipið þannig að það gæti haldið ferð sinni áfram með farþegana. Sömuleiðis hef ég gert við skrokkskemmdir neðansjávar á mörgum skip- um og er mér meðal annars minnistætt þegar ég gerði við flutningaskip á Grundartanga sem hafði tekið það illa niðri út af Álftanesi að við þurftum að vinna í vinnupöllum undir skipinu til að geta gert við sex stór göt sem á það komu. Stærsta platan sem ég formaði og sauð fyrir var 2x6 metrar! Starfsmenn eru jafnan 3-4 í hverju verki þegar unnið er að viðgerð neðan sjávar og jafnvel fleiri ef þannig háttar. Til að lágmarka kostnað við einfaldar skoðanir á skips- hlutum þá erum við einnig þeir einu hér á landi sem hafa litla fjarstýrða myndavél til verksins og þá þarf einungis til þess einn starfsmann á litl- um sendibíl.“ Kjartan segir verkefnin fjölþætt, t.d. skoðanir á botni, botnhreinsun, skrúfuviðgerð- ir, lagfæringar á botnstykkjum og bolviðgerðir. „Með þeim aðferðum sem við beitum skiptum við um plötur í skipsskrokkum, gerum við skrúfur, réttum bognar skrúf- ur með þar til gerðum tjökk- um eða skiptum um þétti- hringi á skrúfuás. Hér áður fyrr þurftu skip umsvifalaust að fara í slipp ef leki byrjaði með skrúfuásnum en nú framkvæmum við slíkar við- gerðir í þurrkví. Þetta er mikil bylting fyrir útgerðirnar. Sömuleiðis er algengt að við tökum að okkur að hreinsa veiðarfæri úr skrúfum þegar skip hafa orðið fyrir að fá þau í hana. Í slíkum verkefnum skiptir miklu að fá fagmenn að verkinu því það hefur oft hent að ekki hefur verið hreinsað nægilega vel úr skrúfum og veiðarfærabútar farið í þéttihringinn á skrúfu- ásnum og eyðilagt hann. Fag- menn eins og við kunnum að forðast að slíkt gerist, enda kostnaðarsamt,“ segir Kjartan og tekur fram að með hinni nýju tækni sé hægt að bjóða upp á varanlegar viðgerðir í stað bráðabirgðaviðgerða eins og áður tíðkuðust. Förum á staðinn „Þessi þjónusta hentar mjög stórum hluta flotans en síst smærri bátum sem auðvelt er að taka á land,” segir Kjartan en starfsmenn Djúptækni sinna verkefnum bæði hér innanlands og erlendis. „Einn af stórum kostum við þetta er að viðgerðirnar eru framkvæmdar þar sem skipið er statt í höfn vegna hefðbundinnar þjónustu. Við komum með allan búnað og mannskap sem þarf til verks- ins þar sem skipið er statt hverju sinni og með góðu samstarfi við útgerð skipsins og skipulagi er því hægt að nýta tímann vel til að forðast eða lágmarka tafir svo ekki verði rask siglingaáætlun. Það sparar tíma, fyrirhöfn og kostnað,“ segir Kjartan Hauks- son, eigandi Djúptækni. www.djuptaekni.is Marel Food Systems hf. hefur tilkynnt að frá næstu áramót- um muni nafni fyrirtækisins breytt í Marel hf. Nafnabreyt- ingin er liður í samþættingu þeirra fyrirtækja sem keypt hafa verið á undaförnum ár- um og munu þau öll samein- ast undir hinu nýja vörumerki og fyrirtækjanafni. Hin vöru- merkin sem fyrirtækið hefur á að skipa kunna að vera notuð áfram í tengslum við ákveðn- ar vörulínur og í tilteknum markaðsgeirum. Gamla Marel nafnið aftur í notkun Eins og sjá má eru aðstæðar til vinnu í þurrkvínni nokkuð góðar og því hægt að framkvæma ýmis verk neðansjávar sem ógjörningur hefði verið áður. Suðuvinna í djúpinu. F R É T T I R

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.