Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.09.2009, Qupperneq 26

Ægir - 01.09.2009, Qupperneq 26
26 Kerfisbundin vöktun á óæski- legum efnum í sjávarafurðum hófst árið 2003, að frum- kvæði sjávarútvegsráðuneytis- ins. Um er að ræða vöktun bæði í afurðum til manneldis og einnig í afurðum lýsis- og mjöliðnaðar. Helstu nytjateg- undir sjávarfangs eru vaktað- ar og er fjöldi tegunda óæskilgra efna sem rannsök- uð eru á bilinu 60-90. Þeirra á meðal eru díoxín og díoxín- lík PCB-efni en þau voru m.a. hluti af sérstöku átaki sem ESB mæltist til að færi fram í aðildarlöndum þess, auk Nor- egs og Íslands og stóð það átak til og með árinu 2006. Einnig eru m.a. mæld PCB, þungmálmar, varnarefni og PAH efni. Langtímaverkefni Verkefninu „Óæskileg efni í sjávarfangi“, var hrint úr vör á árinu 2003. Nú þegar liggja fyrir töluverðar upplýsingar um magn efna í íslenskum sjávarafurðum, en mikilvægt er að benda á þá staðreynd að mat á ástandi íslenskra sjávarafurða með tilliti til óæskilegra efna er langtíma- verkefni sem verður einungis framkvæmt með sívirkri vökt- un. Með þessu verkefni er verið að afla upplýsinga á þessu sviði í fyrsta sinn fyrir margar nytjategundir sjávar- fangs. Tilgangurinn með vöktuninni er að safna gögn- um til þess að unnt sé að sýna fram á öryggi íslenskra matvæla, vernda ímynd og tryggja útflutningstekjur vegna sölu á íslenskum sjávarafurð- um. Gögnin nýtast ennfremur við áhættumat og eru mikil- vægt verkfæri í markaðskynn- ingum á íslensku sjávarfangi. Óæskileg efni eru mýmörg í umhverfi okkar og sum þeirra geta haft neikvæð áhrif á heilsu manna, en áhrif þeirra eru í beinu sambandi við styrk í umhverfi og matvæl- um. Vísindaniðurstöður sem viðbragð við neikvæðri umfjöllun Umfjöllun um aðskotaefni í sjávarafurðum, bæði í al- mennum fjölmiðlum og í vís- indaritum, hefur margoft kraf- ist viðbragða íslenskra stjórn- valda. Nauðsynlegt er að hafa til taks vísindaniðurstöður sem sýna fram á raunverulegt ástand íslenskra sjávarafurða til þess að koma í veg fyrir tjón sem getur hlotist af nei- kvæðri umfjöllun. Ennfremur eru mörk aðskotaefna í sí- felldri endurskoðun og er mikilvægt fyrir Íslendinga að taka þátt í slíkri endurskoðun og styðja mál sitt með vís- indagögnum. Sem dæmi má nefna efnahagslegan skaða sem fiskeldisiðnaðurinn varð fyrir þegar út kom vísinda- grein í mjög virtu tímariti en þar kom fram að styrkur óæskilegra efna væri mun hærri í eldislaxi samanborið við villtan lax. Gefnar hafa verið út skýrsl- ur á ensku með niðurstöðum þessarar vöktunar sem eru öllum opnar og aðgengilegar á heimasíðu Matís (www.mat- is.is). Auk þess hafa þessi gögn verið gerð aðgengileg á myndrænan hátt á heimasíðu Matís undir flipanum „Óæski- leg efni (aðskotaefni) í ís- lensku sjávarfangi”. Þessar upplýsingar nýtast útflytjend- um, sjávarútvegsfyrirtækjum, eftirlitsaðilum og fleirum til að sýna kaupendum íslenskra sjávarafurða fram á stöðu ís- lenskra sjávarafurða m.t.t. ör- yggi og heilnæmis. Niðurstöður Niðurstöður vöktunarinnar benda til þess að sjávarfang sem veitt er hér við land og fer til manneldis sé yfirleitt undir Evrópusambandsmörk- um (mynd 1). Fyrir fiskimjöl Höfundar eru Hrönn Ólína Jörundsdóttir og Helga Gunn- laugsdóttir og starfa þær hjá Matís, www.matis.is. Hrönn Ólína Jörundsdóttir Helga Gunnlaugsdóttir R A N N S Ó K N I R Vöktun óæskilegra efna: Mikilvægt verkfæri í markaðs- sókn íslenskra sjávarafurða Mynd 1. Kvikasilfur mælt í fiski frá Íslandsmiðum 2007. Styrkur er í mg/kg votvikt og fiskar sömu tegundar eru af mismun- andi stærðarbili og af mismunandi miðum.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.