Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.2009, Síða 30

Ægir - 01.09.2009, Síða 30
F E R S K L E I K I F I S K S Undanfarið hefur Matís staðið að þróun á nýrri aðferð til að mæla magn sérvirkra skemmd- arörvera í fiskflaki sem byggir á erfðagreiningum í stað hefð- bundinna ræktana. Með þessu móti hefur greiningartíminn verið styttur úr 2-3 dögum niður í 4 klukkustundir. Að- ferðin er ákjósanlegt tæki í gæða- og framleiðslustjórnun í fiskiðnaðinum. Neytendur fara fram á fiskafurðir í góðum gæðum og til að uppfylla slíkar kröfur þurfa söluaðilar að tryggja sér hráefni sem kemur til með að standast kröfur neytanda. Ferskleiki og geymsluþol fiskafurða stjórnast fyrst og fremst af því hvort svokallað- ar skemmdarörverur nái að fjölga sér og skemma afurð- ina. Þessar örverur koma frá yfirborði og meltingarvegi fisksins en einnig úr umhverf- inu. Nær ógerlegt er að koma í veg fyrir að þær komist í holdið og koma þannig í veg fyrir skemmdarferil. Helst hafa menn reynt að seinka skemmdarferlinu með ýmsum ráðum (frysting, söltun, þurrkun) en sú leið sem hef- ur reynst vel og viðhaldið ferskleikanum best er kæling. Sé misbrestur á kælingu á einhverju stigi framleiðslu, frá miðum að markaði, ná örver- ur að fjölga sér og hraða skemmdarferlinu. Þetta mink- ar gæði og um leið geymslu- þol og verðmæti vörunnar. Til að hámarka gæði og öryggi matvæla hefur inn- leiðsla á gæðakerfinu HACCP (Hazard Analysis Critical Control Point) komið að góð- um notum. Þetta kerfi byggist á því að skrásetja og viðhalda öllum ytri þáttum innan settra viðmiðunarmarka. Í þessu fel- ast mælingar á hitastigi og skrásetning á þrifatímum og öðrum þáttum sem mikilvæg- ir eru til að viðhalda góðum framleiðsluháttum. Enn sem komið er hefur ekki verið hægt að mæla bakteríufjölda og setja inn í kerfið þar sem vöntun hefur verið á nægjan- lega hraðvirkum aðferðum. Núverandi aðferð byggir á ræktun örvera sem tekur tvo til þrjá daga og því er ekki hægt að gera viðeigandi ráð- stafanir í framleiðslustjórnun ef svo ber undir. Mikilvægi gæða og öryggi sjávarfangs er sífellt að aukast vegna hnattvæðingar iðnaðar- ins. Þetta á sérstaklega við um Ísland þar sem langt er í erlenda markaði og því nauð- synlegt að hér sé framleiddur hágæða fiskur sem stenst samkeppni við erlent hráefni þrátt fyrir lengri vegalendir að mörkuðum. Ferskar sjávaraf- urðir eru jafnan verðmætari en frystar afurðir ef geymslu- aðstæður eru góðar. Hins vegar er áhættan meiri fyrir seljandann þar sem geymslu- tími vörunnar er minni og taf- ir í flutningum geta haft áhrif á ferskleikann og jafnvel orð- ið til höfnunar á vörunni við móttöku erlendis. Nauðsyn- legt er að hafa góða og hrað- virka mæliaðferð sem getur gefið tölulegar niðurstöður til að meta ástand fisks sem seldur er ferskur eða notaður í áframhaldandi vinnslu. Við hugsanlega inngöngu Íslands í ESB munu tollar falla niður sem gerir það ábatasamt fyrir íslensk fyrirtæki að fullvinna vörur í meira mæli en nú er gert. Í þessum viðskiptum er því mikilvægt að hafa hand- hæg tól til þess að meta gæði og ástand fiskfarmsins á óhlutdrægan hátt. Þannig gæti framleiðandi/seljandi á Íslandi t.d. minnkað líkur á afföllum sem verða vegna höfnunar erlendis ef fiski af of lökum gæðum er pakkað og hann sendur út á ferskan markað í Höfundar eru Eyjólfur Reynisson og Viggó Þór Marteinsson og starfa þeir báðir hjá Matís, www.matis.is Eyjólfur Reynisson Viggó Þór Marteinsson Gæðastokkur - ný hraðvirk aðferð sem mælir ferskleika fiskflaka Tækið sem greiningin fer fram í. Í tækið er sett hvarfefnablanda ásamt einangruðu erfðaefni úr fiskisýni. 30

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.