Ægir

Volume

Ægir - 01.09.2009, Page 33

Ægir - 01.09.2009, Page 33
33 F I S K V I N N S L A N áform ríkisstjórnarinnar stóra málið. Fyrningarleiðin er eitt þeirra stóru mála og fljótt á lit- ið hlýtur hún að rústa fjöl- mörgum fyrirtækjum á ein- hverjum árum og ég trúi ekki að lagt verði af stað í þá leið nema viðskiptabankarnir hafi farið vandlega yfir stöðu og starfsemi sjávarúvegsfyrirtækj- anna. Í þessu máli er að störf- um sátta nefnd sem ætlað var að skilaði af sér 1. nóvember og það er mjög vont að niður- staða í málinu dragist á lang- inn. Á því hanga nýfjárfesting- ar í greininni og áætlanir fyrir- tækjanna inn í framtíðina. Mitt mat er því að fyrningarleiðar- málið sé hvað stærsta hags- munamálið í sjávarútveginum á næstu mánuðum,“ segir Arn- ar og bætir við að fara ekki fari hjá því að aðildarviðræður við Evrópusambandið verði fyrirferðamikil í sjávarútvegin- um innan tíðar. „Þriðja stóra málið er um- ræðan um orku- og kolefnis- skattana sem snerta að sjálf- sögðu útgerðina með umtals- verðum hætti. Það mál kemur við alla greinina, allt frá útgerð til vinnslu,“ segir Arnar. Samdrátturinn í ýsukvótanum þungt högg Ljóst er að samdráttur í afla- heimildum á ýsu hefur umtals- verð áhrif fyrir margar vinnsl- ur. Arnar segir það högg verða þyngra á ákveðnum landsvæð- um en öðrum. „Í þessu sam- bandi má halda til haga að við höfum verið með loðnuleysis- ár og sýkingu í Suðurlandssíld- inni þannig að samdráttur í ýs- unni bætist ofan á. Í rauninni er ótrúlegt hvað fyrirtækin hafa náð að bjarga sér þrátt fyrir áföllin í síld og loðnu en það þanþol er ekki endalaust. Fyrir nokkrum árum hefðu svona áföll verið flokkuð sem mikill héraðsbrestur en nú kemur okkur til góða að sjáv- arútvegsfyrirtæki eru orðin stærri, fjölþættari og búa yfir meiri sveigjanleika til að bregðast við. Dæmi um það er sókn í gulldeplu og kolmunna. Allt hjálpar þetta okkur í því verkefni að sigla út úr þröngri stöðu,“ segir Arnar Sigur- mundsson. Breytingar á vísitölum, janúar 2008 = 100 Ráðstöfun helstu botnfisktegunda af Íslandsmiðum árið 2008 í þús. tonna Verðmæti útfluttra sjávarafurða 2008nam 171,4 milljörðum kr, en var 127,6 milljarðar 2007 Athyglisverð mynd sem sýnir þróun gegnisvísitölunnar og verðvísitölu sjávarafurð frá ársbyrjun 2008. Vísitölurnar haldast í hendur fram á haustið 2008 en þá skilja leiðir. Verðmæti útfluttra sjávarafurða. Landfrystingin skilar tvöföldum tekjum á við sjófrystingu og söltun. Hér má sjá ráðstöfun helstu botnfisktegunda af miðunum á árinu 2008. Mjög stór hluti þorskaflans fer í sötun og frystingin fylgir þar skammt á eftir.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.