Ægir - 01.09.2009, Side 38
38
K R O S S G Á T A
F R É T T I R
Jón Bjarnason, sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra, hef-
ur lagt fram á Alþingi nýtt
frumvarp um breytingar á lög-
um um stjórn fiskveiða. Frum-
varpið tekur aðallega til átta
þátta í lögunum. Þeir eru:
1. Heimilað verði að
stunda veiðar í atvinnuskyni
á sama tímabili og frístunda-
veiðar eru stundaðar.
2. Dregið verði úr heimild
til að flytja aflamark milli fisk-
veiðiára úr 33% í 15%, en sér-
staklega kveðið á um í bráða-
birgðaákvæði að á þessu fisk-
veiðistjórnunarári verði heim-
ildin 10%.
3. Línuívilnun aukin.
4. Heimild til að kveða á
um vinnsluskyldu á uppsjáv-
arfiski.
5. Svokölluð veiðiskylda
aukin en í því sambandi tekið
tillit til veiða utan lögsögu úr
stofnum sem ekki teljast til
deilistofna.
6. Heimild til flutnings
aflamarks frá skipi takmörk-
uð.
7. Bráðabirgðaákvæði er
lýtur að veiðistjórnun á skötu-
sel og gjaldtöku fyrir úthlutun
aflamarks í þeirri tegund.
8. Skipting leyfilegs heild-
arafla í karfa.
Um það ákvæði í frum-
varpinu að takmarka heimild-
ir til flutnings aflamarks milli
ára segir ráðuneytið að á síð-
asta ári hafi heimildin verið
aukin úr 20% í 33% af afl-
marki hverrar botnfisktegund-
ar, úthafsrækju, humars og
síldar. „Nú er lagt til að þessi
heimild verði lækkuð í 15%
og svigrúm og sveigjanleiki
minnkar sem því nemur en
ráðherra hafi þó heimild til
hækkunar fyrir einstakar fisk-
tegundir séu fyrir því haldbær
rök. Gengið er enn lengra á
þessu fiskveiðistjórnunarári
þar sem lagt er til að flutn-
ingsheimildin verði 10%. Rök-
in fyrir þessu eru einfaldlega
að sem mestur afli berist að
landi sem ekki veitir af í því
efnahagsumhverfi sem við
búum við um þessar mundir,”
segir í greinargerð ráðuneytis-
ins.
Vinnsluskylda á uppsjávarfi-
skinn
Einnig er gert ráð fyrir að sett
verði í lög ákvæði sem heim-
ilar ráðherra að skylda út-
gerðir skipa er stunda veiðar
á uppsjávarfiski til að vinna
hluta aflans. Þekkt er að veið-
ar á ýmsum uppsjávarfiski til
bræðslu hafa verið umdeildar
útfrá því sjónarmiði að um sé
að ræða fisk sem fyllilega sé
hæfur til manneldis. „Ekki síst
hefur þessi gagnrýni komið
erlendis frá. Verðhlutföll af-
urða stjórna því að stærstum
hluta hvernig útgerðir haga
sinni vinnslu. Það er mat Jóns
Bjarnasonar sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra að
nauðsynlegt sé fyrir stjórnvöld
af ýmsum ástæðum ekki síst
siðrænum og þáttum er varða
umgengni við auðlindina að
stjórnvaöld hafi þetta tæki til
að hlutast til um þegar að
nauðsyn krefur,” segir í grein-
argerð sjávarútvegsráðuneyt-
isins vegna frumvarps um
breytingar á fiskveiðistjórnun-
arlögunum.
Alþingi:
Frumvarp um breytingar á nokkrum
ákveðum fiskveiðistjórnunarinnar