Fréttablaðið - 16.04.2015, Síða 2
16. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
s. 588 2300
Við erum á 1. hæð
í Kringlunni
SAMKEPPNISMÁL Ólöf Nordal innan-
ríkisráðherra vill afnema einkarétt
Íslandspósts ohf. á póstþjónustu
og hyggst leggja fram frumvarp
þess efnis á haustþingi. Þetta kom
fram í máli ráð-
herrans í sér-
stakri umræðu á
Alþingi í gær um
málefni Ísland-
spósts. Þá telur
Ólöf að selja eigi
fyrirtækið; ríkið
eigi ekki að vera
að vasast í einka-
rekstri.
Málhefjandi var Guðmundur
Steingrímsson, formaður Bjartr-
ar framtíðar, sem sagði kveikj-
una vera umfjöllun um meint brot
Íslandspósts á samkeppnismarkaði,
en fyrirtækið hefur verið til rann-
sóknar hjá Samkeppniseftirlitinu
um árabil. Þar hefur Íslandspóstur
verið sakaður um að nýta þann hluta
rekstursins sem ríkið hefur gefið
fyrirtækinu einkarétt á að sinna til
að niðurgreiða samkeppnisrekstur
þess.
Guðmundur ræddi einnig fyrir-
komulag póstþjónustu í víðara sam-
hengi og sagði lög þess efnis bera
þess vitni að hafa verið skrifuð í
veröld þar sem engin tölvupóstsam-
skipti ættu sér stað.
Ólöf sagði vinnu hafna í ráðuneyt-
inu til að afnema einkarétt á póst-
þjónustu, vegna tilskipunar ESB
þess efnis. Skilgreina þurfi grunn-
póstþjónustuna og hvernig eigi að
sinna henni. Að öðru leyti eigi að
leyfa samkeppni að njóta sín, slíkt
sé til hagsbóta fyrir neytendur. Hún
áréttaði þó að hlutabréf ríkisins í
Íslandspósti væru á forræði fjár-
málaráðuneytisins. fanney@frettabladid.is
Einkaleyfi Íslandspósts
afnumið á haustþingi
Innanríkisráðherra hyggst leggja fram frumvarp um afnám einkaréttar Ísland-
spósts á póstþjónustu á haustþingi. Auk þess vill hún að Íslandspóstur sé seldur.
Þetta kom fram í sérstakri umræðu um málefni Íslandspósts á Alþingi í gær.
ÓLÖF NORDAL
OPINBERT HLUTAFÉLAG Íslandspóstur hefur einkarétt á póstþjónustu en hefur
verið til rannsóknar hjá Samkeppniseftirlitinu um árabil. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Forstjóri og stjórnarformaður Íslandspósts mættu á fund
fjárlaganefndar í gær til að svara spurningum nefndar-
manna um meint samkeppnislagabrot. Vigdís Hauksdóttir,
formaður nefndarinnar, sagði fundinn góðan.
„Við erum bara að sinna okkar eftirlitshlutverki. Félagið
er með ein sex mál í gangi hjá Samkeppniseftirlitinu út
af hugsanlegum brotum.“ Vigdís sagði að skoða þyrfti
betur fullyrðingar sem þurfi að fá nánari útskýringar á frá
bæði bæði Póst- og fjarskiptastofnun sem og Samkeppnis-
eftirlitinu. Til standi að fá fulltrúa beggja stofnana á fund
nefndarinnar til svara.
„Okkur finnst enn þá vera aðeins óskýrar þessar fullyrðingar Póst- og
fjarskiptastofnunar þar sem áhöld eru um að einkaleyfi sé að greiða niður
samkeppnisrekstur,“ segir Vigdís: „Þeir hafa stofnað dótturfélög á síðustu
árum og kaupa fyrirtæki á markaði til að setja undir hatt Íslandspósts,
sem ég tel ekki samrýmast lögum að öllu leyti. Þeir telja að þeim sé þetta
heimilt.“
Íslandspóstur á fund fjárlaganefndar
VIGDÍS
HAUKSDÓTTIR
SLYS „Við erum bara að ná utan um aðdragandann og
það sem gerðist þarna. Það er verið að ræða við fólk
sem getur gefið einhverjar upplýsingar,“ segir Mar-
geir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Hafnar-
firði, um rannsókn slyssins sem varð þar á mánudag
þegar tveir drengir festust í affalli við Reykdalsstíflu
í Hafnarfirði.
Drengirnir, sem eru 9 og 12 ára gamlir, eru bræður.
Eldri bróðirinn var útskrifaður af spítala í gær en
þeim yngri er enn haldið sofandi í öndunarvél á gjör-
gæsludeild. Samkvæmt upplýsingum frá lækni er
ástand hans óbreytt og biðtími fram undan þar sem
meðferð drengsins sé þess eðlis að hún taki tíma. Ell-
efu ára systir þeirra var með þeim þegar slysið átti
sér stað og hringdi í móður þeirra sem kom á slysstað.
Karlmaður á þrítugsaldri sem kom drengjunum til
bjargar ásamt lögreglu hefur einnig verið útskrifaður
af sjúkrahúsi.
Í gær var lónið fyrir ofan stífluna tæmt og verið er
að rannsaka tildrög slyssins, að sögn Margeirs. Þeir
sem komu að slysinu hafa fengið áfallahjálp.
Talið er líklegt að drengirnir hafi verið að elta bolta
sem þeir misstu út í vatnið en Margeir segir það vera
eitt af því sem rannsakað sé, eins hversu lengi dreng-
urinn var í vatninu. Unnið sé að því að púsla atburða-
rásinni saman, málið sé viðkvæmt og því verði gefinn
góður tími í rannsóknina.
- vh
Lögregla rannsakar enn tildrög slyssins sem varð við Reykdalsstíflu í Hafnarfirði:
Eldri drengurinn útskrifaður
FRÁ SLYSSTAÐ Rannsókn málsins er í fullum gangi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
ÍTALÍA Varðskipið Týr kom til
hafnar í Taranto á Ítalíu rétt
rúmlega hálf átta í gærmorgun
að íslenskum tíma með á fjórða
hundrað flóttamanna sem áhöfn-
in bjargaði úr lekum bát norð-
vestur af Trípólí sl. mánudag.
Týr sigldi með flóttafólkið til
Taranto þar sem allar flótta-
mannabúðir á Sikiley eru orðnar
yfirfullar. Á siglingunni til Tar-
anto hlúði áhöfn varðskipsins
að flóttafólkinu en allnokkrar
konur um borð voru ófrískar og
fjöldi barna var í hópnum. Áhöfn
Týs hefur ásamt öðrum á vegum
Frontex bjargað um 7.500 manns
síðan á föstudag. - kbg
Áhöfn Týs stóð í ströngu:
Margar ófrískar
konur í bátnum
SAMFÉLAG Krakkarnir á leikskólanum Nóaborg fóru í skrúðgöngu í
gær þar sem gengið var frá skólanum og niður á Klambratún. Skrúð-
gangan var farin í tilefni árlegrar alþjóðaviku í skólanum þar sem
áherslan er lögð á fjölmenningu. - vh
Krakkarnir á leikskólanum Nóaborg halda alþjóðaviku árlega:
Fjölmenningu fagnað í skrúðgöngu
MEÐ FÁNA Á LOFTI Börnin fögnuðu fjölmenningu í skrúðgöngu í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SAMGÖNGUR Ekki stendur til að
taka ákvörðun um framkvæmdir
á nýjum vegi yfir Sprengisand
á næstunni. Þetta kemur fram á
vef Vegagerðarinnar.
Ákveðið hefur verið að ljúka
ekki við umhverfismat á lagn-
ingu Sprengisandsleiðar að sinni.
Eitt markmið verkefnisins var að
leggja mat á lagningu háspennu-
línu við hlið nýrrar Sprengi-
sandsleiðar með tilliti til sjón-
rænna áhrifa.
Ekki er reiknað með að til-
lögur um framkvæmdir við nýja
Sprengisandsleið verði lagðar
fram í 12 ára samgönguáætlun
2015 til 2026. - srs
Sprengisandsleið frestað:
Vinnu hætt við
umhverfismat
MÓTMÆLI Hópur mótmælenda kom
saman við Austurvöll í gær til að
vekja athygli á því að 888 dagar
eru liðnir frá því að Alþingi ákvað
að ráðast í rannsókn á einkavæð-
ingu bankanna.
Mótmælendur krítuðu töluna
888 á gangstéttina fyrir utan
Alþingishúsið. Í kjölfarið smúluðu
þingverðir gangstéttina og spraut-
uðu vatni á mótmælendur.
Lögreglan hafði afskipti af
einum mótmælendanna, Örvari
Geir Geirssyni. Örvar segir að allt
hafi farið fram í góðu þar til hann
hafi beðið um að hafa vitni að
samræðum við lögregluna við
skýrslutöku. Þá hafi lögreglan
rifið í hann og fært hann í lög-
reglubíl. „Mér finnst það algjör
valdníðsla og brot á mínum
borgaralegu réttindum,“
segir hann.
Jón Þór Ólafsson,
þingmaður Pírata,
hefur óskað eftir því
að forseti Alþing-
is hefji rannsókn á
athæfi þingvarða. „Öryggis-
verðir geta starfsins vegna
þurft að beita ofbeldi. Það
er réttast að þegar öryggis-
verðir þingsins neyðast til að
beita ofbeldi þá verði faglega
metið réttmæti þeirr-
ar aðgerðar,“ segir
Jón Þór. „Það er hollt
fyrir alla að slíkt mat
fari fram, fyrir aðra
starfsmenn þingsins
og landsmenn alla.“
- srs
Hópur lögreglumanna beitti mótmælanda hörku fyrir að kríta töluna 888 á styttu Jóns Sigurðssonar:
Þingvörður sprautaði vatni á mótmælanda
HARKALEG HANDTÖK Örvar segir
brotið á rétti sínum. MYND/JÆJA
JÓN ÞÓR
ÓLAFSSON
VEÐUR
4°
7°
10°
6°
9°
3
2
4
10
2
SJÁ SÍÐU 32
Suðlæg átt í dag, vindur 5-10 m/s.
Skýjað að mestu S- og V-lands og sums
staðar gætu fallið dropar. N- og A-lands
verður áfram bjart í veðri. Hlýnar heldur
NA-lands og getur hiti farið í allt að 15
stig þegar best lætur.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
D
-8
F
3
C
1
6
3
D
-8
E
0
0
1
6
3
D
-8
C
C
4
1
6
3
D
-8
B
8
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
6
4
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K