Fréttablaðið - 16.04.2015, Side 29

Fréttablaðið - 16.04.2015, Side 29
Guðbrandur kaupmaður reynir að láta það ekki verða að fullri vinnu að spegla sig. Hann byrjar daginn á því praktíska atriði að athuga veðrið og að því loknu veit hann nákvæmlega hvað hann getur leyft sér í klæðaburði. „Yfirleitt er ég búinn að ákveða allt áður en ég fer í nokkuð, enda margt sem þarf að fara saman og gott að hafa skýra mynd í kollinum svo maður þurfi ekki að máta sig áfram,“ segir hann brosandi. Hefurðu lengi pælt í tískunni? Ég hef aldrei spáð mikið í tísku en alltaf verið meðvitaður um klæðaburð og þá sérstaklega eftir að ég hóf störf hjá Kormáki & Skildi. Ég spái nánast ekkert í hátísku en fylgist mjög vel með gömlum og rótgrónum fata- og skómerkjum sem leggja mikið upp úr vönduðum og klassískum vörum. Hvernig klæðir þú þig hvers- dags? Bara nokkuð hversdags- lega, yfirleitt í „chinos“ eða galla- buxur og nánast alltaf í skyrtu. Svo er ég mikið í tvídjakka ef það er kalt en hör- eða baðmullar- jakka ef það er hlýtt. Ansi oft er ég svo í vaxjakka frá Barbour yfir, enda fáar flíkur jafn hent- ugar fyrir íslenska veðráttu. Ég nota mikið ameríska skó, uppháa frá Wolverine eða Chippewa. Á höfðinu er það svo sixpensari eða hattur en það fer eftir vindi. Ég reyni að forðast það að ganga með hatt ef vindhraði fer yfir fimm metra á sekúndu, enda getur það verið dýrt spaug ef hatturinn tekst á loft. Hvernig klæðir þú þig spari? Í tvídjakkaföt (hörjakkaföt á sumrin), ljósa skyrtu, axlabönd og bindi. Svo er ég alltaf í klass- ískum leðurskóm frá Loake Shoemakers. Bretinn gerir bestu spariskóna. Hvernig lýsir þú stílnum þín- um? Hann er mjög gamaldags, tímabilið 1900-1950 höfðar sér- staklega til mín. Ég horfi mikið á bíómyndir sem gerast á þeim tíma og oftar en ekki gleymi ég mér og klæðaburður leikaranna verður aðalatriðið. Hvar kaupir þú fötin þín? Eins og gefur að skilja kaupi ég flest mín föt í Herrafataverzlun Kor- máks & Skjaldar, enda úrvalið slíkt að ég þarf ekkert að leita annað. BER VIRÐINGU FYRIR JAKKANUM FLOTTUR STÍLL Það er til allt of mikið af fallegum skóm í þessum heimi að mati Guðbrands kaupmanns. Hann telur sig alltaf eiga skilið nýtt par af skóm. GAMALDAGS STÍLL Guðbrandur kaupmaður er sérstaklega hrifinn af tískunni sem var í gangi á árunum 1900 til 1950. MYND/VILHELM Engjateigi 5 | Sími 581 2141 | www.hjahrafnhildi.is 6 litir • Stærðir 36-50 Vinsælu Lindon/Modest buxurnar komnar í hús! Verð 9.980.- TÆKIFÆRISGJAFIR TILBOÐ - mikið af frábærum boðumtil Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955 Hnífaparatöskur – 12 manna 14 tegundir Verð frá kr. 24.990 STAÐALBÚNAÐUR FYRIR SUMARIÐ Allir þurfa að eignast eins og einar espadrillur fyrir sumarið. Þær eru bæði til fyrir konur og karla og með því heitasta ef marka má tískublogg um allan heim. 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 4 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 3 E -8 F F C 1 6 3 E -8 E C 0 1 6 3 E -8 D 8 4 1 6 3 E -8 C 4 8 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 6 4 s _ 1 5 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.