Fréttablaðið - 16.04.2015, Qupperneq 60
16. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 52
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson
hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ
SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan
Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar
Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Glæsilegur og virkilega vandaður svefnsófi frá Ítalíu. Öflugt
og sterkt svefnstell. Fjölmargir litir og ýmsar stærðir í boði.
Svefnsófinn hefur virkilega slegið í gegn hér á landi.
Demetra Svefnsófi
Rúmin frá Lama í Danmörku eru í senn falleg og vönduð vara.
Margir möguleikar eru í dýnuvali. Margir litir og stærðir í boði.
Rúmin eru fáanleg með rafstillingu.
Lama contenental
Frábær gæði frá Belgíu. Fáanlegt með og án Rafstillingar.
Hægt er að fá Henson Design rúmin í mörgum stærðum,
efnis og litaútfærslum, á fótum eða með sökkli.
Henson Design Brixton
Stillanlega rúmið frá Dunlopillo er þægilegt og sterkbyggt
rafmagnsrúm. Dýnurnar skiptast í sjö svæði úr 18cm
heilsteyptum Latex kjarna eftir forskrift Dunlopillo.
Dunlopillo stillanlegt
Dunlopillo
Gæði frá
Danmörku
Lama
Gæði frá
Danmörku
Gegnheil
Gæði frá
Ítalíu
Henson
Design
Gæði frá
Belgíu
Það er alltaf hafragrautur með
stöppuðum banana í staðinn fyrir
sykur.
Guðjón Davíð Karlsson leikari.
MORGUNMATUTINN
Hörður Sveinsson, ljósmyndari og leikstjóri,
vinnur nú að myndbandi við lagið You tell em
með tónlistarmanninum og Íslandsvininum
Zebra Katz. Tónlistarmaðurinn hefur öðl-
ast vaxandi vinsældir í Bandaríkjunum
en hann eyddi síðasta sumri á Íslandi
við tökur á myndbandinu.
Hörður segist vonast til þess að
myndbandið verði frumsýnt í næstu
viku en lagið er af væntanlegri plötu
rapparans. „Við erum búnir að leggja
mikla vinnu í verkefnið og nú erum við
að leggja lokahönd á eftirvinnslu þess. Við
getum ekki beðið eftir því að frumsýna.“
Þeir Hörður Sveinsson, Helgi Jóhannsson
og Atli Viðar Þorsteinsson eru með fram-
leiðslufyrirtækið Refur Creative og gerðu
þeir meðal annars myndband við lag Unn-
steins úr Retro Stefson og Óskarsverð-
launahafans Marketa Irglova. Tvö mynd-
bönd úr smiðju Refur Creative eru tilnefnd
til Nordic Music Video-verðlaunanna sem
verða afhent í maí.
Gera myndband með Zebra Katz
Lítið framleiðslufyrirtæki framleiðir myndband fyrir þekktan tónlistarmann.
SPENNANDI TÆKIFÆRI Þeir Helgi, Atli og
Hörður stofnuðu framleiðslufyrirtækið Refur
Creative.
Við erum búnir að leggja
mikla vinnu í verkefnið og nú
erum við að leggja lokahönd á
eftirvinnslu þess.Við getum ekki
beðið eftir því að frumsýna.
Inn á borð Steinsins, nytjamark-
aðar í Neskaupstað, rataði nýlega
sannkallaður dýrgripur, hið sívin-
sæla Matador. Það sem gerir
spilið merkilegt er að hér er um
að ræða fyrstu útgáfu spilsins
á íslensku frá árinu 1939 og því
sjaldséður hvítur hrafn á ferðinni.
„Við fundum það í bókakassa sem
skilinn var eftir fyrir utan húsið
hjá okkur,“ segir María Lind Krist-
jánsdóttir, ein þeirra sem sjá um
markaðinn. Hún segir mikla lukku
að sjálf hafi hún ekki tekið upp úr
þeim kassa því þá hefði það að
öllum líkindum endað í ruslinu.
„Hún Elín hefur svo mikið auga
fyrir svona dýrgripum og það var
hún sem kom auga á spilið, sem var
í nokkrum hlutum inni á milli bóka
og annarra hluta,“ segir María.
Hún tók spilið að sér og lét meta
hverslags væri. „Þá kemur upp úr
krafsinu að hér er fyrsta útgáfa
Matador á íslensku og því antík-
bragur á þessu öllu,“ útskýrir hún
og bætir við að samkvæmt mat-
inu væri hægt að selja það á hátt
í fjörutíu þúsund krónur. „Ef kass-
inn hefði verið utan um hefði spil-
ið verið umtalsvert verðmætara,
segja þeir,“ bætir hún við.
María segir að spilinu verði
komið vel fyrir á nytjamarkaðn-
um góða, og stefnan sé að koma
upp sérstökum skáp fyrir svona
dýrgripi. Aðspurð um hvort hægt
verði að kaupa spilið segir hún það
ekki falt og bætir við glaðlega:
„Eða svona, ef það kæmi nógu gott
boð í það, þá er aldrei að vita hvort
við myndum selja það.“
Dugleg að styrkja
Nytjamarkaðurinn í Neskaup-
stað hefur verið starfræktur
síðan árið 2002. „Við
fáum til okkar gam-
alt dót úr öllum mögu-
legum áttum, mikið til
frá heimafólki og úr
fjörðunum í kring,“
segir hún. María segir
nytjamarkaðinn býsna
vinsælan meðal Aust-
firðinga og hlutina
sjaldnast staldra lengi
við. „Við náum stundum ekki
einu sinni að taka upp úr kössun-
um og iðulega bíður fólk við dyrn-
ar áður en við opnum á laugardög-
um,“ skýtur hún að.
María segir afar gleðilegt hve
nytjamarkaðurinn hefur fallið vel
í kramið meðal Norðfirðinga og
allra nágranna, en markaðurinn
leggur sig fram við að gefa ágóð-
ann til góðgerðarmála og nefnir
hún styrki til langveikra barna
og foreldra þeirra, Mæðrastyrks-
nefndar og Rauða krossins auk
annarra. Allt starf sem viðkemur
markaðnum er unnið af sjálfboða-
liðum.
gudrun@frettabladid.is
Tæplega áttrætt Matador
fannst á Neskaupstað
Spilið skilið eft ir í bókakassa fyrir utan nytjamarkaðinn Steininn. „Hefði getað
rignt niður eða fokið út á haf,“ segir María Lind, einn aðstandenda markaðarins.
ZEBRA KATZ
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
„Þetta er eitthvað sem er búið að safnast fyrir
í trektinni í hausnum á mér og þurfti að fá
að líta dagsins ljós,“ segir Haraldur Svein-
björnsson sem gefur á morgun út sína fyrstu
sólóplötu, Shine, undir listamannsnafninu Red
Barnett.
Þetta er fyrsta sólóverkefni hans en hann er
þó enginn nýgræðingur og hefur meðal annars
unnið að útsetningum fyrir Sinfóníuhljómsveit
Íslands, með Björgvini Halldórssyni, Skálmöld
og leikur á bassa með hljómsveitinni Buff.
Plötuna hefur hann gengið með í tíu ár en
þurft að fresta útgáfu hennar vegna annarra
verkefna. Lögin voru farin að safnast saman
og skapa ritstíflu.
„Ég er að verða fertugur á morgun og þetta
var ákveðið takmark, nú væri aldeilis kom-
inn tími á að losa um þessa stíflu og fara inn
í næsta áratug með hreint skrifborð,“ segir
hann og hlær.
Honum til halds og traust verða gamlir og
góðir hljómsveitarfélagar, þeir Hannes Frið-
bjarnarson og Finnur Beck. „Hannes og Finn-
ur eru með mér, þeir voru meðlimir í mínu
fyrsta bandi sem við stofnuðum þegar við
vorum ellefu ára gamlir. Okkur fannst þetta
ákveðinn hringur að loka, að stíga saman á
svið.“
Tónleikarnir fara fram í Fríkirkjunni og
hefjast klukkan níu á morgun. - gló
Fer inn í næsta áratug með hreint skrifb orð
Haraldur Sveinbjörnsson gefur út sína fyrstu sólóplötu á morgun en hana hefur hann gengið með í tíu ár.
GEFUR ÚT PLÖTU Haraldur gefur út sína fyrstu sóló-
plötu þrátt fyrir að hafa starfað lengi sem tónlistar-
maður. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
➜ Spilið hefur verið
vinsæll gestur á
heimilum landsins
síðan það kom út á
Íslandi árið 1939.
FUNDIÐ FÉ María Lind sagði spilið góða sennilega hafa endað í ruslinu ef hún hefði
tekið á móti því. Mikil mildi þykir að samstarfskona hennar hafi hnotið um það.
Ef kassinn
hefði verið
utan um hefði
spilið verið
umtalsvert
verðmætara,
segja þeir.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
E
-B
7
7
C
1
6
3
E
-B
6
4
0
1
6
3
E
-B
5
0
4
1
6
3
E
-B
3
C
8
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
6
4
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K