Fréttablaðið - 02.04.2015, Page 2
2. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
STJÓRNMÁL „Það er virkilega
ánægjulegt að sjá að þetta fallega
hús Guðjóns Samúelssonar muni
loks rísa á þessum stað, þar sem
það fellur vel inn í umhverfið og
prýðir miðborgina,“ segir Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson for-
sætisráðherra um tillögur sínar
um viðbyggingu á Alþingisreitnum
sem Fréttablaðið greindi frá í gær.
Ríkisstjórnin hefur afgreitt
þingsályktunartillögu forsætis-
ráðherra um hvernig minnast
skuli aldarafmælis sjálfstæðis og
fullveldis Íslands árið 2018, en þar
er meðal annars lagt til að byggt
verði við Alþingishúsið eftir göml-
um teikningum Guðjóns, auk þess
sem Sigmundur vill reisa nýja
Valhöll á Þingvöllum og ljúka
við byggingu fyrir Stofnun Árna
Magnússonar.
Sigmundur segir það mun hag-
kvæmara að byggja nýtt hús svo
hægt sé að hýsa alla starfsemi
Alþingis á einum stað, en nú fari
háar fjárhæðir í að leigja húsnæði
í kringum Austurvöll sem hann
segir einn dýrasta reit landsins.
Ríkisstjórnin afgreiddi tillöguna
á mánudag og var hún lögð fyrir
þingflokka stjórnarflokkanna í
kjölfarið. Hún hefur ekki enn verið
afgreidd af þingflokki sjálfstæðis-
manna.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins telja sjálfstæðismenn til-
lögurnar of dýrar í framkvæmd og
enga þörf á þeim gífurlegu fram-
kvæmdum sem í þeim felast.
Sigmundur er samt sem áður
ákveðinn að um sé að ræða
mikil vægar framkvæmdir.
„Ekki er síður síður mikil-
vægt að hús íslenskra fræða verði
loks reist, þar sem þjóðin og ferða-
menn geta meðal annars kynnst
þjóðargersemunum, handritun-
um,“ segir Sigmundur.
Samkvæmt upplýsingum úr
forsætisráðuneytinu á Háskóli
Íslands til peninga til að leggja á
móti kostnaði ríkisins við bygg-
inguna og talið er að almenn sam-
staða sé um að klára það hús þegar
möguleiki gefst.
Að auki hafi ríkið fengið trygg-
ingabætur þegar Valhöll á Þing-
völlum brann árið 2009 sem hægt
væri að nýta til að hefja fram-
kvæmdir þar. Húsið myndi nýt-
ast við þjónustu við ferðamenn á
svæðinu og auka virðissköpun.
Þar á bæ eru menn því ósammála
afstöðu þingflokks sjálfstæðis-
manna um of dýrar framkvæmdir.
fanney@frettabladid.is
Sigmundur telur bygg-
ingarnar mikilvægar
Þingflokkur sjálfstæðismanna hefur ekki afgreitt tillögu um byggingu nýrrar
Valhallar á Þingvöllum, Stofnun Árna Magnússonar og viðbyggingar við þing-
húsið. Forsætisráðherra telur byggingarnar mikilvægar og að til séu fjármunir.
UMDEILD TILLAGA Ríkisstjórnin afgreiddi þingsályktunartillögu forsætisráðherra
um nýjar byggingar á mánudag en þingflokkur sjálfstæðismanna hefur ekki enn
afgreitt hana þar sem hún er of dýr. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
EFNAHAGSMÁL Einstaklingum,
hjónum og sambúðarfólki verður
heimilt að leigja út lögheimili sitt
auk einnar annarrar fasteignar í
allt að átta vikur á ári samkvæmt
frumvarpi sem Ragnheiður Elín
Árnadóttir, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra, hefur lagt fyrir Alþingi
til breytinga á lögum um veit-
ingastaði, gististaði og skemmt-
anahald.
Heimilt verður að leigja lög-
heimili og frístundahús í allt að
8 vikur samtals á ári. Markmið-
ið er að fækka leyfislausum og
óskráðum gististöðum og draga
þannig úr svartri atvinnustarf-
semi. - kbg
Dregið úr svartri starfsemi:
Má leigja
lögheimilið út
TRÚMÁL Hinn 1. janúar síðastlið-
inn voru sóknarbörn í þjóðkirkj-
unni 242.743 eða 73,8 prósent
mannfjöldans. Fyrir tíu árum
voru þau rúmlega 8.000 fleiri og
hefur því sóknarbörnum fækkað
um 3,2 prósent síðastliðinn ára-
tug. Hagstofan greinir frá.
Kaþólska kirkjan er næstfjöl-
mennasta trúfélagið með 11.911
félagsmenn. Flest hinna trú- og
lífsskoðunarfélaganna eru smá
og einungis fríkirkjurnar þrjár
ná því að vera með yfir eitt pró-
sent mannfjöldans innan sinna
raða. Einstaklingar utan trú- og
lífsskoðunarfélaga voru 18.458.
- fbj
18.458 utan trúfélaga:
Fækkað um
3,2% í kirkjunni
LÖGREGLUMÁL Þaulskipulagt rán
var framið um hábjartan dag í
markaði Samhjálpar í Ármúla í
byrjun síðastliðins mánaðar.
Starfsmenn Samhjálpar höfðu
komið fyrir þvottavél og þurrk-
ara í starfsmannarými mark-
aðarins í Ármúla. Maður kom á
sendiferðabíl og sagðist vera að
sækja tækin fyrir Samhjálp, en
var ekki á vegum þeirra og ekk-
ert hefur spurst til varningsins.
Ránið hefur verið kært til lög-
reglu. - vh
Lögregla leitar þjófs:
Rán um há-
bjartan dag
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur
staðfest niðurstöðu Héraðsdóms
Reykjavíkur um að verjendur í
Aurum-málinu svokallaða fái ekki
að kalla dómara málsins í héraði, þá
Guðjón St. Marteinsson og Sverri
Ólafsson, til skýrslutöku.
Ástæðan fyrir kröfu verjendanna
er meint vanhæfi Sverris Ólafsson-
ar en á meðal málsgagna er tölvu-
póstur sem inniheldur óbirta grein
Guðjóns St. Marteinssonar sem
fjallar um málið. Greinina birti
hann ekki eftir að hafa rætt efni
hennar við ríkissaksóknara og
sérstakan saksóknara. Í greininni
er fullyrt að Ólafur Þór Hauks-
son, sérstakur saksóknari, hafi
hringt í Guðjón og greint honum
frá tengslum Sverris Ólafssonar og
Ólafs Ólafssonar.
Hvorki Guðjón né sérstakur sak-
sóknari gerðu athugasemdir við
hæfi Sverris sem dómara í málinu
og gerði sérstakur saksóknari ekki
athugasemd við hæfi hans við með-
ferð málsins í héraðsdómi. Guðjón
telur því sérstakan saksóknara fara
með rangt mál þegar hann hafi neit-
að að hafa vitað af tengslum Sverr-
is Ólafssonar og Ólafs Ólafssonar
þegar aðalmeðferð hófst. - srs
Hæstiréttur staðfestir niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í Aurum-máli:
Dómarar ekki til skýrslutöku
ÓLAFUR ÞÓR
HAUKSSON
GUÐJÓN ST.
MARTEINSSON
EFNAHAGSMÁL Alls 540 einstaklingar urðu gjald-
þrota í fyrra miðað við 369 árið áður og er fjölgun-
in rúmlega 46 prósent. Ekki hafa nærri jafn marg-
ir orðið gjaldþrota frá aldamótum og á síðasta ári.
Svanborg Sigmarsdóttir, upplýsingafulltrúi
Umboðsmanns skuldara, sagði í viðtali við Stöð 2
skýringuna geta verið umræðu um að fyrningar-
frestur skulda verði lengdur á ný. Svanborg sagði
í fréttum Bylgjunnar í hádeginu að skýringin
væri helst tvenns konar: „Fram eftir ári var ekki
ljóst hvort fyrningarfresturinn yrði áfram tvö ár
árið 2015. Síðan varð það ljóst í september í ræðu
forsætis ráðherra að svo yrði. En fólk fór kannski
af stað samt þar sem það hafði áhyggjur af því að
fyrningarfresturinn myndi lengjast.“ Fyrningar-
fresturinn snýst um þann tíma sem kröfuhafar
geta enn gengið að skuldaranum. Áður gátu kröfur
verið „lifandi“ í nokkur ár en sá tími var styttur til
að koma til móts við illa skuldsett fólk.
Fleiri farið í gjaldþrot vegna styrkja
„Hins vegar var það frá í febrúar í fyrra sem hægt
var að sækja um fjárhagsaðstoð til að greiða skipta-
kostnaðinn og það voru um 112 sem fengu þann-
ig greiðslur í fyrra,“ segir Svanborg. Til að geta
farið í gjaldþrotameðferð þarf að greiða opinbert
gjald, um 250 þúsund krónur, sem margir hafa ekki
efni á. Því er búist við að fleiri hafi en ella, vegna
styrkjanna, getað valið gjaldþrotaleiðina, segir
Svanborg. linda@frettabladid.is
Gjaldþrotum fjölgar um fimmtíu prósent og náðu metfjölda á síðasta ári:
Gjaldþrotum fjölgar á milli ára
SVANBORG SIGMARSDÓTTIR Umræða um lengingu fyrn-
ingarfrests gæti skýrt fjölgun gjaldþrota. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
JAPAN Elsta manneskja heims, Misao Okawa í Japan, lést úr hjarta-
bilun 117 ára gömul. Hún lést á hjúkrunarheimili í Osaka, borginni
sem hún fæddist í þann 5. mars 1898. Hún hélt upp á afmælið sitt fyrir
nokkrum vikum í marsmánuði og var veislan sýnd í ríkissjónvarpi
Japans. Hana lifa þrjú börn hennar, fjögur barnabörn og sex barna-
barnabörn.
Misao þakkaði langlífið átta tíma svefni á hverri nóttu og því að
borða nóg af sushi, eftirlætisfæðu sinni. Misao hefur lifað fjóra keis-
ara í Japan og tuttugu Bandaríkjaforseta. -kbg
Misao Okawa látin 117 ára:
Lifði fjóra keisara í Japan
AFMÆLISVEISLA Misao hélt upp á 117 ára afmæli sitt í mars. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
VEÐUR
Í dag verður vaxandi austanátt,
allhvasst og slydda eða snjókoma
sunnanlands seinnipartinn, en
hægara og bjartviðri fyrir norðan.
1°
-7°
-2°
-5°
SJÁ SÍÐU 28
12
7
26-3°
2
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
C
-E
7
5
C
1
6
3
C
-E
6
2
0
1
6
3
C
-E
4
E
4
1
6
3
C
-E
3
A
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
6
4
s
_
1
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K