Fréttablaðið - 02.04.2015, Page 48

Fréttablaðið - 02.04.2015, Page 48
2. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING | 32 Í gær var tilkynnt um tilnefningar til Barna- og unglingabókmennta- verðlauna Norðurlandaráðs. Tvær bækur eru tilnefndar fyrir hönd Íslands að þessu sinni en það eru Vinur minn vindurinn eftir Berg- rúnu Írisi Sævarsdóttur og Maður- inn sem hataði börn eftir Þórarin Leifsson. Bergrún Íris hefur áður fengist við myndskreytingar barnabóka og tölvuleikja en Vinur minn vindur- inn er fyrsta bókin sem hún vinnur ein og bæði skrifar og myndskreyt- ir. Vinur minn vindurinn er ætluð yngstu lesendunum eða öllu heldur fyrir samlestur barna og foreldra. „Þetta kom mér alveg svakalega á óvart og mér finnst þetta vera mikill heiður. Þessi saga varð til þegar eldri strákurinn minn var svona um tveggja og hálfs árs gam- all og við vorum tvö saman heima. Það var svo mikið rok úti að það var ekki hægt að fara út að leika svo við fórum saman út í glugga að skoða veðrið og ræða málið. Birgitta Elín og Marta Hlín hjá Bókabeitunni sem gefa út fyrir mig tóku þetta upp á sína arma og bókin kom síðan út fyrir síðustu jól og móttökurnar voru alveg frá- bærar. Það er óhætt að segja að ég hafi hitt á góðan vetur til þess að koma með þessa bók því nóg hefur nú verið um lægðirnar með enda- lausu roki. Núna er ég að vinna að næstu veður bók og fleiri skemmti- legum verkefnum svo það er nóg að gera.“ Maðurinn sem hataði börn er aftur á móti fyrir eldri lesenda- hóp en viðfangsefni Þórarins eru afar áhugaverð. Í bókinni segir frá innflytjandanum Sylvek Kaminski Arias sem tekst á við barnahatara og sem hann hefur grunaðan um að vera drengjamorðingi sem leikur lausum hala í Reykjavík. „Þessi viðurkenning hefur mjög mikla þýðingu. Þetta liðkar til fyrir sölu erlendis og hjálpar sennilega líka kvikmyndagerðar- fólkinu sem skrifaði undir vilja- yfirlýsingu um kvikmynd upp úr bókinni í hádeginu.“ Þórarni finnst ekki mikill munur á því að skrifa fyrir börn- og unglinga eða fullorðna lesendur. „Barnabækurnar setja ákveðinn ramma, kalla á ákveðinn skýrleika í framsetningu og neyða mig til að vera einlægur sem er ekki endilega sjálfgefið fyrir kaldhæðinn mann.“ Þórarinn er sem stendur búsett- ur í Berlín og það er nóg af verk- efnum í farvatninu. „Ég er að skrifa bókina Kaldakol. Þetta er bók um ævintýralegt verkefni Íslendinga í Berlín. Þetta er nokk- urs konar ævintýri fyrir fullorðna. Núna bý ég að reynslu undanfar- inna ára og skemmti mér mjög vel í vinnunni.“ - mg Vindurinn og hatrið Vinur minn vindurinn og Maðurinn sem hataði börn eru tilnefndar til Barna- og unglingabókmenntaverð- launa Norðurlandaráðs. TILNEFND Valgerður Benediktsdóttir frá Forlaginu sem tók við tilnefningu Þórarins Leifs- sonar, sem er búsettur í Berlín, ásamt Bergrúnu Írisi Sævars- dóttur sem hlaut einnig tilnefningu og það fyrir sína fyrstu bók. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Passían hans Hafliða er, frá mínum bæjardyrum séð, meðal merkustu verka af þessu tagi sem íslensk tónskáld hafa skrif- að,“ segir Hörður Áskelsson, organ isti í Hallgrímskirkju, um óra tóríuna Passíu op. 28 eftir Hafliða Hallgrímsson. Hún verð- ur flutt í kirkjunni á Skólavörðu- holtinu á morgun klukkan 17. Passía var samin í tilefni af kristnitökuafmælinu árið 2000 fyrir Hörð og hans kór. „Hún er okkur dýrmætur hlutur, eitt þeirra verka sem ég er hvað stoltastur af að eiga hlutdeild að,“ segir hann. Frá því passían var frum- flutt í febrúar 2001 og hljóðrit- uð ári síðar, hefur að hún aldrei verið flutt opinberlega, að sögn Harðar. Hann furðar sig á því þar sem henni var hrósað mjög í erlendum tónlistartímaritum eftir útgáfu hennar á geisladiski árið 2003. „Ég tel að verkið eigi erindi út fyrir skerið okkar því tónlistin er mjög mögnuð, þó ekki sé hún auðveld. Tónmálið er ágengt enda fjallar það um píslir og orðið passía er leiðar- stef gegnum allt verkið.“ Hörður segir val Hafliða á stefbrotum úr íslenskum ljóðum eftir Hannes Pétursson, Stein Steinar, Matthías Johannessen og Baldur Óskarsson sterkt og seinni parturinn sé úr Passíu- sálmum Hallgríms, síðustu orð Krists, sunginn af tenór. „Það er svolítið leikræn útfærsla, samt ekki óratóría sem segir beinlín- is söguna heldur meira tónaljóð um þjáninguna,“ lýsir Hörður. „Engin skemmtitónlist en mjög grípandi og lætur engan sæmi- lega lifandi ósnortinn.“ gun@frettabladid.is Tónaljóð um þjáningu Elmar Gilbertsson tenór og Hanna Dóra Sturludóttir sópran eru einsöngvarar með Mótettukór og Kammersveit Hallgrímskirkju í fl utningi óratóríunnar Passíu op. 28 eft ir Hafl iða Hallgrímsson á morgun, föstudaginn langa. FLYTJENDUR Hanna Dóra og Elmar Gilbertsson sjá um einsönginn á morgun með Mótettukórnum og kammersveitinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Tónlistarskóli FÍH auglýsir eftir umsóknum um skólavist fyrir skólaárið 2015-2016 Innritun nýnema fyrir næsta skólaár 2015-2016 stendur yfir hjá Tónlistarskóla FÍH til 10. apríl n.k. • Sótt er um skólavist á heimasíðu skólans www.tonlistarskolifih.is og á rvk.is (Rafræn Reykjavík). • Allir nýnemar þreyta inntökupróf í skólann. • Umsækjendur fá bréf um miðjan apríl um tíma fyrir inntökupróf en þau fara fram dagana 24.-25. apríl n.k. • Umsækjendur fá svar um skólavist í byrjun maí. Tónlistarskóli FÍH er framsækinn skóli með vel menntaða úrvalskennara sem eru virkir þátttakendur í íslensku tónlistarlífi. Skólinn hefur mikla sérstöðu meðal tónlistarskóla landsins þar sem kennd er hefðbundin tónlist (sígild tónlist) og rythmisk tónlist (djass, popp og rokk). Tónlistarskóli FÍH býður nemendum sínum gott náms- umhverfi og fjölbreytt námsframboð og um leið gerir skólinn kröfur til nemenda hvað varðar ástundun og námsframvindu. Ef þú vilt verða góður tónlistarmaður er Tónlistarskóli FÍH rétti skólinn fyrir þig. Á laugardagskvöldið rekur á fjörur Reykjavíkur skemmtilega gesti en þar eru á ferð djasstónlistar- mennirnir í bandinu 5000 Jazz Assassins frá Brooklyn. Þeir ætla að troða upp á Sæmundi í spariföt- unum kl. 21 og verður frítt á tón- leikana og því tilvalið að skella sér á djassinn eftir alvöruþunga föstu- dagsins langa. Sveitina skipa þeir Nathan Lambertson, Alex Harvey, James Monahan og Jono Waldman. 5000 Jazz Assassins spila ragtime/ swing-djass með evrópsku yfir- bragði og vinna þessir ungu djass- istar nú hörðum höndum að sinni fyrstu breiðskífu sem er væntan- leg seinna á þessu ári. Kapparn- ir eru þekktir fyrir að klæða sig mjög í stíl við tónlistina og minna tónleikar þeirra oft meira á tryllt- ar veislur en tónleika. - mg Dillandi djass fyrir alla Brooklyn-sveitin 5000 Jazz Assassins spilar á laugardag. 5000 JAZZ ASSASSINS Tónlistarmennirnir eru þekktir fyrir glæsilegan klæðaburð og líflega sviðsframkomu. MENNING Engin skemmtitón- list en mjög grípandi og lætur engan sæmilega lifandi ósnortinn. 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 4 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 3 D -0 9 E C 1 6 3 D -0 8 B 0 1 6 3 D -0 7 7 4 1 6 3 D -0 6 3 8 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 6 4 s _ 1 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.