Fréttablaðið - 02.04.2015, Blaðsíða 18
2. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| SKÍRDAGUR | 18
Leiklistarskólann, í Kramhús-
inu. Þar hafa því margir af okkar
þekktustu leikurum stigið sín
fyrstu skref í leiklist. „Alls konar
fólk kemur inn með hugmyndir
og maður þarf bara að vera opinn
fyrir því. Stundum virkar það ekki
og þá bara virkar það ekki en yfir-
leitt hefur það virkað.“
Það geta allir dansað
Hafdís og samstarfsmenn henn-
ar hafa líka stuðlað að fjölmenn-
ingu með því að fá ólíka strauma
og stefnur inn til landsins. Afró,
magadans og argentínskur tangó
eru allt dæmi um dansstefnur sem
byrjuðu í Kramhúsinu. „Þetta er
auðvitað mikið fjölmenningar-
samfélag og við höfum örugglega
stuðlað að því að víkka sjóndeild-
arhringinn hjá fólki,“ segir hún.
Hafdís segir að eitt af því
skemmtilegasta við starfið sé að
sjá fólk sem hafi haldið að það
gæti ekki dansað verða dansara.
Og hún fullyrðir að allir geti dans-
að. „Já, það geta allir dansað. Dans
og tónlist er í okkur öllum. Sumir
halda að þeir séu falskir og geti
ekki sungið. Það er alveg eins með
það og dans. Það geta allir lært að
syngja og það geta allir lært að
dansa.“
Kramhúsið á marga fastakúnna
sem hafa sumir hverjir verið þar
frá opnun hússins, einhverjir hafa
meira að segja fylgt Hafdísi frá
því áður en hún opnaði húsið. „Það
eru þrjár kynslóðir sem sækja
húsið. Sumir hafa verið frá byrjun
og svo allt niður í börnin sem eru í
barnastarfinu.“
Stundum tvísýnt
Þrátt fyrir að reksturinn hafi yfir-
leitt gengið vel þá hefur það samt
stundum verið tvísýnt. „Við höfum
bæði barist í bökkum og bönkum.
Þegar við vorum nýbúin að opna
þá varð 100% gengisfelling og það
hrundi allt. Þá var maður með lán
og bara allt í kaldakoli. Einhvern
veginn náðum við að klóra okkur í
gegnum það. Það var bara hægt af
því ég er alltaf að vinna með svo
góðu fólki. Ég er svo heppin að
hafa alltaf haft svo rosalega gott
samstarfsfólk sem hefur drifið
þetta áfram,“ segir hún.
Það var líka tvísýnt eftir hrun
hvort reksturinn gæti staðið undir
sér. „Það var eitt ár sem var alveg
rosalega erfitt. Aðsóknin minnk-
aði mikið, fólk þurfti að spara
við sig og við vissum ekki hvort
þetta myndi ríða okkur að fullu.
Sá tími var rosalega erfiður og
oft áður líka. Til dæmis þegar
eróbikkið kom til landsins, þá
datt niður allur dans og það fóru
allir á pallana. En það kom aftur,
þetta kemur svo mikið í bylgjum,“
segir hún. „Það eru líka ákveðnir
punktar sem haldast alltaf eins og
barnastarfið, leikfimi og jóga, það
helst alltaf sterkt. Og svo auð vitað
þessir föstu punktar, afró, tangó
og götudansinn.“
Núna gengur vel og í raun þyrfti
húsnæðið að vera stærra. „Núna
er þetta frekar upp á við en hitt.
Stundum er ekki nóg pláss, stund-
um hefur það verið of stórt og
stundum of lítið. Eins og núna.
Það hefur verið svo mikil aðsókn
að húsinu í vetur að það hefði ekki
veitt að öðrum sal. Þetta hefur
aldrei verið hugsað sem stórt batt-
erí eða útibú annars staðar. Við
þjónum mikið miðsvæðinu þó að
eldri kúnnar komi margir hverjir
langt að því þeir vilja vera í þessu
húsi.“
Fær aldrei leið
Hafdís verður sem áður segir 77
ára í haust. Hún segist þó hvergi
nærri vera hætt og ætlar sér að
kenna eins lengi og hún getur.
Núna kennir hún um 6–7 tíma
viku. „Það er passlegt fyrir mig.
Áður fyrr var maður stundum í
fullri vinnu og að kenna 20 tíma,“
segir hún. „Ég fæ aldrei leiða á
þessu. Ég man aldrei eftir að hafa
kviðið því að fara í vinnuna, ég er
svo heppin. Aldur er svo afstæður.
Mér finnst ég alveg eins vera 55
ára eða yngri. Mér bregður stund-
um hvað ég er orðin gömul,“ segir
hún hlæjandi enda ekki á henni
að sjá að aldurinn hamli henni á
nokkurn hátt. „Ég er heppin. Ég
er hraust og passlega kærulaus.
Ég hef ekki miklar áhyggjur af
hversdagslegum hlutum. Ég held
að það sé gott að flæða bara svona
áfram með. Það er ekki margt sem
er að bögga mig.“
FARIÐ YFIR MÁLIN Hafdís, Guðný Helgadóttir og Bryndís Petra í afgreiðslu Kram-
hússins 1987. MYND/VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR
FRUMKVÖÐULL Hafdís á upphafsárum hússins. MYND/VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR
Í UPPHAFI Fyrstu kennarar Kramhússins, þau Ásdís, Kolbrún, Halla Margrét, Hafdís Jóns, Hafdís Árna, Lella og Abdul
samankomin á góðri stundu.
GUFA Hópur að loknu gufubaði. Gufubaðið í Kramhúsinu hefur alltaf verið vinsælt
að æfingum loknum.
AF SÝNINGU Kramhúsið heldur alltaf stórar sýningar árlega þar sem nemendur
koma fram.
Í FRAMKVÆMDUM Húsið sem hýsir
Kramhúsið var mjög illa farið. Hér sést
Hafdís á framkvæmdatímanum.
➜ Kramhúsið var stofnað
1984 og hafa margir líkt því
við gróðurhús þar sem hug-
myndir fá að spíra, vaxa og
dafna. Meðal þeirra sem
hafa tekið fyrstu skref-
in í húsinu eru Kvennakór
Reykjavíkur, Sirkus Íslands,
Soðið svið, Leikhússport og
Tangófélag Íslands. Starf-
semin hefur ávallt verið í
sama húsnæðinu.
Mánudaginn 13. apríl 2015 verður aðalfundur Félags íslenskra félagsliða
haldinn í húsi BSRB, Grettisgötu 89, 1. hæð. Fundurinn byrjar kl.17:00 og
hvetjum við alla félagsliða til að mæta á fundinn.
Aðalfundur 2015 – fundarefni:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla formanns
3. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga
4. Lagabreytingar – tillögur liggja fyrir fundinum
5. Kosning formanns
6. Kosning stjórnar og skoðunarmanna reikninga
7. Önnur mál
Mætum tímanlega
• Léttar veitingar í boði að fundi loknum
• Fagnælan verður til sölu á staðnum á 2000 kr.
• Penni merktur félaginu á 500 kr.
• Minnislykil 5.000. kr. og lyklabönd 1.500 kr. – Munið reiðufé.
Félagsmenn, fjölmennum á fundinn.
Stjórn Félags íslenskra félagliða
Fyrirhugað er að senda fundinn út í fjarfundi
en nánari upplýsingar um staði verður á www.felagslidar.is
Aðalfundur
Félags íslenskra
félagsliða
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
D
-2
C
7
C
1
6
3
D
-2
B
4
0
1
6
3
D
-2
A
0
4
1
6
3
D
-2
8
C
8
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
0
6
4
s
_
1
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K