Fréttablaðið - 02.04.2015, Blaðsíða 8
2. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
Kíktu á úrvalið
í vefversluninni
á michelsen.is
FOSSIL
36.700 kr.
Daniel Wellington
24.500 kr.
CASIO
5.700 kr.
JACQES LEMANS
19.900 kr.
Fallegar
fermingar-
gjafir
ASA HRINGUR
13.400 kr.
ASA LOKKAR
7.800 kr.
ASA HÁLSMEN
19.300 kr.
DÓMSMÁL „Takk fyrir að halda
fram hjá mér sæta.“ Þetta stóð
við nektarmyndir af Katrínu Lilju
Sigurjónsdóttur sem fyrrverandi
kærasti hennar birti af henni á
Facebook í febrúar í fyrra.
Katrín Lilja er þolandi hefndar-
kláms og varð eðlilega fyrir miklu
áfalli en er óðum að ná fyrri styrk.
Sá sem braut á henni var í síðustu
viku dæmdur í 60 daga skilorðs-
bundið fangelsi vegna málsins og
gert að borga henni 250 þúsund
krónur í miskabætur.
Skjáskot af nektarmyndum
„Við vorum búin að vera saman í
eitt og hálft ár og ég sendi honum
þessar myndir sjálf. Ég sá þær
aldrei sjálf á netinu, heldur skjáskot
af þeim daginn eftir. Þær höfðu þó
verið það lengi á netinu að nægur
tími gafst til að taka skjáskot af
þeim. Skjáskotin sem ég sá voru
tekin tæpum tíu mínútum eftir að
myndirnar voru settar á netið.“
Erfitt að segja mömmu
Katrín var á leiklistaræfingu með
vinum sínum þegar hún frétti af
myndunum á netinu. Ég lét ekki á
neinu bera og fór afsíðis þar sem
vinkona mín sýndi mér skjáskot.
Það sást allt á þessum myndum,
segir Katrín Lilja en myndefnið
var kynfæri hennar og rass. Ég
tók sjálf þessar myndir. Við vorum
búin að vera saman í eitt og hálft
ár. Við höfðum búið saman, það var
traust á milli okkar,“ segir hún og
bætir því við að hún hafi beðið
hann um að eyða myndunum.
Henni fannst erfiðast að segja
móður sinni fréttirnar. „Mamma
sótti mig á leiklistaræfingu, ég
vildi ekki þurfa að segja móður
minni þetta og fannst það erfitt. En
þegar því var lokið var auðveldara
að stíga næstu skref. Mamma hafði
strax samband við lögregluna. Ég
fann að ég hafði fullan stuðning
hennar og allrar fjölskyldunnar.
Daginn eftir fór ég því á lögreglu-
stöðina og leyfði lögreglumanni að
skoða símann minn.“
Neitaði fyrst
Í fyrstu neitaði pilturinn að hafa
sett myndirnar á netið og sagði vin
sinn hafa gert það. „Hann dró það
þó til baka þegar málið var komið
til lögreglu og hefur vafalaust ótt-
ast að allir vinir hans yrðu yfir-
heyrðir. Ég var yfirheyrð af lög-
reglumanni sem sérhæfir sig í
kynferðisbrotum og fór í viðtal til
félagsráðgjafa. Mamma var hjálp-
leg. Hún hringdi strax í Stígamót.
Ég fékk mikla aðstoð þaðan á jafn-
ingjagrundvelli sem hjálpaði mér
að vísa burtu skömminni.
Hún vill ræða um reynslu sína til
að aðstoða aðra þolendur hefndar-
kláms. „Ég veit að þó að ég hafi
tekið myndirnar sjálf, þá er ekk-
ert sem gefur öðrum leyfi til að
setja þær á netið eða skoða þær
á netinu. Þetta eru persónulegar
heimildir sem hann hafði um mig
og hefur ekki rétt til að deila. Það
er mikilvægt að allir viti þetta.
Mig langar líka til þess að stelp-
ur viti að það fæst góð hjálp hjá
Stígamótum. Hjálpin þaðan skipti
mig miklu máli. Það er algengt að
stelpur haldi að þetta hverfi, það er
misskilningur. Það þarf að vinna í
þessu.“
Baktal frá næstu bæjum
Hún segist hafa ákveðið að láta
ekki reynsluna buga sig. „Ég er
búin að þroskast og hef fært mig
nær vinum og fjölskyldu. Það skipt-
ir máli að eiga gott bakland í vinum
og fjölskyldu þegar maður verður
fyrir svona áfalli. Það voru ótrú-
lega margir sem hringdu í mig til
að tala við mig um þetta að fyrra
bragði. Vinkonur mínar voru dug-
legar að hringja, þær vildu koma
því á hreint að þær fyrirlitu mig
ekki fyrir þetta. Mér fannst það
gott.“
Katrín Lilja er frá Neskaupstað
og hann er frá Seyðisfirði. Þótt hún
sé örugg í eigin bæjarfélagi segist
hún verða vör við illar augnagot-
ur og baktal þegar hún kemur til
Egilsstaða. „Hann er frá Seyðis-
firði og þegar ég fór til Egilsstaða
fékk ég ekki fallegt augnaráð og
fann fyrir því að fólki finnst að ég
hefði ekki átt að taka þessar mynd-
ir. En ég læt það ekki buga mig.“
Fyrrverandi kærasti dæmd-
ur í sextíu daga fangelsi
Fyrrverandi kærasti Katrínar Lilju Sigurjónsdóttur birti nektarmyndir af henni eftir að þau hættu saman.
Hún kærði myndbirtinguna til lögreglu og sótti sér sálræna aðstoð til Stígamóta. Fyrrverandi kærasti hennar
var dæmdur í sextíu daga skilorðsbundið fangelsi og til að greiða henni miskabætur.
TRAUSTIÐ FARIÐ Katrín Lilja treysti fyrrverandi kærasta sínum sem braut á henni
með því að birta af henni nektarmyndir. Aðsend mynd
Björt Ólafsdóttir
færir í frumvarpi
um breytingu
á almennum
hegningarlögum
þar sem hefndar-
klám er gert
refsivert þau rök
fyrir máli sínu að
einstaklingar, einkum konur, verði
á netinu oft fyrir kerfisbundnu
ofbeldi. „Brýnt er að skilaboð séu
skýr til notenda netsins um að
þegar þeir fá mynd í hendurnar
þá eigi þeir hana ekki og hafi
ekki heimild til að dreifa henni
áfram. Á þetta ekki hvað síst
við þegar um er að ræða mynd
eða myndskeið sem augljóst er
af efninu að ekki er ætlað til
dreifingar, svo sem þar sem nekt
kemur við sögu eða kynferðis-
legir tilburðir eða ástand sem
augljóst er að einstaklingurinn
á myndinni mundi ekki vilja
að alþjóð eða heimurinn sjái.
Mikilvægt er að fólk taki ábyrgð
og taki ekki þátt í að dreifa
myndefni sem þessu.“
➜ Vilja skýra löggjöf
Dómur sem féll
í Héraðsdómi
Austurlands
þann 27. mars
er sá fyrsti þar
sem dæmt er
fyrir hefndar-
klám. Í febrúar
á síðasta ári
birti fyrrverandi
kærasti Katr-
ínar Lilju fimm
nærmyndir af bakhluta og kynfærum hennar á Facebook-síðu sinni með
orðunum „Takk fyrir að halda framhjá mér sæta“ og nafni hennar. Hún var
þá nýorðin sautján ára. Myndirnar hafði hún sjálf tekið og sent honum
meðan á sambandi þeirra stóð.
Fyrir dómi hélt hann því meðal annars fram að myndbirtingin stjórn-
aðist ekki af kynferðislegri þörf heldur reiði. Af hvaða hvötum ákærði
stjórnast þegar hann birti myndirnar breytir ekki eðli verknaðarins. Ákært
er fyrir birtingu myndanna en ekki töku þeirra og óumdeilt er að birtingin
hafi verið í algjöru heimildarleysi, til þess fallin að brjóta gegn blygðunar-
semi stúlkunnar.
Dómurinn hafnaði þeirri röksemdafærslu piltsins sem og öðrum sem
hann reyndi að hafa uppi. Í dóminum segir að ekkert bendi til annars en
að sú háttsemi að birta myndirnar sé af kynferðislegum toga, þá er tekið
tillit til hættunnar, sem fylgdi myndbirtingunni, á auðveldri dreifingu
myndanna. Pilturinn var dæmdur í 60 daga fangelsi, skilorðsbundið til
tveggja ára. Þá var honum gert að greiða 620 þúsund krónur í sakarkostn-
að og stúlkunni 250 þúsund í miskabætur.
➜ Fyrsti dómurinn gegn hefndarklámi
KJARAMÁL Atkvæðagreiðslu um
nýjan kjarasamning vegna ríkis-
rekinna framhaldsskóla á að vera
lokið eigi síðar en 15. þessa mán-
aðar. Fulltrúar Kennarasambands
Íslands (KÍ) og samninganefndar
ríkisins skrifuðu undir samning-
inn í gærmorgun.
Félagsmenn Félags framhalds-
skólakennara (FF) og Félags
stjórnenda (FS) í ríkisreknum
framhaldsskólum felldu í febrú-
ar samkomulag um nýtt vinnumat
og þar með voru samningar þeirra
lausir. „Könnun meðal félags-
manna leiddi hins vegar í ljós að
76 prósent þeirra voru fylgjandi
því að gengið yrði á ný til samn-
inga á grundvelli vinnumatsins,“
segir í tilkynningu KÍ.
Þar er haft eftir Guðríði Arnar-
dóttur, formanni FF, að nýtt sam-
komulag sé í helstu atriðum líkt
hinu fyrra, en nú sé búið að jafna
mun á milli greina, styrkja ramma
utan um ráðningarhlutföll og
tryggja að sýnidæmi vinnumats
gildi sem lágmarksviðmið. - óká
HJÁ RÍKISSÁTTASEMJARA Fulltrúar
samninganefnda FF og FS skrifa undir
nýjan samning. MYND/KÍ
76 prósent vildu að samið yrði á grundvelli fyrirliggjandi vinnumats:
Skrifuðu undir nýjan samning
SJÁVARÚTVEGUR Í ralli Hafrann-
sóknastofnunar í mars fékkst
hæsta mæling á grásleppustofn-
inum í níu ár. Í samræmi við
jákvæða ráðgjöf stofnunarinn-
ar hefur verið ákveðið að fjölga
dögum til grásleppuveiða úr 20
í 32.
Samkvæmt ráðgjöfinni er
miðað við að heildarveiði á grá-
sleppu á þessari vertíð verði ekki
meiri en 6.200 tonn. Ætla má að
það svari til um 11.272 tunna af
hrognum. - shá
Mest 6.200 tonn:
Grásleppukarl-
ar fá aukadaga
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjanabjorg@frettabladid.is
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
E
-C
6
4
C
1
6
3
E
-C
5
1
0
1
6
3
E
-C
3
D
4
1
6
3
E
-C
2
9
8
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
0
6
4
s
_
1
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K