Fréttablaðið - 02.04.2015, Blaðsíða 12
2. apríl 2015 FIMMTUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞRÓUNARSTJÓRI: Tinni Sveinsson tinni@365.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr
Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRAR:
Andri Ólafsson andri@365.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is.
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er
hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
Enn á ný er sú tillaga komin fram um að
kosningaaldur verði lækkaður í 16 ár. Meðal
þeirra raka sem heyrast nefnd í þessu sam-
bandi er að með þessu sé verið að efla lýð-
ræðið og að aðrar þjóðir hafi nú þegar tekið
þetta skref. Stjórnmálaflokkar sem leggja
þetta til eru að seilast í atkvæði.
Það eru ýmis veigamikil rök gegn því að
kosningaaldur verði lækkaður í 16 ár. Fyrst
er einfaldlega að nefna að með lögum frá
1997 fá ungmenni hvorki sjálfræði né fjár-
ræði fyrr en þau hafa náð 18 árum. Það
myndi því skjóta skökku við að kosningaald-
ur verði lækkaður í 16 ár.
Þegar samkeppni stjórnmálaflokka skell-
ur á í aðdraganda kosninga er ekki erfitt að
sjá fyrir sér hvernig sótt verður að 16-18 ára
unglingum verði kosningaaldur lækkaður
í 16 ár. Vel kann að vera að einhverjir ung-
lingar á þessum aldri hafi mótað sér skoð-
anir á stjórnmálum og stjórnmálaflokkum.
Það á ekki hvað síst við um börn sem alin eru
upp á heimilum þar sem almenn stjórnmála-
umræða á sér stað eða að foreldrarnir sjálf-
ir hafi skilgreint sig til hægri eða vinstri.
Að sama skapi má gera ráð fyrir hópi ung-
menna á aldursbilinu 16-18 ára sem hafa lítið
eða ekkert leitt hugann að stjórnmálum yfir
höfuð hvað þá myndað sér skoðanir í þeim
efnum. Það er einmitt þessi hópur sem er
hvað mest viðkvæmur fyrir áreiti stjórn-
málaafla í atkvæðaleit. Í samkeppninni munu
stjórnmálaöflin í ákefð sinni eftir atkvæðum
beita ýmsum þrýstiaðferðum m.a. í formi alls
kyns freistandi tilboða í þeim tilgangi að laða
að yngstu kjósendurna.
Um 16 ára aldurinn standa flestir ungling-
ar á tímamótum. Um þetta leyti eru þeir að
ljúka grunnskóla og eru að taka ákvörðun
um hvert þeir vilja stefna í lífinu. Eins og
allir vita sem umgangast börn og unglinga
þá munar mikið um hvert ár í þroska sér-
staklega á þessu aldursskeiði. Það sem skipt-
ir höfuðmáli er að ungmenni fái svigrúm
og frið til að þroska eigið sjálf. Að þau fái
hvatningu og örvun til að styrkja sjálfsmynd
sína, næði til að móta persónulegan lífsstíl
og að finna sig sem hluta af ákveðinni heild.
Þetta er kjarni þess að vera barn og ungling-
ur. Á þessum árum er vinahópurinn jafnan í
miklum forgangi. Verkefnin eru því næg þótt
16-18 ára ungmenni séu ekki líka krafin um
pólitíska afstöðu og trúnað við stjórnmálaafl.
Okkur ber skylda til að vernda börn og
ungmenni gegn hvers skyns ágengni, áróðri
eða þrýstingi til að taka afstöðu í hagsmuna-
poti ólíkra samfélagsafla. Flestir unglingar
undir 18 ára aldri hafa hvorki öðlast langa
né mikla lífsreynslu. Þau hafa þar af leiðandi
ekki öðlast mikla færni í að greina á milli
manna né málefna og eru því býsna ber-
skjölduð fyrir áreitum.
Látum unglingana í friði
LÝÐRÆÐI
Kolbrún
Baldursdóttir
sálfræðingurLIFÐU
í NÚLLINU!
Til hvers að flækja hlutina?
365.is
Sími 1817
Þú færð GSM áskrift, internet og heimasíma fyrir
0 krónur með völdum sjónvarpspökkum 365.
**Greitt er 9,7 kr. upphafsgjald þegar hringt er úr heimasíma.*60 mín. og 60 SMS fylgja hverri áskrift.
4 GSM áskriftir
60 mín. og 60 SMS*
Internet
20 GB
Heimasími
100 mín.**
M
arga rak í rogastans þegar þeir sáu forsíðu
Fréttablaðsins í gær og þeir voru margir sem tóku
aðalfréttinni sem aprílgabbi. „Nýtt Alþingishús
eftir teikningu Guðjóns Samúelssonar,“ var fyrir-
sögnin og fréttin fjallaði um þingsályktunartillögu
Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra sem kveður
á um nýja viðbyggingu við Alþingishúsið, byggingu yfir Stofnun
Árna Magnússonar og byggingu nýrrar Valhallar á Þingvöllum.
Það var ekki endilega sú hugmynd að ráðast þyrfti í umræddar
byggingar sem vakti furðu, þær eru án efa allar góðra gjalda
verðar. Nei, það var miklu fremur sú hugmynd að dusta rykið
af teikningum Guðjóns Samú-
elssonar sem varð mönnum
undrunarefni.
„Tillaga til þingsályktunar
um hvernig minnast skal aldar-
afmælis sjálfstæðis og full-
veldis Íslands,“ er fullur titill á
umræddri tillögu forsætisráð-
herra. Hún er merkileg lesning,
þar svífur andi þjóðernisrómantíkur svo yfir vötnum að Hriflu-
Jónasi hefði orðið sómi af. Eftir lýsingu á því hvernig Guðjón
var fenginn til að hanna nýbyggingu við Alþingishúsið sem hýsa
mundi starfsemi Háskóla Íslands og stúdentagarð, segir til að
mynda: „Það fer þar af leiðandi vel á því að nú þegar Íslendingar
hafa í heila öld notið þeirra framfara sem fylgdu í kjölfar full-
veldis verði lokið við byggingaráformin.“
Þetta vekur margar spurningar. Þá fyrstu auðvitað, og sígild-
ustu, hvort fullveldið eitt og sér hafi verið slík forsenda framfara
sem þjóðernisræknir Íslendingar vilja vera láta, eða hvort tíminn
hafi einfaldlega liðið með sínum tækniframförum í sjávarútvegi
sem skutu stoðum undir efnahag þjóðarinnar. Já, og ekki
skemmdi Marshall-aðstoðin fyrir. Látum það liggja á milli hluta.
Það er hins vegar umhugsunarvert af hverju það þarf sérstaklega
að fagna umræddum framförum með því að byggja viðbyggingu
sem ekki á að nota eins og upphaflega var ætlað, því trauðla er
ætlunin að gera stúdentagarða við þinghúsið. Sem væri reyndar
spennandi, fjör og frísklegheit, Fram á nótt sungið fram undir
morgun og jafnvel inn í þingfundi.
En það er meira í tillögunni. Halda á samkeppni meðal arki-
tekta um hönnun hússins og tengibygginganna að öðru leyti og
þannig fá íslenskir arkitektar samtímans tækifæri til að hanna
hús með Guðjóni Samúelssyni. Það er ekki eftir litlu að slægjast,
eins og segir í tillögunni sjálfri:
„Með því vinna kynslóðir fullveldisstofnunarinnar með kyn-
slóðum samtímans við uppbyggingu til framtíðar. Um leið og
horft er til framtíðar er fortíðinni sýnd virðing og draumar fyrri
kynslóðar uppfylltir í þágu framtíðarkynslóða.“
Það er ekkert annað. Nú má vel vera að aldamótakynslóðin,
og er þar vísað til þarsíðustu aldamóta, hafi haft það svo slæmt
að vonir hennar og væntingar hafi risið hæst í draumum um
viðbyggingu við Alþingishúsið. Heldur er það þó ólíklegt. Mun
líklegra er að verið sé að uppfylla drauma stjórnmálamanna
nútímans sem vilja skilja eftir sig minnisvarða í anda klassískra
bygginga fortíðarinnar.
Menningarbylting í boði ríkisstjórnarinnar:
Ímynduð sam-
félög fornminja
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
Að hlaupa apríl– öfugt
Netið breytir ýmsu í lífi mannfólks-
ins, mest til hins betra. Meðal þess
sem hefur breyst er upplifun fólks
þann 1. apríl ár hvert. Aprílgöbbin
fara þannig mikið til fyrir ofan garð
og neðan hjá fjölda fólks vegna
yfirlýsingaglaðra vina á samfélags-
miðlum sem keppast við að benda
á hvaða dagur sé og koma í veg fyrir
að grunlausir félagar sínir hlaupi
apríl. Aftur á móti gerist það þess í
stað að menn hlaupa nokkurs konar
öfugan apríl, halda að
fréttaflutningur
allur þann daginn
sé uppspuni frá
rótum og trúa
ekki stöku orði
sem frá fjöl-
miðlum kemur.
Augljóst gabb
Þannig var frétt Markaðarins í gær
um mögulega komu kleinuhringja-
keðjunnar Dunkin’ Donuts til
landsins í margra huga ótrúverðug.
Einnig fannst mýmörgum forsíðufrétt
Fréttablaðsins, um viðbyggingu
við Alþingishúsið eftir teikningum
Guðjóns Samúelssonar, afar léleg
tilraun blaðsins til að gabba lesendur.
Einn þeirra sem hljóp þar apríl
öfugt var bloggarinn og samfélags-
rýnirinn Egill Helgason, sem var í það
minnsta efins um sannleiks-
gildi fréttarinnar. Hann
skrifaði meðal annars:
„Sumt er svo augljós-
lega aprílgabb að
maður heldur
bara áfram að
fletta.“
Það sem sannara reynist
Á þessum stað og víðar í gær var
það fullyrt að í frumvarpi Sigríðar
Andersen og Birgis Ármannssonar
væri þess krafist að undirritaður yrði
samningur á milli fjölmiðlafólks og
viðmælenda áður en upptaka á við-
tali gæti farið fram. Svo er ekki. Að-
eins er farið fram á að viðmælendum
sé kynnt að hljóðritun fari fram og
ekkert sem kallar á samþykki þeirra
fyrir hljóðrituninni sem slíkri, enda
fælist það í áframhaldandi
samtali ef um slíkt yrði
að ræða. Beðist er
velvirðingar á þessum
rangfærslum.
fanney@frettabladid.is,
kolbeinn@frettabladid.is
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
D
-F
B
D
C
1
6
3
D
-F
A
A
0
1
6
3
D
-F
9
6
4
1
6
3
D
-F
8
2
8
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
6
4
s
_
1
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K