Fréttablaðið - 02.04.2015, Page 4
2. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
SPURNING DAGSINS
30% afsláttur
af öllu páskaskrauti
STJÓRNMÁL „Lagahringl á ekki að
viðgangast á svona viðkvæmum
sviðum. Þetta frumvarp er vont og
meingallað um flest og mun skaða
leigumarkaðinn og gera hann erf-
iðari og ófriðsamlegri,“ segir Sig-
urður Helgi Guðjónsson, formað-
ur Húseigendafélagsins, um nýtt
húsaleigulagafrumvarp Eyglóar
Harðardóttur félagsmálaráðherra.
Sigurður segir frumvarpið, sem
var afgreitt úr ríkisstjórn á mánu-
dag, vera afturhvarf til laga sem
giltu til ársins 1994 áður en ný
lög voru samþykkt sem, að hans
sögn, hafa virkað vel í yfir 20 ár
og fundu jafnvægi milli leigusala
og -taka.
„Húsaleigulögin eru leik-
reglurnar sem gilda á þessum
markaði. Þetta kemur til dæmis
framboði á leiguhúsnæði eða leigu-
bótum ekkert við. Ég er búinn að
harka í þessum bransa í um 40 ár,
sem lögmaður, kennari og próf-
dómari í húsaleigurétti. Ég myndi
gefa þessari löggjöf falleinkunn,“
segir Sigurður.
Hann segir nokkur atriði frum-
varpsins beinlínis háskaleg.
„Það er mjög vanhugsað að fella
niður ákvæði sem undanskilur
lögin frá leigu til ákveðinna hópa,
það er sérstakra félagasamtaka,
eins og til dæmis námsmanna,
aldraðra eða öryrkja. Þetta ákvæði
er forsenda þess að félagasamtök
sem leigja til þessara hópa geti
stundað sína starfsemi. Þetta mun
rústa leigustarfsemi til dæmis
Félagsbústaða, Félagsstofnunar
stúdenta og fleiri,“ segir Sigurður
og bætir við að mun fleira megi
gera athugasemdir við í þessu
frumvarpi.
Sigurður gerir einnig athuga-
semdir við að ekkert samráð hafi
verið haft við Húseigendafélagið
við samningu frumvarpsins.
„Við erum tæplega 100 ára félag
en frumvarpið er samið af fólki
sem hefur enga reynslu af húsa-
leigu, löggjafarstarfsemi eða laga-
smíð. Þetta er úr öllum tengslum
við raunveruleikann,“ segir Sig-
urður og bætir við að breyting-
arnar sem í frumvarpinu felast
séu annaðhvort til óþurftar eða
eyðileggingar.
„Hvers vegna að laga það sem
ekki er bilað? Frumvarpið í heild
er vont og viðvaningslegt og eyði-
leggur allar helstu réttarbætur
laganna frá árinu 1994. Þá hafði
leigumarkaði næstum því verið
útrýmt og leigusalar létu húsnæði
frekar standa autt en að leigja það
út. Ég vona að þessa frumvarps
bíði þrautameðganga og andvana
fæðing,“ segir Sigurður.
fanney@frettabladid.is
Telur ný húsaleigulög
meingölluð og vond
Formaður Húseigendafélagsins gerir alvarlegar athugasemdir við frumvarp til breyt-
inga á húsaleigulögum. Undanþága fyrir sérstök félagasamtök á borð við samtök
námsmanna, öryrkja og aldraðra sé afnumin sem muni rústa leigustarfsemi þeirra.
LAGAHRINGL Sigurður Helgi Guðjónsson, formaður Húseigendafélagsins, segir
að frumvarp um breytingar á húsaleigulögum muni skaða leigumarkaðinn og gera
hann ófriðlegan. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ég vona
að þessu
frumvarpi
bíði þrauta-
meðganga og
andvana
fæðing.
Sigurður Helgi Guðjónsson,
formaður Húseigendafélagsins.
KJARAMÁL „Það er ábyrgðarleysi
ef menn reyna ekki til þrautar að
semja áður en kemur til áfloga,“
segir Páll Halldórsson, formaður
Bandalags háskólamanna. Samn-
inganefndir BHM og ríkisins fund-
uðu í gærmorgun án þess að við-
ræðum miðaði áfram.
Páll segir að samninganefnd rík-
isins hafi boðað til fundar aftur í
næstu viku. „Það skella á verkföll
í næstu viku og ríkið virðist ekki
hafa áhuga á að koma í veg fyrir
þau,“ segir Halldór „Ríkið hefur
ekki komið með
neitt tilboð en
þetta snýst ein-
faldlega um að
það komi ein-
hverjir fjármun-
ir í þetta.“
Kröfugerð
BHM hefur legið
fyrir frá því í
janúar og Páll
segir að viðræðurnar séu í raun
framhald frá viðræðunum í fyrra
en að ríkið bjóði ekkert umfram 3,5
prósenta launahækkun. Ef ekkert
þokast áfram eru verkfalls aðgerðir
óumflýjanlegar. „Fólk virðist vera
að draga þann lærdóm að ef eitt-
hvað á að miða áfram í þessum
málum þá þurfi átök til, við sjáum
til dæmis að Starfsgreinasamband-
ið hefur einnig boðað til aðgerða,“
segir Páll.
BHM hefur boðað til verkfalla á
þriðjudag en deilt hefur verið um
lögmæti þeirra. Vonast er til að
úrskurður um lögmæti verkfall-
anna liggi fyrir á mánudag. - srs
Verkföll vofa yfir á meðan ekkert þokast í samningum ríkisins og BHM:
Segir ríkið sýna ábyrgðarleysi
PÁLL
HALLDÓRSSON
SÝRLAND Vígamenn Íslamska
ríkisins réðust inn í flóttamanna-
búðirnar Yarmouk í Sýrlandi í
gær.
Flóttamannabúðirnar hýsa um
átján þúsund Palestínumenn sem
eru á flótta frá heimalandi sínu.
Skotbardagar hafa átt sér stað
á milli vígamannanna og íbúa
flóttamannabúðanna sem eru í
Damaskus, höfuðborg Sýrlands.
Þetta er fyrsta árás Íslamska
ríkisins svo nærri höfuðborg-
inni en samtökin hafa lagt undir
sig stóran hluta búðanna. Fólk
í flóttamannabúðunum býr við
afar léleg skilyrði en þær höfðu
áður orðið fyrir loftárásum sýr-
lenska stjórnar hersins. - srs
ISIS ræðst á Damaskus:
Hertóku flótta-
mannabúðir
YARMOUK Afar bág skilyrði eru í búð-
unum.
SAMFÉLAGSMÁL Matís og Sól-
heimar í Grímsnesi hafa undirrit-
að samstarfssamning um eflingu
sjálfbærra samfélaga á Íslandi.
Samstarfið felur í sér að auka
starfshæfni og nýsköpun við
vinnslu og sölu matvæla og efla
matarhandverk á Íslandi. Eins
að bjóða innlendum og erlendum
samstarfsaðilum upp á að nýta
aðstöðuna á Sólheimum.
Fyrirhugað er að opna matar-
smiðju að Sólheimum. Hún, líkt og
aðrar matarsmiðjur Matís, þjóna
öllum þeim matvælafrumkvöðl-
um og -framleiðendum sem áhuga
hafa á vöruþróun en auk þess
mun hún nýtast heimamönnum til
framleiðslu og nýsköpunar. - shá
Sólheimar og Matís:
Vilja efla sjálf-
bær samfélög
SÓLHEIMAR Matarsmiðja Matís verður
stofnsett. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
MANNRÉTTINDI Að minnsta kosti
607 manns voru teknir af lífi á síð-
asta ári í samtals 22 löndum. Kína
er þó undanskilið, þar sem Kín-
verjar birta ekki tölur um aftökur.
Talið er að Kínverjar hafi tekið
meira en þúsund manns af lífi.
Fyrir utan Kína voru Íranar og
Sádi-Arabar stórtækastir í þess-
um efnum. Þá voru að minnsta
kosti 2.466 manns dæmdir til
dauða á síðasta ári í samtals 55
löndum. Þetta kemur fram í nýrri
skýrslu frá Amnesty Internation-
al, sem hvetur Kínverja til að
birta sínar tölur. - gb
Aftökur í 22 löndum:
Sex hundruð
manns líflátin
Sverrir, voru menn að gera
úlfalda úr mýflugu?
„Já, úlfaldinn er allavega hólpinn.“
Fréttablaðið sagði frá því í gær að úlfalda
hefði verið fórnað fyrir fyrstu skóflu-
stungu að bænahúsi Múslima við Sogaveg.
Gærdaginn bar vissulega upp á 1. apríl.
ALÞINGI Ragnheiður Elín Árna-
dóttir, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, hefur lagt fram frumvarp
á Alþingi um að húshitunarkostn-
aður íbúa sem ekki eiga kost á
hitun með jarðvarma verði að
fullu niðurgreiddur frá og með
næstu áramótum.
Hluti húshitunarkostnaðar
hefur verið niðurgreiddur á
undan förnum árum en með frum-
varpinu á að stíga skrefið til
fulls. Hækka þarf framlag til
verkefnisins um 215 milljónir.
Skrefið stigið til fulls:
Húshitun verð-
ur niðurgreidd
STJÓRNMÁL Töluverðar breytingar
eru á fylgi flokka milli mánaða en
Píratar auka fylgi sitt um rösk-
lega sex prósentustig, en nær 22
prósent þeirra sem tóku afstöðu
segjast myndu kjósa Pírata færu
kosningar til Alþingis fram í dag.
Þetta kemur fram í nýjum Þjóð-
arpúlsi sem Gallup gerði á lands-
vísu dagana 26. febrúar til 30.
mars.
Helgi Hrafn Gunnarsson
pírati segist vona að það séu
áherslur flokksins á lýðræðis-
umbætur sem skili þeim fylgis-
aukningunni. „Ég held og vona
að það séu áherslur okkar á lýð-
ræðisumbætur sem leika stórt
hlutverk. Það er lýðræðiskrísa
á Íslandi þegar jafn fáir og raun
ber vitni treysta Alþingi. Það er
mjög alvarlegt mál og þetta geng-
ur ekki til lengdar. Fólk er fljótt
að kenna einhverju um, málþófi
og spillingu til dæmis, en ég tel
vandann djúpstæðari. Þetta er
kerfið sjálft sem við vinnum eftir
og þess vegna er það að mínu
mati mjög mikilvægt að ráðast í
lýðræðisumbætur og endurvekja
umræðu um stjórnarskrána.“
Fylgi Bjartrar framtíðar
minnkar um ríflega tvö pró-
sentustig milli mánaða en nær
11 prósent segjast myndu kjósa
flokkinn nú. Fylgi Framsóknar-
flokksins stendur í stað en fylgi
annarra flokka minnkar um 1,1-
1,3 prósentustig milli mánaða.
Fjórðungur segist myndu kjósa
Sjálfstæðisflokkinn, næstum 16
prósent Samfylkinguna, nær 11
prósent Framsóknarflokkinn,
liðlega 10 prósent Vinstrihreyf-
inguna – grænt framboð.
- kbg
Píratar mælast enn með gott fylgi og eru nú næststærsti flokkurinn:
Helgi segir ríkja lýðræðiskrísu
PÍRATAR Á SIGLINGU Helgi Hrafn
Gunnarsson segir lítið traust á Alþingi
merki um djúpstæðan vanda og vonar
að fylgisaukning við Pírata merki að
fólk vilji lýðræðisumbætur.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÓRÐUR SVEINSSON
VEÐUR Veðurfréttir í Frétta-
blaðinu eru nú með breyttu sniði.
Framvegis verður veðurkort
dagsins á síðu 2, en nánari veður-
fréttir aftar í blaðinu. Lang-
tímaspá verður síðan að finna í
helgarblaðinu.
Það er veðurfyrirtækið Belg-
ingur sem sér nú um veðurfrétt-
irnar. Belgingur hefur yfir ára-
tugar reynslu í gerð veðurspáa
í hárri upplausn. Með þessu er
ætlunin að efla veðurþjónustu
og setja veðurfréttir fram með
myndrænni hætti en áður. - kbg
Stórefld veðurþjónusta:
Belgingur tekur
við veðurfréttum
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
D
-7
6
8
C
1
6
3
D
-7
5
5
0
1
6
3
D
-7
4
1
4
1
6
3
D
-7
2
D
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
6
4
s
_
1
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K