Fréttablaðið - 02.04.2015, Side 6
2. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
VEISTU SVARIÐ?
1. Hvað á veiðigjald á makríl að
hækka mikið?
2. Hvar á landinu eru vatnsgæði lökust?
3. Hvaða teikning á að liggja til
grundvallar nýju Alþingishúsi?
SVÖRIN
BÖRGERINN
160gr sérvalið nautakjöt,
hamborgarabrauð Örvars,
brasseraðuxabrjóst,
reykt chili-majó, andafitukartöflur
REYKTUR ÞORSKUR
LINGUEE
Létteldað egg, kartöflusmælki,
blaðlaukur, Beurre Blanc sósa
ANDARSALAT
Confit andarlæri, appelsínur, pak choi,
cashew hnetur, gulrætur
SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR 40 · 101 REYKJAVÍK · KOLRESTAURANT.IS
Borðapantanir í síma 517 7474 eða info@kolrestaurant.is
HÁDEGIÐ
Á KOL
SJÁVARÚTVEGUR Nýting sjávar-
afla hér á landi er með því allra
besta sem gerist í heiminum þótt
Íslendingar séu ekki sú þjóð sem
hvað mest veiðir á heimsvísu. Þetta
kemur fram í úttekt í nýjasta tölu-
blaði efnahagsritsins Vísbendingar.
Þar kemur fram að undanfarin
ár hafi Ísland verið í 15. til 20. sæti
yfir þau lönd sem mestum sjávar-
afla landa í heiminum. Sé bara litið
til Evrópska efnahagssvæðisins sést
hins vegar hversu þungt sjávarút-
vegurinn vegur í samanburði við
nágrannalöndin.
Nýjar tölur Eurostat, evrópsku
hagstofunnar, sýna að fiskveiðar
Íslands árið 2013 námu tæplega 1,4
milljónum tonna, sem er næstmesti
aflinn á Evrópska efnahagssvæð-
inu (EES) á eftir Noregi sem veiddi
rúmar 1,9 milljónir tonna. Í þriðja
sæti er svo Spánn með veiðar upp á
rúm 882 þúsund tonn.
Innan EES er Ísland því með um
einn sjötta af heildarveiðunum,
líkt og bent er á í Vísbendingu, en
Norðmenn veiddu nærri fjórðung.
„Þessi tvö EES-ríki, Ísland og Nor-
egur, veiða samtals um 40 prósent
af heildarveiði á svæðinu,“ segir í
ritinu. Bent er á að yrði Ísland full-
gildur aðili að Evrópusambandinu
þá yrði landið þar mesta fiskveiði-
landið með milli fjórðung og fimmt-
ung aflans. „Ætla má að sjónarmið
landsins myndu vega þungt í grein-
inni,“ segir þar jafnframt.
Þá kemur fram í samantekt Vís-
bendingar að hér sé afli nýttur með
skilvirkari hætti en víðast annars
staðar. Nýting aflans sé best í Dan-
mörku, á Íslandi og í Noregi. „Og
hinar þjóðirnar eru langt á eftir.
Sérstaklega vekur athygli að Spán-
verjar eru miklu neðar. Íslendingar
eru með um það bil fjórum sinnum
betri nýtingu á sínum flota en Spán-
verjar og Hollendingar.“ Þetta er
sagt benda til þess að hagkvæmnin
í íslenskum sjávarútvegi sé miklu
meiri en hjá þessum þjóðum. „Væri
sjávarútvegur innan Evrópusam-
bandsins rekinn á samkeppnis-
grunni væri staða íslensku útgerð-
anna mjög góð, enda eiga íslenskar
útgerðir fyrirtæki innan Evrópu-
sambandsins.“
Í grein Vísbendingar er líka
slegið á sögusagnir um að íslensk-
um sjávarútvegi kynni að stafa
hætta af spænska fiskveiðiflotanum
yrði af aðild Íslands að Evrópusam-
bandinu. Vegna reglunnar um hlut-
fallslegan stöðugleika myndu aðeins
íslenskar útgerðir hafa veiðiheim-
ildir í íslenskri landhelgi. Svipaðar
sögur af Spánverjum hafi gengið
bæði í Bretlandi og Danmörku. „En
á báðum stöðum hefur þó útgerð-
in haldist í eigu og forsjá heima-
manna.“ olikr@frettabladid.is
SÁ GULI Þorsk-
ur í kari á hafn-
arbakka. Ísland
er neðarlega á
topp 20 lista
þeirra þjóða
sem mestum
afla landa í
heiminum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ísland er næstmesta
fiskveiðilandið í EES
Ef Ísland yrði fullgildur aðili að Evrópusambandinu þá yrðu Íslendingar stærsta
fiskveiðiþjóðin með fjórðung til fimmtung heildarafla sambandsins. Tölur evr-
ópsku hagstofunnar sýna að landið er með um einn sjötta heildaraflans á EES.
Land Tonn
Slóvenía 232
Kýpur 1.166
Rúmenía 1.617
Malta 2.355
Búlgaría 9.535
Belgía 25.377
Grikkland 63.625
Eistland 66.515
Litháen 74.803
Króatía 75.267
Lettland 115.759
Finnland 144.297
Ítalía 172.907
Svíþjóð 176.789
Portúgal 193.941
Pólland 195.477
Þýskaland 219.000
Írland 246.240
Holland 324.370
Tyrkland 339.047
Frakkland 528.732
Stóra-Bretland* 623.939
Danmörk 668.338
Spánn 882.309
Ísland 1.383.638
Noregur 1.943.912
Evrópusambandslönd samtals 4.730.975
*Eyjan Mön (6.357 tonna afli) meðtalin. Heimild: Eurostat
Heildarfiskafli á EES-svæðinu 2013
SAMFÉLAGSMÁL „Þetta gekk svo vel
upp að pabbi hringdi í mig í morg-
un og vildi að ég tæki frá úlfalda-
kjöt fyrir sig,“ segir Kristján Berg
Ásgeirsson, eigandi Fiskikóngsins.
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að Dagur B. Eggertsson, borg-
arstjóri Reykjavíkur, hefði tekið
fyrstu skóflustungu að mosku á lóð-
inni við Sogamýri. Í athöfninni átti
Félag múslima að hafa fórnað úlf-
alda til að halda óvinveittum öflum
frá moskunni og gæfi kjötið í Fiski-
kónginum við Sogaveg. Ekkert varð
þó af fórninni né skóflustungunni
þar sem um aprílgabb Fréttablaðs-
ins var að ræða.
„Hér mættu um 40 til 50 manns,“
segir Kristján. „Fólk var í fyrstu
pirrað en við leystum það út með
tveimur kílóum af fiskibollum,
síðan fór fólk bara út í bíl og hló
að þessu. Þetta hefur verið mjög
skemmtilegt og fiskibollufatið er
alveg tómt,“ segir hann.
Sveinbjörg Birna Sveinbjörns-
dóttir, borgarfulltrúi Framsókn-
ar og flugvallarvina, var ein
þeirra sem féllu fyrir gabbinu en
á Facebook-síðu sína setti hún eft-
irfarandi stöðufærslu: „Ég hélt að
það þyrfti að liggja fyrir bygg-
ingarleyfi áður en „fyrstu skóflu-
stungur“ væru teknar – en það er
kannski bara misskilningur. Best
að gúggla það,“ skömmu síðar átt-
aði hún sig á því að um aprílgabb
var að ræða og gantaðist með það
sjálf.
Fréttablaðið áréttar að frétt gær-
dagsins var aprílgabb og biður þá
sem hlupu apríl velvirðingar. - srs
Þó nokkrir lögðu leið sína í Fiskikónginn til að gæða sér á framandi og spennandi kjötmeti:
Vildu næla sér í úlfalda en fengu fiskibollur
FISKIKÓNGAR Ekkert var um skóflu-
stungu en fólk gat skóflað í sig fiski-
bollum í staðinn FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR1. Um tvö hundruð prósent. 2. Fyrir austan
og vestan. 3. Guðjóns Samúelssonar.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
E
-2
8
4
C
1
6
3
E
-2
7
1
0
1
6
3
E
-2
5
D
4
1
6
3
E
-2
4
9
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
6
4
s
_
1
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K