Fréttablaðið - 02.04.2015, Síða 20
2. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| SKÍRDAGUR | 20
Þessa dagana er ég svo-lítið slappur af lungna-bólgu. Fer samt niður í smíðastofu en get ekkert unnið af viti. Þetta hlýtur að lagast með vorinu og
aldrinum,“ segir hinn 89 ára Jóhann
Ingimarsson glettnislega. Hann er
einn helsti frumkvöðull íslensks
húsgagnaiðnaðar, rak smíðafyrir-
tækið Valbjörk í áratugi og síðan
verslunina Örkina. Eftir hann liggja
líka mörg útilistaverk og málverk.
Jóhann hefur búið á öldrunar-
heimilinu Hlíð á Akureyri í tvö og
hálft ár. „Ég kom fyrst í dagvist-
un og þá datt mér í hug að opna hér
smíðastofu. Það var látið eftir mér
og ég held hún hafi komið mörgum
vel, ekki síst heimilinu í heild. Það
er leitað til okkar með viðgerðir og
hitt og annað smotterí,“ segir hann
kankvís.
Smíðaði stóla Wegners
Jóhann er fæddur á Þórshöfn á
Langanesi. „Við vorum ellefu systk-
inin, börn Oddnýjar Árnadóttur og
Ingimars Baldvinssonar á Ingi-
marsstöðum,“ segir hann. Kveðst
hafa farið í gagnfræðaskólann á
Akureyri og iðnnám líka áður en
hann hélt til Kaupmannahafnar að
læra húsgagnahönnun og innan-
hússarkitektúr árið 1949. „Þegar ég
kom heim þremur árum síðar fékk
ég ekkert að gera og var að hugsa
um að fara út aftur því þar bauðst
mér verkstjórastarf í húsgagnaverk-
smiðju. En sá þá auglýstar smíða-
vélar á Blönduósi hjá Ísberg sýslu-
manni, fór að skoða þær en leist
ekki meira en svo á, sagði Ísberg þó
að ég vildi kaupa þær en ætti enga
peninga. Hann sagði að það væri
í lagi, honum litist þannig á mig.
Þannig startaði ég Valbjörk,“ rifj-
ar Jóhann upp. „Fyrstu húsgögnin
sem ég framleiddi voru borðstofu-
húsgögn fyrir Iðnsýninguna 1952 í
Reykjavík. Þau slógu í gegn og það
bárust svo margar pantanir að ég
tók tvo eigendur inn í fyrirtækið og
þrjá lærlinga, þannig að reksturinn
vatt fljótt upp á sig.“
Jóhann kveðst hafa teiknað öll
húsgögn sjálfur sem framleidd voru
í Valbjörk nema þau sem hann smíð-
aði fyrir Amtsbókasafnið á Akur-
eyri fyrir Gunnlaug Halldórsson
arkitekt. Það voru stólar hannaðir
af hinum þekkta, danska hönnuði
Hans J. Wegner. „Gunnlaugur fékk
leyfi hjá Wegner, þeir voru skóla-
félagar en Carl Hansen & Søn hafa
framleitt allt eftir Wegner annars,“
upplýsir hann.
Húsgögnin aftur í tísku
Á skömmum tíma gerði Jóhann Val-
björk að stórfyrirtæki við Glerár-
götuna, var líka með útibú á Ísa-
firði, Siglufirði, Reyðarfirði og í
Vestmannaeyjum og seldi húsgögn
í margar verslanir í Reykjavík.
„Starfsmenn voru um 70 þegar mest
var en oftast milli 50 og 60. Stærsta
verkefnið á ferlinum var húsgögn og
innréttingar í Loftleiðahótelið við
Reykjavíkurflugvöll. Svo smíðuðum
við inn í fyrirtæki eins og Póst og
síma, bankana og sjúkrahúsin, líka
bari, stóla og borð inn í skemmti-
staðina Röðul og Þórskaffi.“
Jóhann segir innréttingarnar úr
Valbjörk eflaust flestar farnar á
haugana en mörg húsgögn séu enn
í einkaeign og fólk vilji ekki missa
þau. „Skenkir og stólar eru orðnir
dýrir ef þeir skipta um hendur því
það merkilega er að þessi húsgögn
eru aftur komin í tísku.“
Þar kom að Jóhann vildi hefja
útflutning. „Ísland var orðið of lítið
fyrir okkur. Við þurftum að hafa
svo fjölbreytta framleiðslu sem var
mjög dýrt,“ segir hann. „Ég var
kominn með sambönd í Bandaríkj-
unum og búinn að senda sýnishorn
út, til dæmis af kolli sem ég teikn-
aði og fékk pöntun á upp á 120.000
stykki. En ég fékk hvorki fyrir-
greiðslu hjá bönkum né stjórnmála-
mönnum svo ég gafst upp og seldi
Valbjörk árið 1970. Ég fékk greitt
í húsgögnum svo ég stofnaði versl-
unina Örkina og flutti inn húsgögn
frá Ítalíu og Þýskalandi. Ég þurfti
aldrei að taka stór lán, Örkin gekk
vel í höndum okkar hjóna og dóttir
okkar rekur hana núna.“
Fyrstu húsgögnin sem
ég framleiddi voru borð-
stofuhúsgögn fyrir Iðnsýn-
inguna 1952 í Reykjavík.
Þau slógu í gegn.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
ÞÚSUNDÞJALASMIÐUR „Þetta hlýtur að lagast með vorinu og aldrinum,“ segir Jóhann um lungnabólguna sem hrjáir hann
þessa dagana. Hér er hann með eigið málverk á bak við sig. MYND/AUÐUNN NÍELSSON
Enn að
smíða, gera
og græja
Akureyringurinn Jóhann Ingimarsson
hannaði, smíðaði og seldi húsgögn í áratugi
og er hugsanlega sá eini í heiminum sem
smíðaði stóla Hans Wegner utan Danmerkur.
Jóhann býr á öldrunarheimilinu Hlíð
og fékk þar opnaða smíðastofu.
Nýlegir skúlptúrar úr smiðju Jóhanns
EIGULEGT
Eins og
hvalreki fyrir
ungar stúlkur
sem vantar
hirslu undir
snyrtidót og
föt og líka
afbragðs
skrifborð.
VINSÆL FERMINGARGJÖF
Svefnsófi sem prýddi mörg heimili á tímabili.
MYNDIR/AUÐUNN NÍELSSON FRÁ IÐNAÐARSAFNINU Á AKUREYRI
KOLLUR OG
PARTÍBORÐ
Þennan koll
sendi Jóhann
út til Banda-
ríkjanna sem
sýnishorn af
framleiðslu
sinni og fékk
pöntun upp á
120.000 stykki,
sem hann gat
ekki sinnt. Hús-
gagnið er líka
ekta partíborð
því hægt er að
snúa plötunni
við og þar er
hún slétt.
MYND/HÖNNUNAR-
SAFN ÍSLANDS
KLASSÍK Ekta
borðstofustóll.
MYND/HÖNNUNAR-
SAFN ÍSLANDS
HÆGINDASTÓLL
Þeir teljast heppnir sem
eiga svona stól í dag.
Hillur smíðastofunnar á öldrunarheimilinu Hlíð geyma marga frumlega hluti
sem Jóhann hefur dundað sér við að setja saman á síðustu árum. Hér má sjá
sýnishorn af þeim. Útilistaverk eftir hann eru líka víða á Akureyri.
M
YN
D
IR/AU
Ð
U
N
N
N
ÍELSSO
N
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
D
-D
4
5
C
1
6
3
D
-D
3
2
0
1
6
3
D
-D
1
E
4
1
6
3
D
-D
0
A
8
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
6
4
s
_
1
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K