Fréttablaðið - 02.04.2015, Qupperneq 30
2 • LÍFIÐ 2. APRÍL 2015
ÚTGÁFUFÉLAG 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Umsjón Friðrika Hjördís Geirsdóttir rikka@365.is ● Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
erlabjorg@365.is ● Auglýsingar Atli Bergmann atlib@365.is
Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ● Forsíðumynd Vilhelm Gunnarsson
Lífi ð
www.visir.is/lifid
NUTRI REPAIR
Viðgerð og uppbygging fyrir þurrt og
skemmt hár. Inniheldur Argan olíu og ríkt
af A- og E-vítamínum.
Gagnrýni er áhugavert fyrir-
bæri, í rauninni mætti kalla hana
afl því hún getur bæði byggt upp
og rifið niður. Uppbyggileg gagn-
rýni er mannbætandi og getur
haft þau áhrif að við tökum réttar
ákvarðanir sem svo gera okkur
hamingjusamari í kjölfarið. Það
þarf ákveðinn kjark til þess að
leita eftir gagnrýni því eins og
það er gott að fá uppbyggilega
gagnrýni er sárt að fá niðurríf-
andi gagnrýni. Svo er það nú
einu sinni þannig að sjálf þurf-
um við að sigta frá og meta hvort
við tökum mark á þeirri gagnrýni
sem við fáum. Stundum getur nei-
kvæð gagnrýni orðið til þess að
við verðum enn staðfastari í að
fara þá leið sem við erum á. Að
sama skapi getur jákvæð gagn-
rýni togað okkur upp úr tunnunni
og beint okkur á rétta braut.
Það er manninum eðlilegt að
gagnrýna og meta lífið út frá
reynslu og þekkingu en lífið er
sífellt að koma okkur á óvart og
ný þekking kemur sér fyrir í hug-
arfylgsnunum, þá þurfum við
að muna eftir því að uppfæra
skoðanir okkar svo að við fest-
umst ekki í fornu fari. Við berum
ábyrgð á þeim orðum sem við
látum út úr okkur. Orðin endur-
spegla úr hverju við erum gerð í
raun og veru; hverjar eru okkar
hindranir og ótti.
Þegar við rýnum til gagns
getum við ekki annað en verið
heiðarleg í skoðunum okkar og
markmiðið er undantekningar-
laust það að ná árangri, hvort
sem það er fyrir okkur sjálf eða
aðra. Niðurrífandi gagnrýni skil-
ur fátt annað eftir sig en brot
á eigin sjálfi. Það er eins og að
drekka eitur og búast við því
að hinn aðilinn, sem gagnrýnin
beinist að, skaðist, eins og Nelson
Mandela komst svo skemmtilega
að orði. Venjum okkur á að vanda
okkur við gagnrýnina og veljum
að rýna til gagns, það gerir lífið
svo miklu skemmtilegra og bjart-
ara.
„Þegar við rýnum
til gagns getum við
ekki annað en verið
heiðarleg í skoðunum
okkar.“
Friðrika Hjördís
Geirsdóttir
umsjónarkona Lífsins | rikka@365.is
CHEERLEADER OMI
FOUR FIVE SECONDS
RIHANNA FT. KANYE
WEST & PAUL
MCCARTNEY
ELASTIC HEART SIA
LAY ME DOWN
SAM SMITH
HOLD BACK THE
RIVER JAMES BAY
WHAT I DID FOR
LOVE DAVID GUETTA
FT. EMELI SANDE
EARNED IT
THE WEEKND
THE NIGHTS AVICII
TIME OF OUR LIVES
PITBULL FT. NEYO
UP OLLY MURS
FT. DEMI LOVATO
ELDHEITT
Á ÍSLANDI
Íslenski listinn er frumfluttur
í hverri viku á laugardögum
fyrir kvöldfréttir á Stöð 2.
Hann er í umsjón hinnar gull-
fallegu Óskar Gunnarsdóttur,
sem sér einnig um morgun-
þætti á FM957. Vinsælustu
lögin þessa vikuna finnurðu á
Spotify-svæði Heilsuvísis.
því að þú skipuleggir sumarfríið með fjölskyldu og vinum. Láttu
hugann reika og hugmyndaflugið fara á flug, hvert langar þig
að fara og með hverjum? Hefurðu ferðast um landið? Notið sól-
seturs á Vestfjörðum, sem er eitt það fegursta í heiminum? Lang-
ar þig í hellaskoðunarferð eða leita uppi heitar laugar? Lang-
ar þig mest af öllu að flýja land og leggjast á heita sólarströnd
með kokteil í annarri hendi og góða bók í hinni? Hvert leitar
hugurinn? Núna eru ferðaskrifstofurnar með hvert tilboðið öðru
betra. Gerðu eitthvað skemmtilegt í sumar og njóttu þín.
LÍFIÐ MÆLIR MEÐ …
ERTU AÐ DREKKA EITUR?
Gagnrýni er daglegt brauð í samfélaginu, hún getur bæði haft uppbyggjandi áhrif og rifið niður.
Vandaðu þig
þegar þú
gagnrýnir
og hafðu já-
kvæðnina að
leiðarljósi.
NORDICPHOTOS/
GETTY
Heilsuvísir
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
D
-A
2
F
C
1
6
3
D
-A
1
C
0
1
6
3
D
-A
0
8
4
1
6
3
D
-9
F
4
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
6
4
s
_
1
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K