Fréttablaðið - 02.04.2015, Page 42
2. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 26TÍMAMÓT
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og systir,
KRISTÍN SVAVA AGNARSDÓTTIR
frá Ísafirði,
lést 31. mars á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja.
Svavar Garðarsson Guðlaug Björnsdóttir
Agnes Margrét Garðarsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn
Agnes Agnarsdóttir
Hjaltlína Agnarsdóttir
Erna Agnarsdóttir
Margrét Martinez Agnarsdóttir
Sigmundur Agnarsson
Útfararþjónusta síðan 1996
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir,
VALDIMAR TÓMASSON
Suðurtúni 19,
Álftanesi,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ,
þriðjudaginn 24. mars. Útförin fer fram
frá Neskirkju þriðjudaginn 7. apríl kl. 15.00.
Guðrún Júlíusdóttir
Sólborg Valdimarsdóttir
Einar Ingi Valdimarsson Alda Ingibergsdóttir
Þórarinn Valdimarsson Veronica Valdimarsson
Guðrún Sigríður Loftsdóttir Skarphéðinn Þór Hjartarson
stjúpbörn, tengdafaðir, barnabörn og langafadrengur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HELGI EYSTEINSSON
kaupmaður,
Sléttuvegi 13, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir þriðjudaginn
31. mars. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Kristín Jónsdóttir
Jóna Helgadóttir
Eysteinn Helgason Kristín Rútsdóttir
Matthildur Helgadóttir Tómas Óli Jónsson
Guðleif Helgadóttir Haraldur Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín,
móðir okkar, tengdamóðir og amma,
EBBA INGIBJÖRG E. URBANCIC
kennari,
Goðheimum 8, Reykjavík,
lést þriðjudaginn 31. mars á Landakots-
spítala. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Pétur Urbancic
Ásta Melitta Urbancic Tómas Óskar Guðjónsson
Viktor Jóhannes Urbancic Gunnhildur Úlfarsdóttir
Anna María Urbancic Finnur Árnason
Linda Katrín Urbancic Gísli Guðni Hall
Elísabet Sigríður Urbancic Lose Kjeld Lose
Árni Grétar, Pétur Marteinn, Ebba Katrín, Jóhannes Bjarki,
Marteinn Pétur, Sigrún Ebba, Oliver Páll, Tómas Ingi,
Viktor Pétur, Guðjón Páll, William Ari og Christian Mar
Verzlunarskóli Íslands fagnar 110 ára
afmæli næsta haust. Á þeim tímamót-
um mun skólinn taka gríðarmiklum
breytingum því horfið verður frá
fjögurra ára námi til stúdentsprófs.
Nýnemar sem innritast í skólann nú
í vor og hefja nám við Verzlunarskól-
ann munu ljúka námi á þremur árum.
„Gífurlega mikil vinna hefur verið í
gangi innan veggja skólans síðustu ár
við að endurskipuleggaj allt námið frá
grunni með það að markmiði að stytta
námstíma nemenda um eitt ár. Stytt-
ing námstímans er sett upp á þá leið
að ekki er slegið af kröfum um hæfi
nemenda til frekara náms þegar skóla
lýkur hjá okkur,“ segir Ingi Ólafsson,
skólastjóri Verzlunarskóla Íslands.
Aðdragandi þessara breytinga er
nokkuð langur. Hugmyndir um stytt-
ingu stúdentsprófs niður í þrjú ár
birtust í skýrslu menntamálaráðu-
neytisins árið 2003 þar sem þessar
hugmyndir eru viðraðar og skoðaðar
nokkuð ítarlega.
„Það er svo um vorið 2013 að skóla-
nefnd felur mér formlega sem skóla-
stjóra að kanna hvort það væri mögu-
leiki á að stytta námstímann um eitt
ár. Þá fyrst lagðist ég yfir málið af
einhverju viti og haustið eftir komu
um fimmtíu starfsmenn skólans að
hugmyndinni og afraksturinn varð
síðan ljós nú um áramótin,“ segir
hann.
Ingi viðurkennir fúslega að í upp-
hafi hafi hann ekki haft miklar
mætur á þessum hugmyndum um
styttingu stúdentsprófs. „Í sannleika
sagt leist mér ekkert á þetta. Þegar
þessi hugmynd spratt fyrst upp hafði
ég allt á hornum mér og taldi þetta
ógerlegt með öllu. En þegar ég fór að
skoða þetta af einhverju viti viður-
kenni ég að ég hafði ekki kynnt mér
þetta nógu vel áður. Nú teljum við
þetta gerlegt án þess að slá af kröf-
um til náms.“
Vorið 2018 mun Verzlunarskól-
inn því útskrifa tvo stóra árganga
úr skólanum sem að öllum líkindum
verður met brautskráðra nýstúdenta
við einn og sama skóla. Helmingur
nemenda skólans mun því útskrif-
ast á þessu ári eða um 600 stúdentar.
„Það er ánægjulegt að við getum flýtt
fyrir frekara námi okkar stúdenta á
þennan hátt,“ segir Ingi. „Eins og við
stillum upp náminu þá eiga okkar
nemendur að geta sótt allar deildir
háskólanna án vandkvæða eftir stúd-
entspróf við Verzlunarskóla Íslands.“
sveinn@frettabladid.is
Þrjú ár að klára nám við
Verzlunarskóla Íslands
Frá og með næsta hausti mun Verzlunarskólinn aðeins innrita nemendur í þriggja ára
nám til stúdentsprófs. Mikil vinna hefur verið lögð í uppsetningu námsins innan skólans.
INGI ÓLAFSSON Skólastjóri Verzlunarskólans segist ekki hafa haft mikið álit á hugmyndum um þriggja ára stúdentsnám fyrr en hann rann-
sakaði málefnið sjálfur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MERKISATBURÐIR
999 Gerbert d’Aurillac verður Silvester 2. páfi.
1453 Umsátrið um Konstantínópel hefst.
1801 Breski flotinn undir stjórn Nelsons flotaforingja gersigrar
danska flotann við Kaupmannahöfn.
1805 Hans Christian Andersen fæðist.
1831 Lorenz Angel Krieger verður stiftamtmaður á Íslandi.
1902 Fyrsta kvikmyndahúsið er opnað í Kaliforníu í Bandaríkj-
unum.
1982 Argentína gerir innrás á Falklandseyjar. Innrásin markar
upphaf Falklandseyjastríðsins.
2004 Búlgaría, Eistland, Lettland, Litháen, Rúmenía, Slóvakía og
Slóvenía verða fullgildir meðlimir í NATO.
Í Hítardalsannál frá árinu 1725 var
greint frá miklum jarðhræringum og
jarðeldum við Heklurætur þann 1. og
2. apríl. „Um alla nóttina og fram til
morguns þess 1. og 2. Aprilis, eður
þessa fyrsta og annars dags í páskum,
gengu skelfilegir jarðskjálftar um
Árness- og Rangárvallasýslur, svo fólk
klæddist aptur, þorði ekki við að haldast
inni í húsum,“ sagði í annálnum.
Þennan dag hófst eldgos suðaustan-
megin við Heklu og er gosið talið til
Heklugosa þar sem jarðeldarnir komu
úr sama eldstöðvarkerfi og tilheyrir
Heklu. Gosið varð þó lítið og olli engu
tjóni á mönnum eða dýrum en jarð-
skjálftahrinan sem fylgdi í kjölfarið á að
hafa verið ægileg en í annálnum segir
að bærinn Haukadalur á Rangárvöllum
hafi hrunið vegna þeirra. Gosið, þrátt
fyrir að vera lítið, stóð langt fram eftir
vori. Ekki er vitað um legu eldstöðvanna
en talið er að yngra hraun hafi breytt
sig yfir þær í seinni tíð.
ÞETTA GERÐIST 2. APRÍL 1725
Skelfi legir jarðskjálft ar
HEKLA Gosið á myndinni er frá
árinu 1947.
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
E
-F
2
B
C
1
6
3
E
-F
1
8
0
1
6
3
E
-F
0
4
4
1
6
3
E
-E
F
0
8
2
8
0
X
4
0
0
8
A
F
B
0
6
4
s
_
1
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K